Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 68

Glóðafeykir - 01.11.1973, Page 68
68 GLÓÐAFEYKIR sinni og kristnum dómi heilum huga. Árni Sveinsson var gæða- drengur, viðkvæmur og hlýr í geði og einstakt ljúfmenni. Hann var barnelskur með afbrigðum, stundaði barnakennslu um hríð og fórst ágætlega; æskan hændist að honum senr eldri bróður. Hann vildi hlúa að því, sem gott var og fagurt, svo í sálu barns sem í skauti jarðar. Hann var sonur vors og gróanda. Árni á Kálfsstöðum var fátækur framan af árum. En er fram liðu stundir og atorkusöm börn uxu úr grasi, gekk hagur þeirra hjóna vel fram. Var þó miklu til kostað um ræktun og byggingar, svo að jörðin tók stakkaskiptum. Mun Árna eigi hafa verið það sársauka- laust, að hverfa frá óðali sínu, öldnum að árum en ungum í anda, enda átti hann þá og skannnt eftir ólifað. Hallfriður Jónsdóttir. hjúkrunarkona á Sauðárkróki, lézt þ. 24. okt. 1965. — Hún var fædd á Auðnum í Sæmundarhlíð 20. maí 1893. Voru foreldrar hennar hjónin Jón bóndi þar Pálmason, bónda á Bessastöðum í sömu sveit, Guðmundssonar bónda á Hrafnagili á Laxárdal ytra, Jóns- sonar, og Guðbjörg Siilvadóttir hreppstjóra og bónda í Skarði, Guðmundssonar bónda þar, Björnssonar, en móðir Guðbjargar og seinni kona Sölva var Guðrún Ólafsdóttir bónda á Bólstað í Steingrímsfirði, Jóns- sonar. Hallfríður fæddist upp með foreldrum sínum á Auðnum. Um fermingaraldur missti hún föður sinn; dvaldist með móður sinni, er hélt búi á jörðinni til 1912. Á því ári giftist hún Þórarni Sigm jánssyni bónda á Bessastöðum, Jónssonar hreppstjóri á Hóli í Sæmundarhlíð, Jóns- sonar, og konu hans Bjargar Runólfsdóttur bónda í Meðalheimi á Ásum vestra, Jónssonar. Reistu þau bú á Sæunnarstöðum í Hallár- dal, en bjuggu þar skamma hríð, fluttust aftur norður hingað og fyrst að Geirmundarstöðum, fóru að búa á Auðnum 1915 og bjuggti þar 5 ár, þá í Vík 1920—1922, en brugðu þá búi og slitu samvistum. Börn þeirra hjóna voru 6: Sigriður, látin; Guðbjörg, húsfreyja á Sauðárkróki; Sigurbjörg, húsfreyja í Reykjavík; Jón, verkamaður á Sauðárkróki; Ragnar, verkamaður í Reykjavík; Þórarinn, rafvirki á Hvanneyri í Borgarfirði. Ævistarf Hallfríðar Jónsdóttur var fórnarstarf og þjónustu. Hún Hallfriður Jónsdóttir

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.