Glóðafeykir - 01.11.1973, Qupperneq 60
60
GLÓÐAFEYKIR
Árni óx upp í foreldrahúsum ásamt með einkasystur sinni. Tók
við búi í Hólkoti 1932 og bjó þar allt til sjötugsaldurs, er hann
flutti til Sauðárkróks. Efnin voru lítil framan af árum, en glæddust
vel, er fram liðu stundir. Árni hafði lítið
bú en gagnsamt, fór ágætlega með allar
skepnur. Hann var hirðumaður og spar-
samur, þrifuaður slíkur í allri umgengni,
að fágætt má telja.
Árið 1920 kvæntist Árni Sigurbjörgn
Hálfdanardóttur, verkamanns á Sauðár-
króki, Kristjánssonar bónda á Hugljótsstöð-
um, fónssonar, og konu hans Ingunnar
Magnúsdóttur. Þau slitu samvistum. Börn
þeirra 5 komust öll upp: Ingunn, húsfreyja
í Reykjavík; Guðrún, húsfreyja í Reykja-
vík; Kristin, húsfreyja í Þverdal í Saurbæ;
Erla, húsfreyja í Keflavík suður og Einar, dó árið 1963.
Árni í Hólkoti var lágur maður vexti, léttur og hvatlegur í hreyf-
ingum, dökkur á yfirbragð, augun glettnisleg, svipurinn oftast hýr
og glaðlegur. Hann var allvel greindur, ræðinn og skemmtilegur,
hafði góða kímnigáfu, hagmæltur nokkuð en fór dult með; hafði
mikla ánægju af söng; geðbrigðamaður, en þó stilltur vel. Árui var
frábærlega gestrisinn og veitti af mikilli rausn. Greiðvikni hans og
hjálpsemi var við brugðið; kom óbeðimi ef vissi, að rétta þurfti
hjálparhönd. Var það venja nágranna að leita til Árna í Hólkoti,
ef bregða þurfti við og sækja ljósmóður, lyf eða lækui. Var hann þá
skjótur í förum, átti og löngum afbragðs reiðhesta.
Enga skemmtun átti Árni „betri en sitja á góðum hesti og hafa
tár á glasi. ... til að dreypa á með góðum félögum" — og var þó
mikill hófsmaður á vín og reglumaður um það sem anuað allt.
Páll Björnsson, bóndi í Beingarði í Hegranesi, lézt þ. 16. marz
1965. — Fæddur var hann á Þverá í Blönduhlíð 30. júlí 1881. For-
eldrar: Björn, síðar bóndi í Ketu í Hegranesi, Stefánssonar bónda á
Þverá, fónassonar bónda þar, Jónssonar bónda sama stað, Illuga-
sonar, og kona hans Helga Bjarnadóttir bónda í Brekku hjá Víði-
mýri og víðar, Bjarnasonar, en kona Bjarna yngri og móðir Helgu
var Rannveig Bjarnadóttir bónda á Sjávarborg.
Páll ólst upp með foreldrunt sínurn og fylgdi þeim löngum til
fidlorðinsára, fyrst að Brekkukoti ytra í Blönduhlíð 1883, þá að
A nu Þonaltlsson