Málfregnir - 01.07.1990, Blaðsíða 30
ins. Eflaust var skynsamlegt að greina
sundur dýraorð og plöntuorð, en líklega
hefði komið sér enn betur að hafa þá alla
dýraorðabókina fyrst, bæði ensk-latnesk-
íslenska og latnesk-íslensk-enska, og
síðan plöntuorðabókina í tvennu lagi.
Einhverjum kann að þykja bagalegt að
hafa ekki aðgang að íslensku heitunum í
stafrófsröð.
Tvær nýjar
Bílorðanefnd
í nóvember 1989 var stofnuð í Reykja-
vík Bílorðanefnd að frumkvæði Guðna
Karlssonar í dómsmálaráðuneytinu. Hlut-
verk hennar er að taka saman skrá yfir
orð sem lúta að bifreiðum og búnaði
þeirra, lagfæra það sem betur má fara og
fylla í skörðin þar sem íslensk orð
vantar. Nefndin er þannig skipuð:
Guðni Karlsson, formaður
Finnbogi Eyjólfsson
Ingibergur Elíasson
Jón Baldur Þorbjörnsson.
Málfræðilegur ráðunautur nefndarinnar
er Sigurður Jónsson frá Arnarvatni.
Samkvæmt bókarkápu eru í safninu
ríflega 11700 flettiorð, 8350 úr dýrafræði
og 3360 úr grasafræði. Fremst í bókinni
er fimm blaðsíðna heimildaskrá auk for-
mála.
Bókin er tileinkuð Hinu íslenska nátt-
úrufræðifélagi á aldarafmæli þess með
þakklæti fyrir ómetanlega fræðslu.
orðanefndír
Orðanefnd jarðfræðinga
Stjórn Jarðfræðafélags íslands ákvað á
fundi í nóvember 1989 að setja á stofn
orðanefnd innan félagsins. Nefndin
heitir Orðanefnd Jarðfræðafélags
íslands og er nýlega tekin til starfa. Hún
er þannig skipuð:
Jón Eiríksson, formaður
Barði Þorkelsson
Freysteinn Sigurðsson
Haukur Jóhannesson
Kristján Sæmundsson
Leó Kristjánsson
Sigurður Steinþórsson.
30