Skírnir - 01.01.1941, Page 142
C. A. C. Brun
Utanríkismálastefna Dana
1865—18701)
Það mætti ætla, að menn væru nú lítið fíknir í lestur
sögu, þar sem líðandi stund færir oss dag eftir dag sögu
lifandi fyrir sjónir í átakanlegri mynd en nokkru sinni áð-
ur, og færir hana jafnvel inn fyrir bæjardyr vorar. Sá er
þó ljóður á þeirri sögu, að allt er þar gert til þess að fela
rök hennar eins vendilega fyrir oss og hægt er, og að vér
jafnvel sjálfir með samúð vorri eða andúð óafvitandi
byrgjum oss rétta sýn yfir orsakasamhengi þess, sem er
að gerast. Um hið alllöngu liðna er öðru máli að gegna.
Þar eru hagsmunir og tilfinningar búnar að ryðja sig, og
engum er lengur akkur í, að neitt sé dulið. Hið liðna kem-
ur oss því, ef gögn eru til næg og skýr, eins skýrt fyrir
sjónir og frekast er unnt um ekki fullkomnari verur en
mannfólkið er. Menn eru því sæknir í þekkingu á hinu
liðna, og ekki sízt vegna þess, að þar er oft að finna undir-
stöður undir og samstæður við atvik þau, sem gerast í
hvern svip.
Það er eins með þjóðir og menn, að allt gengi þeirra er
alltaf á hverfanda hveli. Skiptist þar á vald, virðing og
auður og aflleysi, áhrifaleysi og örbirgð. Danmörk hefir
mátt kenna á þessu eins og fleiri, því sú var tíðin, að Dan-
mörk var herveldi mikið, sérstaklega á sjó. Nú eru liðin
meira en 200 ár síðan Danmörk hefir ráðizt á önnur ríki;
hún hefir þó síðan haft tilburði til að verjast, ef á hana
1) Greinin er mjög styttur útdráttur úr 3 fyrirlestrum, sem
haldnir voru við Háskóla íslands í janúar 1941.