Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 9

Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 9
GLÓÐAFEYKIR 9 félags Skagfirðinga. En á bak við góðan árangur er venjulega gott og mikið starf og því má slá föstu, að það hefur ekki verið og er ekki létt verk að vera kaupfélagsstjóri á íslandi. Verkið er ekki aðeins erfitt og erilsamt, heldur oft á tíðum vanþakklátt. A vegi kaupfélags- stjóra geta verið mörg ljón. Halda verður fast um fjármálin og nokkur hætta er á því, að menn láti undan síga og afli sér stundar \insælda með óeðlilegum lánafyrirgreiðslum til viðskiptamanna. Miklar kröfur eru gerðar til félaganna um atvinnuuppbyggingu. Sölulaun í smásöluverzlun hafa verið skorin svo við nögl af opin- berri hálfu, að mörg félög úti á landsbyggðinni hafa lent í miklum erfiðleikum. Þá má ekki gleyma fleygunum, sem víða átti að beita af pólitískum spekúlöntum til þess að kljufa samvinnufélögin. A vegi Sveins Guðmundssonar sem kaupfélagsstjóra voru mörg ljón, en honum tókst að stýra fram hjá ljónagryfjunum. Það kostaði þó ekki sjaldan óvinsældir um stundarsakir. Sem kaupfélagsstjóri veitti hann félagsmönnum fjárhagslega fyrirgreiðslu, innan þess ramma sem fjárhagsgeta kaupfélagsins leyfði. En hann varð stund- um að segja nei. Hann beitti félaginu í atvinnuuppbyggingu í hér- aðinu innan skynsamlegra marka. Með hjálp kaupfélagsins byggðu bændur upp jarðir sínar, juku ræktun og bústfon og á Sauðárkróki veitti félagið húsbyggjendum aðstoð með lánsviðskiptum á bygging- arefni. Og þannig mætti lengi telja. Hinn trausti fjárhagur kaup- félagsins var hin farsæla undirstaða framfaranna. Sveinn Guðmundsson getur með ánægju litið yfir kaupfélags- stjóraferil sinn. Hann hefur séð ríkulegan árangur starfsins. Hann hefnr séð kaupfélagið eflast með ári hverju og verða sífellt sterkari burðarás efnahagslífsins í Skagafirði. Fyrir hin gifturíku störf eru Skagfirðingar honum þakklátir. Ég ítreka þakkir samvinnuhreyf- ingarinnar um leið og ég étska Sveini og fjölskyldn hans alls hins bezta í framtíðinni og ég vona, að hann eigi enn eftir í nokkur ár að starfa fyrir samvinnuhreyfinguna að nýjum verkefnum. Hinum nýja, unga og áhugasama kaupfélagsstjóra K. S., Helga Rafni Traustasyni, óska ég gæfu og gengis í framtíðinni. Erlendur Einarsson.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.