Glóðafeykir - 01.11.1973, Qupperneq 74
74
GLOÐAFEYKIR
hólum, Mikaelssonar, og konu hans Kristjönu Jóhönuu Jónsdóttur
vinnumanns í Brekkukoti í Svarfaðardal, Þorvladssonar. Var Hjör-
leifur albróðir Gunnhildar, konu Abels Jónssonar, sjá Glóðafeyki
1967, 7. hefti, bls. 35, og' einn í hópi 8 systkina.
Hjörleifur ólst upp með foreldrum sínum og fluttist með þeirn
barn að aldri út á Skaga. Tók við búi af
föður sínum á Öldubakka (grasbýli í landi
Borgarlækjar) 1912 og bjó þar til 1916, fór
þá í húsmennsku að Þorbjargarstöðum á
Laxárdal og var þar til 1920; bjó eitt ár á
Breiðstöðum í Gönguskörðum, en fluttist
til Sauðárkróks 1921 og átti þar heima æ
síðan.
Árið 1925 gekk Hjörleifur að eiga Stein-
unni Júniusdóttur fyrrum bónda á Kirkju-
hóli og viðar, síðast tómthúsmanns á Sauð-
árkróki, Þórarinssonar bónda í Hraukbæ í
Kræklingahlíð, Stefánssonar, og konu hans
Ingibjargar Þorsteinsdóttur bónda og nálasmiðs í Miklagarði hjá
Glaumbæ, Arnþórssonar, en kona Þorsteins og móðir Ingibjargar
var Karólína Jóhannesdóttir bónda á Skörðugili syðra, Jónssonar.
Þau Hjörleifur og Steinunn slitu samvistum; áttu eigi börn.
„Hjörleifur Andrésson var stór vexti, beinvaxinn og karlmann-
legur, nokkuð stórskorinn í andliti. Hann var fremur hæglátur, trú-
verðugur við öll störf og vandvirkur. Hann var ágætur skepnuhirðir
og stundum í vetrarvist hjá bændum. A Sauðárkróki hafði hann
nokkrar kindur, fór vel með þær og hafði af þeirn góðan arð. Auk
þess vann hann hverja þá vinnu, sem að höndum bar, vann m. a. á
sláturhúsi K. S. fram undir það síðasta.“
„Allra síðustu árin var Hjörleifur orðinn sjóndapur og heilsuveill,
en átti góða vini, skylda og óskylda, sem hlúðu að honum.“ (St. M.).
Jóhannes Jónsson, bóndi á Þorleifsstöðum í Blönduhlíð, lézt þ.
31. des. 1965. — Hann var fæddur að Hjaltastaðahvammi í Blöndu-
hlíð 2. júlí 1888. Foreldrar: Jón bóndi í Hjaltastaðahvammi og síðar
á Þorleifsstöðum Jónasson, Kristjánssonar bónda Ásgrímssonar, og
kona hans Guðrún ljósmóðir Þorkelsdóttir frá Másstöðum í Svarf-
aðardal og fyrri konu hans Guðrúnar Jónsdóttur, alsystir hins víð-
kunna Vestur-íslendings, Zófoníasar Þorkelssonar.