Glóðafeykir - 01.11.1973, Síða 57
GLÓÐAFEYKIR
57
var trygglunduð og vinföst, gædd mikilli skapfestu, miklu þreki,
andlegu og líkamlegu, valinkunn sæmdarkona.
Guðvarður Sleinsson, fyrrum bóndi á Kleif á Skaga og víðar, lézt
þ. 31. janúar 1965. — Hann var fæddur í Kleifargerði á Skaga 10.
sept. 1891. Voru foreldrar hans Steinn Vigfússon og Ingibjörg Guð-
varðardóttir, ættuð tir Fljótum. Mun Guð-
varður lítt liafa verið samvistum við for-
eldra sína á æskuárum, en alizt upp að
mestu hjá vandalausum á ýmsum bæjum í
Skefiisstaðahreppi, þar sem hann dvaldisi
fram yfir tvítugsaldur. Hann stofnaði heim-
ili í Reykjavík árið 1921, en hvarf þaðan
lil Sauðárkróks 1926. Árið 1935 flutti hann
svo aftur út í Skefilsstaðahrepp, fyrst að
Hvammi og síðan að Selá, jrar sem hann bjó
1936—1943. F.ftir það fór hann byggðum
suður á land og dvaldist þar á ýmsum stöð-
um unz hann hvarf aftur hingað norður í
átthagana, hóf búskap á Kleif 1954 og bjó þar til 1962, er hann brá
búi, fór til barna sinna og dvaldist hjá þeim til skiptis það sem eftir
var ævinnar.
A dvalarárum sínum syðra, bæði fyrr og síðar, stundaði Guðvarð-
ur sjómennsku, var jafnan vélstjóri hin síðari árin. ,,Þá var hann og
einn af fyrstu bílstjórum í Skagafirði og kom með fyrsta vörubílinn
til Sauðárkróks árið 1926. Stundaði hann akstur á þeim bíl árin, sem
hann var búsettur þar.“ (Gunnst. Steinsson).
Guðvarður var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigurbjörg Helga-
dóttir frá Isafirði. Hún dó úr spænsku veikinni 1918, eftir mjög
skamma sambúð þeirra hjóna. Þau áttu ekki börn. Seinni kona Guð-
varðar var Bentina Þorkelsdóttir, ættuð úr Reykjavík. lJörn þeirra
eru 13: Þorkell, bílstjóri í Reykjavík; Halldóra, lnisfreyja í Hafnar-
firði; Mikael, bílstjóri í Hafnarfirði; Gyða, húsfreyja á Hvalnesi á
Skaga; Maria, húsfreyja í Reykjavík; Pétur, bóndi í Hólakoti á
Reykjaströnd; Jónas, listmálari, búsettur í Hafnarfirði; Gunnar,
bóndi á Skefilsstöðum á Skaga (drukknaði 8. maí 1973); Sigurbjörg,
húsfreyja í Reykjavík; Stella, húsfreyja í Reykjavík; Erla, húsfreyja
í Lágmúla á Skaga; Jóhannes, sjómaður í Stykkishólmi, Gerður, hús-
freyja á Akureyri.
Dóttur átti Guðvarður milli kvenna, Guðrúnu, húsfreyju í
Guthmrður Strinsson