Málfregnir - 01.07.1990, Qupperneq 32

Málfregnir - 01.07.1990, Qupperneq 32
í samræmi við þessi markmið hefur nefndin komið á fót og hyggst koma á fót undirnefndum eða starfshópum sem eiga að helga sig afmörkuðum málaflokkum. Þannig hefur verið komið á laggirnar starfshópi um íðorðamál, sem Sigrún Helga- dóttir er í forsvari fyrir, starfshópi um fjölmiðla, þar sem Þórhallur Vilmundarson er formaður, og kennslumálahópi undir forystu Heimis Pálssonar. Auk þess er ætlunin að stofna sérstaka nefnd sem fjalli um stafsetningu og útgáfu réttritunarorðabókar sem nefndin á að gefa út lögum samkvæmt. í starfshópunum sitja bæði málnefndarmenn og aðrir sem málnefndinni tengjast, og er vonast til þess að þannig takist að virkja sem flesta. Þegar þetta er ritað hafa bæði íðorðahópur og fjölmiðlahópur skilað áætlunum um starfsemi sína, og hefur stjórn málnefndar lagt blessun sína yfir þær. Er ástæða til þess að vænta góðs af starfi þess- ara hópa. Ekki er komin mikil reynsla á þetta fyrirkomulag, og of snemmt er að segja hversu vel það muni gefast, en vafalaust er það eins í þessum efnum og öðrum að mest er komið undir framkvæmdum og framkvæmdavilja. í lögunum er gert ráð fyrir að málnefndin komi saman eigi sjaldnar en einu sinni á ári, en að stjórnin haldi fundi eftir þörfum. Málnefndin sjálf hefur komið saman einu sinni, en stjórnin hefur fundað um það bil mánaðarlega, líkt og gamla málnefndin gerði. Ekki er gert ráð fyrir að nein breyting verði á sambandi málnefndarinnar og Islenskrar málstöðvar við þessa lagabreytingu. Málstöðin verður áfram skrifstofa nefndarinnar, og Baldur Jónsson prófessor, forstöðumaður málstöðvarinnar, er rit- ari nefndarinnar. Megnið af þeirri starfsemi, sem málnefndinni tengist, fer þar fram eftir sem áður. Ástæða er til þess að hvetja lesendur Málfregna, sem kynnu að eiga sér einhver hjartans mál eða áhugamál sem við koma málrækt og þeir vildu koma á framfæri, að hafa samband við undirritaðan ellegar einhvern annan málnefndarmann eða starfslið málstöðvar, þvf allur stuðningur er vel þeginn. Kristján Arnason Málfregnir koma út tvisvar á ári Útgefandi: Islensk málnefnd Ritnefnd: Gunnlaugur Ingólfsson og Kristján Árnason Ritstjóri: Baldur Jónsson Ritstjórn og afgreiðsla: íslensk málstöð, Aragötu 9, ÍS-101 Reykjavík. Sími: (91) 28530, (91) 622699, (91) 694443 Áskriftarverð: 600 krónur á ári Prentsmiðja Árna Valdemarssonar hf. ISSN 1011-5889 ÍSLENSK MÁLNEFND

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.