Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008
SÍOast en ekki slst DV
VIKUNNAR
Björgunarsveitarmenn á öllu
landinu fá fullt hús stiga. I lok slöasta
árs þurftu þeir hvað eftir annað að
yfirgefa vinnu og fjölskyldu til að
leggja sitt fram í snörum viðbrögðum
við óveðri og slysum. Einnig hafa
nýliðar sýnt sinn kraft í sölu á jólatrjám
og flugeldum. Fyrsti sorglegi
aburðurinn á nýju ári leiðir það í Ijós að
við þurfum svo sannarlega á þessu
vaskafólkiað halda.
Kaupendur flugelda fá þrjár
stjörnur fyrir að styrkja björgunar-
sveitir víðs vegar um landið.
Sveitirnar voru orðnar vonlitlar um að
ná góðri sölu á flugeldum vegna
óveðurs sem búið var að spá. Þegar
líða tók á gamlársdag vænkaðist hins
vegar hagurinn og náðist jafngóð sala
og I fyrra. Alls seldust 500 tonn af
flugeldum og ________________________
algengt varað sölurhljóðuðu uppá hundrað 4
þúsund krónur.
Sveitirnar hafa
fengið góðan styrk.
★★★
Margrét Lára Viðarsdóttir
knattspyrnukona fær stjörnurnar tvær
fyrir að fá loksins viðurkenninguna
sem hún á skilið. Hún var valin
íþróttamaður ársins 2007. Margrét er
landskunn knattspyrnukona sem
spilar með Val. Hún hefur sýnt
framúrskarandi hæfileika á undan-
förnum árum. Mörgum þótti tími til
Forsetl fslands fær stjörnu fyrir að
tilkynna að hann ætli að gefa kost á
sértil áframhaldandi setu. Skipst hafa
á skin og skúrir í samskiptum hans við
ríkisstjórnina og Alþingi en hann
læturengan bilbug á sérfinna. Næsta
kjörtfmabil yrði hans fjórða tímabil
eða jafnmörg tímabil og Vigdfs
Finnbogadóttir og Ásgeir Ásgeirsson
gegndu forsetaembættinu.
SKÍTKALT EN GAMAN
AÐLEIKAÍSKAUPINU
Jón Jósep Snæbjörnsson
söngvari er orkubolti af guðs náð. Á
árinu ætlar hann sér að semja fleiri lög
og vera betri maður en í fyrra. Jónsa
fannst Skaupið ofboðslega fyndið og
var ánægður með hversu fá pólitísk
söngatriði voru í því.
Hver er maðurinn?
„Jón Jósep Snæbjörnsson, geng
undir nafninu Jónsi."
Hvað drífur þig áfram?
„Þessa dagana eru það leifarnar
af jólamatnum."
Hver eru þín áhugamál?
„Tónlist. Ég hef engan tíma fyrir
annað."
Hverjar eru þínar fyrirmyndir?
„Gunnar Karl úr Vestmannaeyj-
um og Jóhann Þorsteinsson æsku-
lýðsfulltrúi frá Akureyri. Báðir hafa
sýnt mér það að allir vegir eru færir
og eru báðir frábærar fyrirmyndir."
Hver er skrautlegasti karakter
sem þú hefur kynnst?
„An efa er það Bjarni Ármanns-
son. Hann er sko ekki allur þar sem
hann er séður og er orkubolti af guðs
náð, líkt og ég."
Hvaða lýsingarorð lýsir þér best?
„Kraftmikill."
Hafðir þú það gott yfir hátíðirn-
ar?
„Ég hafði það hreinlega of gott og
kunni mjög vel að meta allt það sem
ég borðaði."
Hvernig var árið 2007?
„Gjöfult, skemmtilegt og æðis-
legt."
Hverju viitu spá fyrir árið 2008?
„Ég held að það verði ennþá betra
en 2007."
Stengdir þú áramótheit?
„Ég ætla að semja meira af lögum
á þessu ári og vera betri maður en ég
var á síðasta ári."
Hvernig var að leika í Áramóta-
skaupinu?
„Það var svakalega kalt en ofboðs-
lega gaman."
Hvernig fannst þér Skaupið?
„Það fannst mér ofboðslega fynd-
ið. Það náði að vera spéspegill þjóð-
arinnar og ég var mjög feginn að það
hafði aðeins eitt söngatriði að geyma.
Ég er ekki mikill revíumaður og sér-
staklega ekki ef lögin eru öll mjög
pólitísk. Það er miklu skemmtilegra
að gera grín að Tíu litlum negrastrák-
um og alræmdum flugfreyjum."
Hvern sérðu fyrir þér sem
fulltrúa íslands í Eurovision-
söngkeppninni?
„Sökum anna hef ég ekki náð að
fylgjast með Laugardagslögunum og
hef því ekki myndað mér skoðun á
þessu. Hins vegar óska ég viðkom-
A/IAÐUR
DAGSINS
andi góðs gengis."
Hvar verður Jónsi í lok ársins
2008?
„Ég veit það eiginlega ekki, að
minnsta kosti verð ég 362 dögum
eldri."
SAXDKORN
■ Meðal þeirra íslensku kvik-
mynda sem frumsýndar verða
á árinu er kvikmynd Ólafs Jó-
hannessonar, Stóra planið. Er
það Pétur Jóhann Sigfússon
sem fer með
aðalhlutverk
myndar-
innar sem
fjallar um
handrukkara
sem lendir
í hremm-
ingum, með
kung-fu-
keim. Myndin verður vonandi
frumsýnd í mars, en er nú unn-
ið hörðum höndum að því að
hljóðsetja hana. Meðal þeirra
sem eiga tónlist í myndinni er
plötusnúðurinn og upptöku-
stjórinn Danni Deluxxx, en
hann mun eiga tvo takta í mynd-
inni.
■ Kvikmyndagerðarkonan Anna
Th. Rögnvaldsdóttir, sem gerði
meðal annars Allir litir hafsins
eru kald-
ir, talar um
nýja þátt-
inn Pressa
á bloggsíðu
sinni. Anna
berþætt-
inum vel
sögunaþó
hún nefni
að hann beri þess merki að
hafa verið tekinn upp í mikilli
tímaþröng. Anna er þó ekki eins
ánægð með auglýsingarnar sem
Stöð 2 setti inní miðjan þáttinn
sem hún telur vera ólöglegt sam-
kvæmt útvarpslögum síðast þeg-
ar hún vissi. Anna fer fram á að
mótuð sé stefna í þessum mál-
um því eigi að vera auglýsingar
í þáttum þarf handritið og upp-
bygging þeirra að gera ráð fýrir
því en ekki að auglýsingunum sé
bara skellt einhvers staðar inn.
■ Fjórum íslenskum hljóm-
sveitum og tónlistarmönnum
hefur verið boðið að koma ff am
á Eurosonic-tónlistarhátíðinni
sem fram fer
í Groningen
í Hollandi
dagana 10.
til 12. janúar.
Hljómsveit-
irnar sem
um ræðir
eru: Blood-
group, Jak-
obínarína, Ólafur Arnalds og
Mugison. Hátíðin er mikilvæg
bæði vegna þess að þarna eru
saman komnir bókarar frá öllum
helstu tónlistarhátíðum Evrópu
jafnframt því sem ríkisútvarps-
stöðvarnar í Evrópu standa að
sameiginlegum útsendingum ffá
hátíðinni. Hér er því á ferðinni
frábært tækifæri fýrir íslensku
sveitirnar.
Strekkingsvindur
„ Að loknu blautasta ári I Reykjavík frá 1921 þætti
nu einhverjum tímabært að liann færi að stytta
upp og aðrir Evrópubúar fengju einhvern skerf
af rigningu lægðanna," segir Einar Sveinbjörns-
son veðurfræðingur.„Þeim hinum söntu verður
að einhverju leyti að ósksinni, en ekki fyrren eftir
helgi.Vætutíðinverðurframásunnudag meira
viðloðandi Suðausturland og Austfirði fremur en
aðra landshluta.Áfram strekkingsvindurá
landinu, einkum á laugardag, og hitinn klárlega
ofan frostmarks á láglendi. Á sunnudag er hins
vegar ekki loku fyrir það skotið að snjóað gæti
vestan til um leið og heldur kaldara loft nær til
landsins úr suðvestri. Sú úrkoma gæti allt eins
verið slydda, fer eftir þvl hvorum megin
frostmarksins loftið verður á endanum. Eftir helgi
er ekki annað að sjá en að það kolni með
norðaustlægri vindatt. En engar vetrarhórkur eru
í kortununum, sem betur fer, aðeins örlitill
hrollur í heldur vægu frosti. Vetrarrikið er að
þessu sinni hvað mest með austurströnd N-
Ameríku og hætt er við að oliuverð haldist hátt á
heimsmarkaði a meðan ekki hlýnar.
AustanviðokkurámeginlandiEvrópu
er engan veginn liægt að segja að
eðlilegur vetur ríki fyrr en koniið er
langtausturiRússland."
Emar Sveinujórnsion,