Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 Helgarblað DV „í ÞESSU EINA MÁLI BRÁST VILHJÁLMUR OKKUR" Djörn Ingi Hrafnsson ídýtur að sjá eftir sam- starfinu við okkur, því nú er hann áhrifalaus í ósamstæðum meirihluta. Grundvallarspurningin er sú af hverju hann sleit meirihlutan- um. Hann var ekld eingöngu að slíta út af þessu hálfa ári sem okkur greindi á um hvenær ætti að selja Reykjavik Energy Invest. Það liggur meira undir. Það gerðu margir mistök í þessu máli en sú skýring að þetta hafi snúist um örfáa mánuði heldur ekki vatni," seg- ir Þorbjörg Helga Vigfusdóttir, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins um stærsta fréttamál seinasta árs þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks sprakk. Það var áhugi á skólamálum sem varð til þess að Þorbjörg Helga sneri sér að pólitík. Hún lærði námssál- fræði og komst fljótlega að því að hún næði aðeins áhrifum með þátttöku í stjórnmálum. „Ég var með eldri son minn í bandarískum leikskóla og síð- an ffönskum. Þannig kynntist ég ólík- um kerfum og áhugi vaknaði á því að vinna að þeim málum heima á íslandi. Ég lærði um skólakerfi og var með mjög mótaðar og ákveðnar skoðanir á því hverju þyrfti að breyta heima á íslandi. Ég komst fljótlega að því að ég fengi engu framgengt nema að vera þátttakandi í pólitík og ég tók slag- inn. Ég hafði ekki verið flokksbundin en las stefnuskrár allra flokkanna og komst fljótiega að því að Sjálfstæðis- flokkurinn var með þá stefnu sem féll best að mínum hugmyndum. Ég trúi á einstaklingsframtakið og gekk því til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Ég fór í pólitík vegna hugmynda til að sjá þær hugmyndir rætast." Á lista Sjálfstæðisflokks Árið 2002 þáði Þorbjörg Helga 16. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins og varð virkurþátttakandi íborgarstjórn- arflokknum. „Björn Bjamason var þá leiðtogi okkar. Hann vildi ffá upphafi stækka þann hóp sem kom að borgarstjórn- armálunum með því að kalla vara- menn til reglulegra funda. Ég naut þess að starfa í þessum hópi og tók þátt í þessu af lífi og sál. Þannig var ég vel undirbúin þegar kom að prófkjöri fýrir kosningarnar árið 2006. Ég náði sjötta sætinu í prófkjöri og var ánægð með þá niðurstöðu." Meirihlutinn var myndaður á mettíma vorið 2006 þegar Björn Ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson náðu saman. Frjálslyndi flokkurinn hafði talið sig eiga aðild að meirihlutanum vissa en skyndilega var orðinn til annar meirihluti. „Þetta gerðist allt mjög snöggt. Okkur var einfaldlega tilkynnt að það væri nýr meirihluti í burðarliðn- um. Við vorum öll ánægð með að vera komin í meirihluta en gerðum athugasemdir við að Framsóknar- flokkurinn fengi heldur mikið í sinn hlut. En þessi hlutföll breyttust smám saman í rétta átt enda komst Bjöm Ingi ekki yfir það einn að sinna öÚum þeim verkefnum sem tfl féllu." Þorbjörg Helga segir að samstarf- ið innan meirihlutans hafi fljótlega gengið vel. Skoðanaskipti voru góð og samstaða um flest mál. „Björn Ingi lagði á það áherslu ffá upphafi að við væmm öll vinir fyrst og síðan samstarfsmenn. Fljótiega varð meirihlutinn eins og vel smurð vél og skoðanaskipti okkar í milli vom góð og talað var út um málin," segir hún. Mönnunarvandi í skólakerfinu Þorbjörg Helga beitti sér fýrst og ffemst fýrir skólamálum og var skip- uð formaður leikskólaráðs. „Reykjavíkurborg stendur frammi fyrir viðvarandi mönnunarvanda. Ég lagði áherslu á að fjölga einkareknum skólum þar sem sveigjanleiki er meiri og mönnunarvandræði ekki eins mik- il. Þá vildi ég ákvarða laun kennara út frá hagsmunum Reykjavíkurborgar því borgin getur til dæmis ekki keppt um húsnæðiskostnað lengur við önn- ur sveitarfélög. Ég vil líka skoða kjör kennara með hæfni að leiðarljósi. Ég tel að það komi kennurum til góða að metin sé hæfrii þeirra tfl verka í stað þess að fólk komist í efsta þrep launa- stigans án þess að þar skipti máli ár- angur. Skoðun mín er sú að úrelt sé að hækka alltaf kennaralaunin jafnt á línuna og því nauðsynlegt að fara nýjar leiðir í þeim efnum. Það eru líka úrræði í núverandi kjarasamningum. Leikskólaráð tók einróma ákvörðun um að taka upp svolkallaðar TV ein- ingar fýrr en áætlað var en það mál náði ekki ffam að ganga í borgar- ráði, því miður. Mér er þetta minnis- stætt því ég var að berjast í þessu þeg- ar REI-málið kom upp. Daginn sem stjómarfundurinn í Orkuveitunni var og okkur var sagt að í raun stæðum við ffammi fyrir orðnum hlut stóð ég upp klökk og benti á að þær breyting- ar sem ég hafði lagt til með launakerfi kennara kostuðu 40 milljónir á ári en þarna hefðum við átt að afgreiða án umræðu mál sem var að verðmæti ríflega 20 milljarðar króna. Þama var ekki verið að fýlgja hugmyndafræði og að mínu mati var forgangsröð- in líka skökk. Mér finnst það dapur- legt að fólk telur hugmyndaffæði ekki vera eins mikilvæga í sveitarstjórn og í landsmálum. Þvert á móti er enn mikilvægara, þó það sé erfitt, að fylgja hugmyndafræðinni í stað þess að láta stöðugt undan þrýstingi frá foreldr- um, húsbyggjendum, nágrönnum eða verktökum. I þeim málaflokkum sem koma tfl kasta sveitarstjórna er mikilvægt að fulltrúar spyrni við fót- um en láti ekki stöðugt undan með því að fallast á sérhagsmuni. Það er mikill þrýstingur á fulltrúum í borgarstjóm og erfitt að standast hann. En ég er í pólitík til þess að láta gott af mér leiða almennt séð en ekki til þess að standa í fyrirgreiðslupólitík sem á að vera lið- in tt'ð. Ég þarf ekki að starfa í stjóm- málum en geri það vegna þess að ég hef brennandi þörf tfl að sjá hugsjónir mínar rætast." Kokkteill og REI Samstarf innan meirihlutans hafði gengið vel í hálft annað ár. Þótt nokk- uð örlaði á því að oddvitamir væm ráðandi vom samskiptin almennt góð. Þorbjörg Helga hafði ekki ff emur en aðrir hugmyndaflug í að sjá fýrir þá atburðarás sem var í vændum haust- ið 2007. „Á borgarstjórnarfundi 2. október var okkur í meirihlutanum sagt að við ættum að mæta á áríðandi fund í Stöðvarstjórahúsinu klukkan sex. Við fengum ekki að vita tilefnið. Þeg- ar þangað kom vom veitingar og vín á boðstólum. Vilhjálmur og Bjöm Ingi tilkynntu okkur síðan að samræður hefðu átt sér stað undanfarna 10 daga varðandi sammna Geysis Green En- ergy og Reykjavik Energy Invest. Þetta kom mjög flatt upp á okkur öll. Við vörpuðum ffam ótal spurningum og það magnaðist upp reiði. Við gerð- um okkur grein fýrir að þama var á ferð rosalega stórt mál sem stríddi gegn hugmyndafræði okkar. Þá vom í málinu fjöldi atríða sem þurftu miklu meiri yfirlegu af okkar hálfu en svo að þau yrðu afgreidd þetta kvöld." Samkoman í Stöðvarstjórahúsinu reyndist ekki sá fagnaðarfundur sem oddvitar flokkanna höfðu vonast tfl. Þar voru mættir Vilhjálmur, Bjöm Ingi og Óskar Bergsson varaborgarftflltrúi. Sexmenningamir í Sjálfstæðisflokkn- um vom mjög ósáttir. „Upplýsingamar sem við fengum vom af skornum skammti. Við gátum ekld fengið verðmat á Geysi Green eða hverjir áttu sum félögin sem þarna komu við sögu. Ég hafði setið í stjóm Orkuveitunnar kjörtímabilið á und- an og þekkti vel tfl mála. Við Júlíus Vífill Ingvarsson kröfðumst þess sér- staklega að fá ítarleg töluleg gögn en ekki var hægt að leggja þau ffam. Það vakti þó athygli mína að Bjöm Ingi virtist hafa aflar tölur um mflljarðana á hraðbergi en Vilhjálmur ekki. Björn Ingi var alltaf þremur skrefum á und- an í þessu máli. Spurt var hvort eitt- hvað skítugt væri á ferðinni en odd- vitamir sögðu svo ekki vera. Síðar átti eftir að koma á daginn að fjöldi ein- staklinga átti að fá stóra kaupréttar- samninga en við vorum ekki látin vita af því. Fundurinn endaði í ósætti og við kröfðumst þess að fá fund daginn eftir þar sem öll gögn yrðu lögð fram." „Við vildum fresta stjórnarfundi Orkuveitunnar þar sem taka átti ákvörðun um samrunann. Oddvit- arnir sögðu slíkt ekki ganga upp og vísuðu til þess að FL Group og bank- amir væm í Kauphöllinni og upp- Iýsingamar viðkvæmar og að Björn Ingi væri á leið til Hong Kong. Okk- ur var gerð grein fyrir því að við hefð- um ekkert um þetta að segja þar sem Orkuveitan lyti sjálfstæðri stjórn en við væmm borgarfulltrúar. Kannski var það barnaskapur af okkur að trúa því. Margir telja reyndar að þessi asi hafi snúist um fjárhagsvandræði FL Group en á fundi félagsins í London átti að leggja fram upplýsingar um þetta fjárfestingarævintýri sem vænt- anlega átti að yfirskyggja vandræði fé- lagsins." Mistök oddvita Daginn eftir var boðað tU fundar innan meirihlutans þar sem átti að leggja fram gleggri upplýsingar um sammnann. „Við upplifðum það ekki þannig að við væmm að fara gegn Vilhjálmi, enda kom slíkt aldrei til greina. Við litum á okkur sem einn hóp þótt ljóst væri að þeir Bjöm Ingi höfðu ekki haft okkur með í ráðum. Fyrir lá að það vom ákveðin mistök oddvitans okkar að við höfðum aldrei rætt málin inn- an borgarstjómarfiokks Sjálfstæðis- flokksins. „Guðmundur Þóroddsson, for-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.