Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 8
8
GLÓÐAFEYKIR
með virkri þátttöku í atvinnuuppbyggingunni. Þan hafa á liðnum
árum aukið jafnvægi í byggð landsins. Á það skal minnt nú, þegar
aukinn skilningur virðist hafa vaknað fyrir byggðaþróun.
Og kaupfélögin eru fólkið, þegar það tekur höndum saman.
En þegar saga samvinnufélaganna er skoðuð kemur greinilega í
ljós, að misjafnlega hefur tekizt til að láta þessi samtök fólksins
njóta sín. Ýmislegt hefur þar kontið til. Þó mun vart verða á móti
því mælt, að gengi og hagsæld hvers kaupfélags hefur verið rneira
undir því komið en flest annað, að traustur og atorkusamur kaup-
félagsstjóri hafi haldið um stjórnvölinn.
Kaupfélag Skagfirðinga er eitt þeirra félaga, sem notið hefur
rnikils trausts, bæði í héraði og utan héraðs. Engu leyndarmáli er
ljóstrað upp, þótt frá því sé skýrt, að á afmælisári samvinnuhreyf-
ingarinnar 1972, þegar Sveinn Guðmundsson lét af starfi kaupfélags-
stjóra K. S., var kaupfélagið í röð þeirra sambandsfélaga, ef ekki
fremst í flokki, sem traustasta höfðu fjárhagsstöðu.
Hér hefur að sjálfsögðu margt hjálpazt að og þá ekki sízt gifta
kaupfélagsstjóra.
Sveinn Guðmundsson gegndi starfi kaupfélagsstjóra í K. S. frá
1946—1972, en hann hafði áður verið kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Hallgeirseyjar (nú Kaupfélag Rangæinga), Hvolsvelli, frá 1941 —
1946.
Við Sveinn Guðmundsson unnum saman í samvinnuhreyfingunni
frá árinu 1946. Hann var þá að taka við kaupfél^gsstjórastarfi K. S.
02' é°' var að undirbúa stofnun Samvinnutryoginoa. Samstarf okkar
stóð í 26 ár, ég var 9 ár framkvæmdastjóri Samvinnutrygginga og
síðan forstjóri Sambandsins. Þessi störf mín í samvinnuhreyfing-
unni og þá sérstaklega forstjórastarfið í Sambandinu, hafa gert mér
kleift að kynnast allnáið störfum þeirra, sem veitt hafa kaupfélög-
unum forstöðu.
Það vakti fljótlega athygli mína, hve kanpfélagsstjórinn á Sanðár-
króki var traustur og gæddur miklum stjórnunarhæfileikum; Þar
voru ekki tekin nein gönuhlaup. Þekking kaupfélagsstjórans á fjár-
málum og tilfinning fyrir því, að reksturinn varð að skila tekju-
afgangi, ef félagið átti í framtíðinni að verða hinn sterki burðarás
héraðsins, var hin mikla kjölfesta starfsins. Árangurinn kom svo
fram í sterkri fjárhagsstöðu félagsins og félagið gat byggt upp eigið
fé jafnframt því að greiða hagstætt verð fyrir landbúnaðarafurðir
og endurgreiða félagsmönnum ríflegan tekjuafgang.
Sveinn Guðmundsson sá ríkulegan árangur af starfsemi Kaup-