Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 64

Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 64
GLÓÐAFEYKIR (»1 Jóhanti Jónsson, bóndi á Daðastöðum á Reykjaströnd, lézt af slys- förum þ. 14. maí 1965. - Hann var fæddur á Sauðárkróki 2. ágúst 1908, sonur Jóns tómthúsmanns þar, Sigfússonar grenjaskyttu 09, bónda í Hringey í Hólmi, Jónassonar bónda á Grófargili, Sigfússonar, og ráðs- kouu hans Guðnýjar Jónsdóttur. Jón missti föður sinn er hann var þriggja ára gamall. Fór þá móðir hans 1 vinnu mennsku og hafði eitt barnanna á sínum snærum, eu hinum var komið fyrir h já vandalausum. Fór Jóhann að Litlu-Gröf á Langho’.ti og var þar frarn um tvítugsaldur. Þá fór hann í vist til Ólafs föðurbróður síns í Álftagerði og síðan að Ytra-Vallholti. Þar var og í vist frændkona hans, Sesselja Olafs- (lóllir frá Alftagerði. Bundust þau hjúskap- arböndum og settu saman bú í Litladal í Blönduhlíð 1935, bjuggu þar til 1947, en fluttu þá búferlum að Daðastöðum og bjuggu þar síðan til æviloka Jóhanns. Af 5 börnurn þeirra hjóna komust 4 upp: Bragi, bóndi á Daða- stöðum (nii verkamaður á Sauðárkróki); Guðný, húsfreyja í Hofsósi; Maria, húsfreyja á Sauðárkróki, og Sigríður, í foreldrahúsum (nú húsfreyja á Sauðárkróki). Jóhann á Daðastöðum var meðalmaður á vöxt og þó uaumlega, þéttur á velli. Hann var hógvær rnaður og hávaðalaus, alúðlegur í viðmóti og vingjarnlegur, gestrisinn og glaður heim að sækja. Hann var mikill dýravinur, lét sér annt um allar skepnur og liugsaði vel um þær. Hann var tímum saman þjáður af nokkrum vanheilindum og sótti þá að honum þunglyndi á köflum. Háði sá andlegi heilsu- brestur honum tilfinnanlega, þótt eigi væri vanheill líkamlega. Jónas Jónasson, skáld, fyrrum bóndi á Syðri-Hofdölum, lézt þ. 22. dag ágústmán. 1965. - Hann var fæddur að Tyrfingsstöðum á Kjálka 13. nóv. 1879. Foreldrar: Jónas bóndi á Tyrfingsstöðum, síðar í Úlfs- staðakoti (nú Sunnuhvoll) og Miðsitju í Blönduhlíð, Jónasson, bónda í Stóru-Brekku á Höfðaströnd, Gunnlaugssonar bónda í Sanr- bæjargerði í Hörgárdal, Jónssonar, og kona hans Katrín Hinriks- dóttir á Breið í Tungusveit, Rafnssonar. Var anuna hennar og al- nafna, Katrín Hinriksdóttir, alsystir Hinriks, föður Jóns skálds á Arnarvatni, föður Jóns í Múla, Sigurðar á Arnarvatni og þeirra syst- Jóliaini Jónsson

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.