Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 18
18
GLOÐAFEYKIR
Úr vinnusal nýja sláturhússins. Sláturhúsið tók til starfa þriðjud. 1S. seþt. 1973.
Ég tel að full ástæða væri til að höfða prófmál til þess að fá úr
þessu skorið — og því fyrr, því betra. Sambandið og kaupfélögin
ættu að reka slíkt mál sameiginlega, þótt aðeins eitt kaupfélag ræki
málið fyrir dómstólum.
Hagur viðskiptamanna.
Hagur viðskiptamanna gagnvart félaginu hefur batnað nokkuð á
síðasta ári, þegar litið er á heildina. Miklar fjárfestingar hafa verið
hjá bændum. Sala K. S. á búvélum og tækjum nam 12.5 millj. kr.
og hafði aukizt um 57% frá árinu 1971. Byggingaframkvæmdir hafa
verið töluvert miklar svo og margvíslegar fjárfestingar aðrar.
í Innlánsdeild voru um áramót 73.6 millj. kr., hækkun frá fyrra
ári um 11 milljónir. Inneignir í viðskiptareikningum voru 49.1
millj. kr. og höfðu hækkað um 10.9 millj. Hins vegar námu skuldir
í viðskiptareikningum alls 45.8 millj. kr. og höfðu hækkað um 6.8
millj.
Verðbréfaeign um sl. áramót var rúmlega 4 millj. kr., og eru það
aðallega bréf vegna lausaskulda bænda, er breytt hefur verið í föst
lán.
Þegar þessir liðir eru allir teknir saman, kemur í ljós, að hagur