Glóðafeykir - 01.11.1973, Side 78

Glóðafeykir - 01.11.1973, Side 78
78 GLÓÐAFEYKIR Zófonias Jónsson, húsmaður í Stóru-Gröf, lézt þ. 24. marz 1966. — Hann var fæddur að Kridróli á Neðribyggð 24. janúar 1890, sonur Jóns bónda þar og síðar á Grófargili, Ólafssonar bónda á Ögmundar- stöðum, Jónssonar bónda þar, Magnússonar prests í Glaumbæ, Magnússonar, og konu hans Sigríðar Jónsdóttur bónda í Flugu- mýrarhvammi í Blönduhlíð og síðar í Garðakoti í Hjaltadal og víð- ar, Jónssonar, en kona Jóns eldra og móðir Sigríðar var Guðrún Eyjólfsdóttir bónda á Brúarlandi í Deildardal, Jónssonar. Zófonías fæddist upp með foreldrum sínum. Föður sinn missti hann 1901, hálf-fimmtugan að aldri. Bjó móðir hans áfram nokkur ár með sonum sínum, þeim tvíburabræðrunum Zófoníasi og Ólafi, þótt ungir væru, enda mikil dugnaðarkona og atorku, sem bæði þau hjón. Árið 1905 brá hún búi og fór í húsmennsku að Yaladal í Skörðum. Þangað fór Zófonías og í vist, fluttist þó áður langt um leið út á Langholt, yfrst að Litlu-Gröf, svo að Stóru-Gröf og átti þar heima til æviloka, vinnumaður fyrst, þá húsmaður lengi, en hafði síðustu árin ábúð á nokkrum hluta jarðarinnar. Hann hafði lengstum alhnargt sauðfjár og fór vel með, fjárglöggur ágætlega, mikill hirðumaður með skepnur, hafði af þeim mikla unun og góðan arð og efnaðist vel. Zófonías í Stóru-Gröf var meðalmaður á velli, þéttvaxinn. Hann var hlédrægur maður og hafði sig lítt í frammi, geðspakur, tryggur í lund, bóngóður og hjálpsamur, svo að orð fór af. Sambúð hans við börn var með þeim hætti, að þau hændust að honum og töluðu \ ið hann sem bróður og jafningja. Zófonías var óvenju rótfastur sonur heimilis og sveitar, þótt eigi væri bóndi talinn á venjulega vísu. Hann var rnikill dugnaðarmaður, vandaður og vel rnetinn af öll- um. Hann dó ókvæntur og barnlaus. Ingvar Guðmundsson, húsmaður á Bjarnastöðum í Blönduhlíð, lézt þ. 3. maí 1966. — Hann var fæddur á Illugastöðum í Flókadal 23. maí 1892. Foreldrar: Guðmundur bóndi á Illugastöðum og víð- ar Jónsson, bónda á Hálsi í Flókadal og víðar, Sigurðssonar, og kona hans Salbjörg Jónsdóttir bónda á Bakka í Fljótum, Jónssonar, og konu hans Steinunnar Finnbo°adóttur. Var Ino-var albróðir Ingi- gerðar, konu Stefáns á Hofstöðum, sjá Glóðafeyki 1971, 12. liefti. bls. 46. Ingvar, sem var einn í hópi 8 systkina, mun hafa alizt upp með

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.