Glóðafeykir - 01.11.1973, Blaðsíða 71
GLÖÐAFEYKIR
71
formaður Ung-mennafélagsins Tindastóls og einnig formaður Ung-
mennasambands Skagafjarðar nokkur ár; síðar heiðursfélagi beggja
þessara félagssamtaka. Valgarð gerðist frumherji um flugmál í hér-
aðinu og forgöngumaður flugvallargerðar á
Sauðárkróki. Varð umboðsmaður Flug-
félags íslands og flugvallarstjóri, er félagið
hóf, fyrst og fremst fyrir atbeina hans, fast-
ar áætlunarferðir til Sauðárkróks. H\arf
hann þá frá fyrri störfum flestum, en helg-
aði flugmálunum krafta sína. Og í þágu
þeirra mála var hinzta förin farin.
Valgarð Blöndal \ar félagslyndur fram-
faramaður. Hann var ótrauður stuðnings-
maður ýmissa félagssamtaka í bæ og sýslu,
er fram horfðu, og tók beinan þátt í starfi
þeirra margra. Hann og bæði þau hjón
studdu með ráðum og dáð leikstarfsemi á Sauðárkróki og léku sjálf
árum saman með þeim ágætum, að enn er til jafnað.
A Jónsmessudag 1926 gekk Valgarð að eiga Jóhönnu Árnadóttur
hreppstjóra á Geitaskarði í Langadal, Þorkelssonar bónda á Skegg-
stöðum í Svartárdal, Þorkelssonar, og konu hans Hildar Sveinsdótt-
ur bónda á Gunnfríðarstöðum á Ásum, Arasonar. Heimili þeirra
hjóna á Sauðárkróki var mikið myndarheimili og menningar, hlý-
legt, glaðvært, greiðasamt með afbrigðum. Um árabil ráku þau
gistihús og greiðasölu við þvílíkan orðstír, er beztur mátti verða.
Þar leið hverjum manni vel, enda bóndinn og húsfreyjan samvalin
um höfðingslund og hlýju í öllu viðmóti. Árum saman bjuggu þar
sýslunefndarmenn flestir, meðan sýslufundur stóð, viku eða lengur.
Þá var oft glatt á hjalla á þessu stóra heimili. Það var heimili frekar
en hótel.
Þau Valgarð og Jóhanna eignuðust 5 börn. Elzta barnið, Kristján,
misstu þau frumvaxta 1956. Börn þeirra önnur eru: Árni, bóksali,
umboðsmaður Flugfélags íslands á Sauðárkróki; Hildur, húsfreyja í
Hveragerði; Álfheiður, hrisfreyja í Fairbanks í Alaska; Auðunn, hris-
gagnasmiður í Reykjavík.
Valgarð Blöndal var gildur maður á velli, fríður ásýndum, föl-
leitur og sléttfarinn, svipurinn heiður, hlýr og góðlegur. Hann var
ágætlega greindur og fjölgefinn, skáldmæltur vel, þótt eigi væri á
almanna \ itorði, málhagur, söngvinn í bezta lagi, enda söngfélagi í
hinum forna og fræga Bændakór Skagfirðinga. Hann unni og dáði