Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 51

Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 51
GLÓÐAFEYKIR 51 fæst því aðeins, að vinnan sjálf verði hluti af henni, að hún reyni á líkamlega og andlega hæfileika fólks, að hún veki skapandi öf 1 manna, tendri ímyndunarafl þeirra, fái þá til að einbeita kröftum sínum. Einnig á þessu sviði verður velferðin, hin andlegu sjónarmið, að koma í stað kaldra hagfræðilögmála.“ Sigurður Markússon, framkvœmdastjóri: „Saga íslenzkra sveita er í rauninni persónusaga. Hún er saga þeirra manna, sem með varðstöðu sinni á ýmsum sviðum þjóðlífsins hafa lagt sitt af mörkum til þess að gera landið betra, fegurra. Ævi- starf þeirra er uppistaðan í vef sögunnar, eins og hún gerist á hverj- um tíma. Án þeirra yrði engin saga. Án þeirra mundi dreifbýlið leggjast í auðn.“ Snorri Sigfússon: „Það er órækt í því aldarfari, sem gleymir að þakka það sem vel er gert.“ Sr. Sigurbjörn Einarsson, biskup: „. . .En sá einn gengur á vit framtíðar, sem man og metur gengin spor.“

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.