Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 14
14
GLÓÐAFEYKIR
Ur skýrslu framkvæmdastjóra
á aðalfundi K. S. 1973.
Á miðju síðasta ári urðu kaupfélagsstjóraskipti hjá félaginu, en þá
lét Sveinn Guðmundsson af störfum eftir 26 ára farsælt forystustarf.
Á þeim tíma, er Sveinn var kaupfélagsstjóri K. S., óx það og dafnaði
ár frá ári, nýjar starfsgreinar voru teknar upp og fjöldi starfsmanna
óx jafnt og þétt. Viðskiptasvæðið stækkaði. er K. A. S. H. sameinaðist
K. S.
Árferði.
Sl. ár var tiltölulega mjög hagstætt héraðinu. Vorið var mjög gott,
lambalíf með bezta móti, heyskapur gekk afburða vel. þ\ í að spretta
var góð. Heyforði á haustnóttum hefur því aldrei verið meiri. Aftur
á móti mun sjávarafli, sem barst til frystihúsanna á Sauðárkróki og
Hofsósi, samanlagt hafa orðið nokkuð rninni en árið á undan. Kjöt-
innlegg óx á árinu, svo og mjólkurinnlegg til samlagsins.
Félagsmenn og fulltrúar á aðalfundi.
Félagsmenn í árslok 1972 voru 1.356. í félagið gengu á árinu 58,
o o o O
en burtfluttir 35 og dánir 17, þannig að aðeins fjölgaði félögum um
6 á árinu. A framfæri félagsmanna, að þeim sjálfum meðtöldum, eru
3.119 manns. íbúar í Skagafirði voru 1. des. 1972 4.040. og hafði
fækkað frá fyrra ári um 27.
Á aðalfundi féla gsins eiga sæti 53 fulltrúar úr deildum. auk 13
deildarstjóra, en auk þess hefur stjórnin, endurskoðendur og kaup-
félagsstjóri atkvæðisrétt á aðalfundi, eða samtals 76 manns.
Fastráðnirstarfsmenn og launagreiðslur.
Um sl. áramót voru fastráðnir starfsmenn 145 og hafði fjölgað um
24 á árinu. Kaupfélagið og fyrirtæki þess greiddu á árinu um 89.6
millj. kr. í vinnulaun, þar af greiddi Fiskiðjan 15.6 millj.; að auki
hafa verið greiddir launaskattar um 10.7 millj., og eru því heildar-