Skírnir - 01.01.1941, Side 151
Skírnir
Utanríkismálastefna Dana 1865—1870
149
annazt. Hann taldi það og ógerning að fá Prússakonung
til verulegra tilslakana, enda myndi það mælast illa fyrir
á Prússlandi. Komst v. Plessen að þeirri niðurstöðu, að
Prússland að vísu gjarna vildi þandalagið, en vildi þó ekk-
ert verulegt til þess vinna.
Skömmu síðar áttu þeir Quaade og Bismarck samtal
um málið, og kvað Bismarck í bili ástæðulaust fyrir Dan-
mörku að þjóða þandalag, enda hefði Prússland ekki þörf
á því. Danmörk þyrfti yfirhöfuð ekkert að leggja af mörk-
um til að fá aftur nokkra — að vísu ekki mjög stóra —
skák af Slésvík, sem Bismarck játaði, að Danmörk ætti
kröfu til , og vonaði, að Prússland á sínum tíma myndi
láta af hendi vegna hagsmuna sjálfs sín. Ef Prúss-
land og Italía yrðu fyrir slíkum áföllum, að bandalag við
Danmörku væri einhvers virði, þá væri fyrst réttur tími
til að koma sér niður á samkomulag.
Þar með var málið í raun réttri úr sögunni, en það sýn-
ir, hvað Danmörk lagði mikið upp úr því, að Norður-Slés-
víkur-málið afgreiddist með góðu samkomulagi við Prúss-
land.
Lokaþáttur málsins var einkar skringilegur. Um þess-
ar mundir var Christian Falbe, ungur ákafamaður, sendi-
herra Dana í Wien. Það er haft eftir Sir Robert Vansit-
tart, að mig minnir, að það séu til 4 flokkar sendiherra,
latir og gáfaðir, og séu þeir sérstaklega nothæfir; ötulir
og gáfaðir, og séu þeir nothæfir, en ekki óhættulegir; latir
og heimskir, og megi þeir koma að góðu gagni á sumum
stöðum; og loks séu til ötulir og heimskir sendiherrar, og
séu þeir mjög hættulegir og ónotandi með öllu. Verða les-
endur sjálfir að koma Falbe í réttan flokk.
Tveim dögum fyrir austurrísk-prússneska. ófriðinn stakk
utanríkisráðherra Austurríkis upp á því við hann, að Dan-
mörk skyldi hernema hertogadæmin, en þyrfti þó ekki þar
fyrir að segja Prússum stríð á hendur. Það var uppi fót-
ur og fit á Falbe við þetta, og lofaði hann að fara til Kaup-
mannahafnar til að vinna að þessu máli. í Kaupmanna-
höfn sáu menn þegar, hver háski var á ferðum, ef Prúss-