Málfregnir - 01.07.1990, Side 31

Málfregnir - 01.07.1990, Side 31
Frá málnefndinni Eins og fram kemur í síðasta hefti Málfregna tóku um sl. áramót gildi ný lög um íslenska málnefnd, þar sem fulltrúum í henni er fjölgað úr 5 í 15. í janúar sl. var skipað í nefndina samkvæmt lögum þessum, og eiga nú eftirtaldir sæti í henni, skipaðir til fjögurra ára: Arnhildur Arnaldsdóttir verkefnisstjóri, tilnefnd af Staðlaráði íslands Álfheiður Kjartansdóttir þýðandi, skipuð án tilnefningar Árni Böðvarsson málfarsráðunautur, tilnefndur af Ríkisútvarpinu Árni Ibsen leiklistarráðunautur, tilnefndur af Þjóðleikhúsinu Eyvindur Eiríksson rithöfundur, tilnefndur af Rithöfundasambandi íslands Gísli J. Ástþórsson blaðamaður, tilnefndur af Blaðamannafélagi íslands Guðrún Egilson kennari, tilnefnd af Samtökum móðurmálskennara Guðrún Kvaran orðabókarritstjóri, tilnefnd af Hagþenki Gunnlaugur Ingólfsson orðabókarritstjóri, tilnefndur af Orðabók Háskólans Heimir Pálsson cand. mag., skipaður án tilnefningar Indriði Gíslason prófessor, tilnefndur af Kennaraháskóla íslands Jónas Kristjánsson prófessor, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar á ís- landi, tilnefndur af háskólaráði Kristján Árnason dósent, tilnefndur af heimspekideild Háskóla íslands Sigrún Helgadóttir tölfræðingur, skipuð án tilnefningar Þórhallur Vilmundarson prófessor, forstöðumaður Örnefnastofnunar Pjóðminja- safns, tilnefndur af Örnefnanefnd Menntamálaráðherra skipaði Kristján Árnason formann nefndarinnar og Gunnlaug Ingólfsson varaformann. Innan nefndarinnar starfar fimm manna stjórn. Hana skipa: Kristján Árnason, formaður Gunnlaugur Ingólfsson, varaformaður Jónas Kristjánsson Sigrún Helgadóttir Þórhallur Vilmundarson Samkvæmt lögum eiga fulltrúar heimspekideildar, háskólaráðs og Orðabókar Háskólans sæti í stjórn málnefndar, en til viðbótar voru Sigrún Helgadóttir og Þór- hallur Vilmundarson kosin í stjórnina á fyrsta fundi nefndarinnar 30. janúar 1990. Eins og fram hefur komið er megintilgangurinn með þessari fjölgun í málnefnd- inni að breikka grunninn undir nefndinni og efla tengsl hennar út um samfélagið. Með þessu gefst líka kostur á að dreifa starfi því, sem málnefndinni fylgir, á fleiri herðar og virkja menn til starfa. 31

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.