Glóðafeykir - 01.11.1973, Qupperneq 90
90
GLOÐAFEYKIR
liendi hans. Honum voru margir hlutir vel gefnir og að honum
mikill mannskaði á miðjum aldri.
Guðjón Jósafatsson, verkamaður á Sauðárkróki. lézt skyndilega þ.
31. okt. 1966. — Hann var fæddur að Krossanesi í Hólmi 21. febrúar
1901, sonur Jósafats bónda þar Guðmundssonar og konu hans Guð-
rúnar Ólafsdóttur, \ar því albróðir Sigur-
laugar Jósafatsdóttur, sjá þátt um hana hér
að framan.
Guðjón missti móður sína fárra vikna
gamall. Ólst upp með föður sínum og móð-
ursystur, Margréti, er gerðist bústvra Jósa-
fats, er konu hans missti við, fyrst í Krossa-
nesi til 1914 og síðan á Syðri-Hofdölum til
fullorðinsára. Stundaði nám í Hólaskóla og
lr.uk prófi þaðan 1923.
Arið 192(i kvæntist Guðjón Þóreyju Sig-
tryggsdóttur bónda á Hóli á Skaga, Jó-
hannssonar bónda í Mvrakoti á Höfða-
strönd og síðar á Hóli, Jónatanssonar, og konu hans Ingibjargar
Sigurðardóttur, bónda á Fossi á Skaga, Gunnarssonar hreppstjóra á
Skíðastöðum, Gunnarssonar, og konu hans Sigríðar Gísladóttur síð-
ast bónda í Fossseli í Skagaheiði, Þorsteinssonar. Þau hjón stofnuðu
til heimilis á Sauðárkróki og áttu þar heima æ síðan. Stundaði Guð-
jón algenga verkamannavinnu meðan heilsa hrökk til, en síðustu
8 árin þjáðist hann af mæði (astrna) og lá tínrum saman á sjúkra-
húsum, en allt kom fyrir ekki. Guðjón var sérlega búhneigður sem
lrann átti kyn til, þótt eigi gerðist bóndi í sveit. Atti lengstum nokk-
urn fjárstofn og hafði gagn af og óskorað yndi, enda rakinn fjár-
maður.
Guðjón missti konu sína 1953. Þau eignuðust tvær dætur: Erlu,
húsfreyju á Sauðárkróki, og Svövu, húsfreyju í Kópavogi suður. Eftir
lát konu sinnar átti Guðjón heimili hjá dóttur sinni og tengdasyni
á Sauðárkróki.
Guðjón Jósafatsson var meðalmaður á hæð og íturvaxinn; grann-
leitur, rjóður í andliti, svipgóður, háttprúður og hlýr í umgengni,
flestum mönnum jafnlyndari. Hann var rnikill atorkumaður meðan
heill var heilsu, ágætur verkmaður, trúr og samvizkusamur og mátti
eigi vamm sitt vita. Hann var hlédrægur maður og hélt sér eigi fram,
vinsæll maður og góður drengur.
o o o
Guðjón Jósafatsson