Peningamál - 01.02.2002, Blaðsíða 29
28 PENINGAMÁL 2002/1
Vísitala gengisskráningar
Vísitala gengisskráningar var 120,8381 stig í lok árs
2000 en 141,7985 stig í lok árs 2001. Hún hafði því
hækkað um 17,35% og krónan því veikst um 14,78%.
Vísitalan var hæst skráð 151,1638 stig 28. nóvember
og lægst 5. febrúar, 120,9555 stig.
Velta á gjaldeyrismarkaði
Velta á gjaldeyrismarkaði á árinu 2001 var 1.218
ma.kr. samanborið við 768 ma.kr. árið á undan. Með-
fylgjandi tafla sýnir meðalveltu á dag miðað við hin
ýmsu tímabil innan ársins. Verðbólgumarkmið var
tekið upp 28. mars og þóknunarkerfi var tekið upp á
gjaldeyrismarkaði 1. júlí. Nokkurt umrót varð á gjald-
eyrismarkaði í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjun-
um 11. september.
Taflan sýnir að meðalvelta á dag jókst eftir að verð-
bólgumarkmið var tekið upp. Meðalvelta á dag lækk-
aði eftir að þóknunarkerfið var tekið upp. Hins vegar
má velta því fyrir sér hvort ástæðan sé sú að mesti
hrollurinn hafi verið farinn úr markaðnum eftir að
verðbólgumarkmiðið var tekið upp eða hvort sumar-
leyfi, þóknunarkerfi eða yfirlýsingar um erlenda lán-
töku ríkisins í lok júní hafi haft áhrif. Í kjölfar
atburðanna í Bandaríkjunum í september jukust
viðskipti töluvert á ný. Mest viðskipti á einum degi
voru 2. maí. Þá var veltan 36,3 ma.kr. sem er mesta
velta á einum degi frá stofnun gjaldeyrismarkaðar.
Þóknun
Þóknunarkerfið var tekið upp 1. júlí sl. og er viðskipta-
vökum greidd þóknun ársfjórðungslega. Greidd þókn-
un verður í mesta lagi 100 m.kr. í heild á ársfjórðungi.
Þóknun er greidd fyrir að setja fram kaup- eða sölu-
tilboð í Bandaríkjadal sem aðrir viðskiptavakar sjá sér
hag í að nýta. Þóknunarkerfið á því að virka letjandi á
þá sem eru að hugsa um að fara inn á markaðinn til að
nýta sér verð annarra markaðsaðila og draga úr
líkunum á spíralamyndun. Reiknuð heildarþóknun
varð hærri en 100 m.kr. bæði á 3. og 4. ársfjórðungi
2001 og var henni því skipt hlutfallslega á milli
markaðsaðila. Reiknuð heildarþóknun fyrir síðari
helming ársins var tæplega 357 m.kr.
Gengisflökt
Gengisflökt sýnir staðalfrávik dagsbreytinga vísitöl-
unnar. Flöktið jókst verulega eftir að verðbólgumark-
mið var tekið upp en minnkaði á ný eftir 1. júlí, þó ekki
í fyrra horf. Þetta er í nokkru samræmi við veltu á
gjaldeyrismarkaði. Gengisflökt tvöfaldaðist á milli ára
síðustu þrjú árin.
Rammi 1 Yfirlit gjaldeyrismarkaðar fyrir árið 2001
Tafla 1 Meðalvelta á dag skipt niður á tímabil
Meðal- Hækkun
velta gengis-
Velta Fjöldi á dag vísitölu
Frá Til (m.kr.) daga (m.kr.) (%)
3.1.2001 27.3.2001 116.677 61 1.913 1,91
28.3.2001 29.6.2001 550.015 60 9.167 10,73
1.7.2001 11.9.2001 120.817 51 2.369 -0,11
12.9.2001 31.12.2001 431.731 76 5.681 2,05
28.3.2001 31.12.2001 1.101.368 187 5.890 11,67
1.7.2001 31.12.2001 551.353 127 4.341 1,93
3.1.2001 31.12.2001 1.218.045 248 4.911 16,89
Tafla 2 Gengisflökt
Valin tímabil á árinu 2001
Staðalfrávik
1. janúar-27. mars 0,20%
28. mars-30. júní 1,14%
1. júlí-11. september 0,41%
12. september-31. desember 0,71%
Síðustu 3 ár
Staðalfrávik
1999 0,17%
2000 0,35%
2001 0,72%