Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008
Sport PV
íslenska landsliðið í handbolta hefur undirbúning
sinn fyrir Evrópumeistaramótið á fjögurra þjóða móti
um helgina. Eftir það verða svo tveir leikir gegn Tékk-
landi hér heima áður en innrásin til Noregs hefst 17.
janúar. Alfreð Gíslason segir sín mál við Bogdan
Wenta útrædd en þeir verði aldrei félagar aftur.
ndirbúningur íslenska
landsliðsins í handbolta
fyrir Evrópumeistaramót-
ið í Noregi sem fer fram
seinna í mánuðinum hefst
um helgina. Landsliðið
tekur þátt í sterku fjögurra
þjóða móti, LK Cup, í Dan-
mörku. Þar verður leik-
ið gegn Pólverjum, Norð-
mönnum og Dönum. Fyrsti leikur liðsins er í
dag gegn Póllandi, á morgun leika strákarnir
svo gegn Noregi og lokaleikurinn verður gegn
gestgjöfum Danmerkur á sunnudaginn.
Alfreð Gíslason var kátur þegar DV náði
tali af honum og sagðist alltaf hlakka til þess
þegar landsliðið kæmi saman eins og allir í
liðinu. Hann sagðist ekki vita hvar liðið stæði
og það væri í mörg horn að líta. „Nú er þetta
allt að fara í gang og eins og í fyrra erum við
að koma í þetta mót nánast án undirbúnings.
Ég veit ekld alveg hvar við stöndum en þessir
leikir eru mikilvægir og góðir til þess að spila
liðið saman," sagði Alfreð.
Landsliðið er í góðu ástandi hvað varðar
meiðsli, sagði Alfreð, sem hafði meiri áhyggj-
ur af litlum spilatíma sumra manna. „Það er
ekki mikið um meiðsli þannig að við erum í
góðum málum hvað varðar þau mál. Sumir
strákanna spila þó ekki mikið með sínum fé-
lagsliðum. Einar Hólmgeirs hefur ekki fengið
mikinn tíma sem og Logi Geirsson og Fúsi. Ég
þarf því að sjá stöðuna á þeim öllum."
Spurður um áheyrslurnar á mótinu sagði
Alfreð að í mörg horn væri að líta varnar-
og sóknarlega. Verði Sigfús Sigurðsson ekki
í standi til að spila vörn og sókn er ekki lík-
legt að hann fari með á mótið. „Það fer eftir
því hvað Guðjón Valur má spila mikið hvem-
ig við útfærum 5+1 vörnina. Hann er ekki al-
heill í öxlinni og ekki víst hvað hann má spila
mikið. Ég prófaði að nota Róbert Gunnars-
son sem fremsta mann gegn Ungverjum
hér heima um daginn og það gekk svona að
hluta til ágætlega.
Gegn Ungverjum gekk best að hafa Vigni
og Sverre saman í miðvörðunum og ég kem
til með að prófa það aftur. Það er samt nokk-
uð ljóst að erfitt verður að taka tvo varnarsér-
fræðinga með á Evrópumótið. Ef Fúsi verður
ekki í standi til að spila sóknina líka er stór
spurning hvort ég geti tekið bæði hann og
Sverre með sem eingöngu varnarmenn.
Sóknarlega þurfum við að rifja upp allt
sem við höfum verið að gera og svo verða
þrjú til fjögur ný atriði sem ég ætla að bæta
við. Þau atriði komast nú ekki í gagnið um
helgina en veröa meira notuð gegn Tékkum
hér heima," sagði Alfreð en ísland leikur tvo
vináttuleiki gegn Tékklandi hér heima 13. og
14. janúar.
Nítján leikmenn voru valdir til Danmerk-
urferðarinnar en Jaliesky Garcia verður ekki
með á mótinu. Hinn ungi Sigurbergur Sveins-
son fer aftur á móti með til Danmerkur og þá
er Alfreð að skoða hina ýmsu kosti til að gefa
Snorra Steini smá hvíld á miðjunni.
„Garcia verður ekki með í Danmerkur-
ferðinni. Hann kemur til landsins 7. janúar.
Þess vegna er ég til dæmis með Sigurberg
inni til að skoða hann betur og svo þarf ég að
sjá í hvaða standi Logi Geirsson er og Arnór
Atlason líka. Garcia er búinn að spila betur
og betur með hverjum leik hjá Grosswalls-
tadt og gæti reynst mikilvægur fýrir okkur
á EM. Svo náttúrulega ef Einar Hólmgeirs
verður eins og hann er bestur get ég allt-
af sett Ólaf Stefáns á miðjuna," sagði Alfreð
sem hefur margt í huga hvað varðar miðju-
stöðuna.
„Eins og staðan er í dag er Snorri Steinn
miðjumaður númer eitt. Á því leikur enginn
vafi. En það koma nokkrir til greina að leysa
þá stöðu líka og þar eru það helst Arnór Atla,
Óli Stef og jafnvel Guðjón Valur. Þetta eru
svona þau atriði sem ég þarf að skoða hvort
sé hægt að gera en mikið af þessu ræðst
af því hvort Einar Hólmgeirs verður heill.
Langflestar stöðurnar eru alveg pottþéttar
en hvernig endanlegt lið verður ræðst í þess-
um næstu fimm leikjum."
Alfreð segist ekki pæla mikið í því að
vinna á mótinu en segir mikilvægt fyrir
sjálfstraustið að spila vel. „f fyrra komum
við inn í þetta sama mót og fengum stóran
skell gegn Norðmönnum. Framhaldið af því
var samt mjög gott. Ég er ekkert að endilega
að stefna á að sigra á þessu móti þótt það sé
að sjálfsögðu mikilvægt fyrir sjálfstraustið að
spila vel. Það er mikilvægt að nota þetta mót
til að berja gömlu og nýju hugmyndirnar inn
í strákana og geta svo sýnt árangurinn gegn
Tékkunum hérna heima."
Leiðinleg uppákoma varð á heimsmeist-
aramótinu í Þýskalandi á síðasta ári þegar
Alffeð og Bogdan Wenta, þjálfari Pólverja,
rifust harkalega eftir leik þjóðanna. Alfreð
sagði Wenta hafa verið að bera lygasögur af
sér og þetta mál sé svo sannarlega geymt en
ekki gleymt. „Við verðum aldrei félagar aftur.
Hann fór yfir strikið en við höfum rætt mál-
in aðeins og það er svo sem allt búið á milli
okkar. Við munum takast í hendur á mótinu
vissulega en við förum aldrei í frí aftur sam-
an," sagði Alfreð að lokum í léttum dúr.
tomas@dv.is