Glóðafeykir - 01.11.1973, Side 70
70
GLÓÐAFEYKIR
sinnar og tengdasonar, Sveins Sölvasonar, er þá höfðu stofnað heira-
ili á Sauðárkróki, og átti hjá þeim hjónum bólfestu æ síðan.
Sigurlaug Jósafatsdóttir var vel í meðallagi á vöxt, mikil gerðar-
kona í sjón og raun. Hún var alin upp á
myndarheimili, þar sem mikið og vel var
unnið, stjórnsemi ríkti og ráðdeild og gest-
risni var í heiðri höfð. Þessar höfuðdyggðir
voru runnar henni í merg. Hún var mikil
atorkukona. Um 20 ára skeið var hún ráðs-
kona hjá vegamannaflokki Rögnvalds Jóns-
sonar t erkstjóra. Þá var hún og um nokk-
urt skeið hjúkrunarkona hjá Sauðárkróks-
bæ; vann auk þess að öðru ýmsu, því er til
féllst. Hún sat aldrei auðum höndum. Og
allt fór lienni vel úr liendi og myndarlega.
Sigurlaug var gædd ríkri fórnarlund og
hjartaprýði. Alla stund lagði hún sig fram um að vera öðrum til
léttis og ánægju, hjálpa sjúkum og heilum, unz þrotinn \ar eigin
máttur.
Sigurlaug giftist ekki, en dóttur eignaðist hún með Kristni Er-
lendssyni kennara, Margréti, húsfreyju á Sauðárkróki, og batt við
hana, tengdason sinn og barnabörn mikið ástríki.
Valgarð Blöndal. umboðsmaður Flugfélags Islands á Sauðárkróki,
varð bráðkvaddur í flugvél á leið til Akureyrar 5. nóv. 1965. — Fædd-
ur var hann á Sauðárkróki 2. júlí 1902. Foreldrar: Kristján Blöndal,
póstafgreiðslumaður þar, bóksali og sparisjóðsstjóri, Jósefsson Blön-
dals, verzlunarstjóra í Grafarósi, Björnssonar Blöndals sýslumanns í
Hvammi í Vatnsdal, Auðunssonar, og kona hans Álfheiður Guðjóns-
dóttir síðast prests í Saurbæ í Eyjafirði, Hálfdanarsonar prófasts á
Eyri í Skutulsfirði, Einarssonar, en kona sr. Guðjóns og móðir Álf-
heiðar var Sigríður Stefánsdóttir prests á Reynivöllum í Ivjós,
Stephensens, sonar Stefáns amtmanns á Möðruvöllum.
Valgarð ólst upp með foreldrum sínum á Sauðárkróki og átti þar
heima alla ævi. Hann lauk prófi frá Verzlunarskóla íslands 1920,
var við framhaldsnám í Þýzkalandi 1921 — 1923, hélt heim að því
búnu og dvaldist næstu árin í foreldrahúsum. Að föður sínum látn-
um 1931 tók Valgarð við störfum hans margþættum: gerðist póst-
afgreiðslumaður, bóksali, féhirðir og síðar formaður Sparisjóðs
Sauðárkróks. Hann átti sæti í hreppsnefnd, skattanefnd, var um hríð
Sis;urlaug Jósafatsdóttir