Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 65

Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 65
GLOÐAFEYKIR 65 kina. „Kemur skáldaæðin mjög sterkt fram í þeirri ætt víða og ekki ólíklegt, að þangað hafi Jónas sótt skáldgáfuna." (Sr. I>. Steph.). Jónas ólst upp með foreldrunr sínum fram um 12 ára aldur. Fór þá léttadrengur að Vindheimum, en hús- freyjan þar, Guðbjörg Sigurðardóttir, kona Eyjólfs Jóhannssonar, \ ar móðursystir hans (hálfsystir). Á Vindheimum var mikið menningarheimili og bókakostur allgóður. Xaut Jónas þess í ríkum mæli, enda snemma hneigður til bókar. Er birtu þraut í skammdegi vetrar og honum þótti ljós- metið af skornum skammti, brá hann á það ráð að steypa sér kerti rir tólginni, sem skömmtuð var til viðbits, og fékk þannig nokkuð drýgt þær stundir, er hann gat helgað áskapaðri lestrarfýsn. Jónas var af fátækum kominn og því borin von, að fullnægt fengi menntaþrá sinni. Hann brauzt þó í að afla sér búfræðimenntunar í Hólaskóla og lauk prófi þaðan 1899. Xæstu árin þrjú stundaði hann jarðabótavinnu og kaupavinnu vor og sumar, en barnakennslu um vetur — og fórst allt vel. Hann var mikill þrekmaður og frábær afkastamaður við öll verk, sláttumaður einn hinn mesti, ágætur kennari. Jónas kvæntist árið 1902 Önnu Jónsdóttur bónda á Þorleifsstöðum í Blönduhlíð, Gíslasonar, og síðari konu hans H(')lmfríðar Skiila- dóttur bónda á Krossi í Óslandshlíð og víðar, Gíslasonar hreppstjóra í Hofstaðaseli, Árnasonar, en kona Skúla og móðir Hólmfríðar var Anna Hinriksdóttir. Var Anna, kona Jónasar, hálfsystir Jóns á Höskuldsstöðum, samfeðra, eiginmanns Jóhönnu Eiríksdóttur, sjá þátt unt hana í 7. hefti Glóðafeykis 1967, bls. 33. Anna Jónsdóttir var mikil gáfukona og dugnaðar og betur að sér til munns og handa en þá var algengast um ungar stúlkur. Reistu þau hjónin bú í Grundarkoti í Blönduhlíð árið 1903 og bjuggu þar til 1907, þá á Uppsölum til 1912, á Vöglum til 1918, á Óslandi í Óslandshlíð til 1923. Þá fóru þau hjón byggðum að Syðri-Hofdölum og bjuggu þar til 1936, er þau brugðu búi og hurfu til Sauðárkróks, þar sem þau áttu heima til æviloka. Var Jónas jafnan kenndur við Hofdali á efri árum. Jónas stundaði verkamannavinnu fyrstu árin á Sauðárkróki og átti skepnur, en gerðist síðan varðmaður við Grundarstokksbrú og

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.