Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 3

Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 3
GLÓÐAFEYKIR Félagstíðindi Kaupfélags Skagfirðinga 14. HEFTI • NÓVEMBER 1973 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Magnússon i Eyhildarholti. Tobias Sigurjónsson Eftir að þetta hefti Glóðafeykis var fullbúið til prentunar barst mér, snemma morguns hinn 24. ágúst sl., sú harmafregn, að for- maður Kaupfélags Skagfirðinga, Tobías bóndi Sigurjónsson í Geld- ingaholti, hefði látizt snögg- lega kvöldið áður, þann 23. dag ágústmánaðar. Mér féllust hendur. Fáum dögum áður hafði ég setið með honum á fundi, heilum og hraustum. Nú var hann allur. Tobías Sigurjónsson var fæddur að Geldingaholti þ. 10. október 1897 og átti þar heima mestalla ævi. Voru for- eldrar hans sæmdarhjónin Sigurjón bóndi í Geldinga- holti Helgason og Sigrún Tobíasdóttir, hálfsystir Bryn- leifs menntaskólakennara. Tobías var þess konar mað- ur að gáfum og gerð, að á hann hlutu að hlaðast marg- vísleg trúnaðarstörf. Ungur hóf hann afskipti af félagsmálum og víst er um það, að samvinnu- stefnan eignaðist traustan og óhvikulan forvígismann, þar sem hann LANOGUGKAGAFN : 312611 Tobías Sigurjónsson, Geldingaholti. i r i a m n •?

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.