Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Síða 35
DV Sport FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 35 Liverpool vel og það er okkar hlutverk að reyna að stoppa hann. Ronaldo er þannig leikmaður að alltaf þegar hann fær boltann virðist hann geta gert eitthvað við hann og búið til færi eða skorað sjálfur. Hann er sennilega einn af fáum leikmönnum í dag sem geta klárað leiki upp á eigin spýtur. Skemmtilegasti völlurinn að spila á er Old Trafford. Ég er búinn að halda með Manchester United frá því að ég var lítill polli og það var mjög sérstakt fyrir mig að spila þar. Einnig er gaman að koma á Anfleld." Markmiðunum náð Brynjar spilaði í þrjú ár í Noregi og Svíþjóð áður en hann hélt til Englands. Hann segist afar ánægður með ferilinn. „Ég setti mér það markmið í upphafi að ná sem allra lengst þótt ég hafi ekki einsett mér að spila í einhverri sérstakri deild. í fyrstu hélt ég kannski að maður myndi ganga inn í lið í Noregi og fara síðan eitthvað lengra fljótíega eftir það, en það var ekki alveg þannig. Síðan þegar ég fór til Stoke í aðra deildina setti maður sér ný markmið um að reyna að vinna sig upp stig af stigi upp um deildir. Það má kannski segja að það hafi tekist. Landsliðið Brynjar hefur spilað 57 leiki með íslenska landsliðinu og hann hefur fulla trú á því að bjartari tfmar komi brátt. Fram undan er undankeppni HM og Brynjar segir liðið staðráðið í að standa sig þar. „Ég er alltaf bjartsýnn fýrir hönd landsliðsins. Nú hefst nýtt mót og þú átt alltaf möguleika þegar flautað er til leiks. Við verðum að gefa okkur sem bestar forsendur og bestu möguleika til þess að reyna að ná stigum úr þeim leikjum þegar við teljum okkur eiga möguleika. Mér finnst kröfurnar ekki of miklar á landsliðið. Menn vita alveg hvar við stöndum og það verður aldrei nein sérstök krafa á það að við komumst á lokamót í stórri keppni. En við getum alveg gefið okkur ágætis möguleika á því að ná upp að þriðja sæti í riðlinum. Það eru yfirleitt tvö lið sem eru yfirburðalið í þeim riðli sem við erum í. Ef það er einhver krafa ætti hún að vera sú að við náum þriðja til fjórða sæti. Ég er alltaf jafnstoltur að spila með landsliðinu. Þar fékk maður ákveðinn stökkpall tíl þess að komast út og maður má aldrei vanmeta það að spila með landsliðinu. Það hefur ýmislegt breyst frá því ég byrjaði að spilameð landsliðinu. Þegar ég var að byija voru enn mjög margir KRÚTTLEGUR í GULU Brynjar Björn er hér í leik með Watford. að spila heima. En svo gerðist það að menn fóru að fara utan að spila með liðum í Evrópu. Það ætti í rauninni að vera þannig að við styrkjumst um leið og leikmenn eru klárlega í betra líkamlegu ásigkomulagi. Við erum ekki endilega með hæfi- leikaríkara lið í dag en við vorum með. Við vorum með mjög hæfi- leikaríka leikmenn á borð við Rún- ar (Kristinsson) og Arnór (Guðjohn- sen). Við söknum slíkra manna að vissu leyti. Vissulega er Eiður enn að spila með okkur og hann er okkar tæknilega hæfileikaríkasti leikmað- ur. Engu að síður held ég að við höf- um haft fleiri afgerandi leikmenn fyrir svona tíu árum." Frakkaleikurinn eftirminnilegastur Brynjar segir leikinn við Frakka úti í París árið 2000 vera eftirminni- legasta leikinn á ferlinum. íslendingar töpuðu 3-2 í hörkuleik og minnstu munaði að liðið hefði komið í veg fyrir að heimsmeistarar Frakka kæmust á Evrópumótið árið 2000 sem þeir unnu. „Ég skoraði FRAKKALEIKURINN FRÆGI Brynjar glímir hér við Youri Djorkaeff í frægum landsleik við Frakka árið 2000. jöfnunarmark í þeim Ieik og þó að við höfum tapað þessum leik var þetta engu að síður gríðarlega eftirminnilegur leikur. f markinu sendi Eiður bolta inn fyrir vömina og við Rúnar (Kristinsson) vorum báðir að reyna að fara í boltann. Minnstu munaði að við hefðum náð að klúðra því að komast í boltann í öllum æsingnum, en ég náði að pota í boltann og senda hann framhja Bernard Lama í markinu. Eftir markið vissi maður ekki alveg hvað maður átti að gera. Allt í einu vorum við búnir að jafna gegn Frökkum á útivelli eftir að hafa verið 2-0 undir. Markmið Núna er farið að síga á seinni hlutann á ferlinum og hér eftir er markmiðið að njóta þess sem mest að spila hvern leik. Nánasta markmið er að halda sér í deildinni og ef ég næ að spila áfram í ensku úrvalsdeildinni væri það frábært. Ef við náum að halda okkur þar jafnvel annað tímabil með ekki stærra lið en Reading er mætti segja að það sé ótrúlega góður árangur. Ég væri mjög sáttur ef það tækist. Ég hef alltaf jafngaman af boltan- um. Mér finnst þetta skemmtilegra því lengur sem ég er í boltanum og þar sem maður á kannski einungis 3-4 ár eftir í boltanum ætla ég að reyna mitt besta að lifa fýrir hvern dag. Það kemur vel til greina að spila á fslandi eftir atvinnumannaferil- inn. Maður einbeitir sér að stutt- um tímabilum í einu og ég get ekki útilokað neitt í framtíðinni. Hvort maður hætti alveg eða spili heima í eitt ár verður að koma í ljós Að lokum langar mig að óska öll- um gleðilegs nýs árs og ég þakka fýrir þau gömlu, taki þeir til sín sem vilja," segir hinn skeleggi Brynjar Björn Gunnarsson að lokum. vidar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.