Bændablaðið - 23.10.2014, Síða 24

Bændablaðið - 23.10.2014, Síða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014 „Þetta er óskaplega gaman, mig dreymir stundum sápur á nóttunni,“ segir Hrefna Waage sem undanfarin ár hefur búið til skrautlegar sápur af ýmsu tagi. Hrefna kallar starfsemi sína Sápugaman og hægt er að fræðast nánar um þær á samnefndri vefsíðu og á Facebook. Hrefna hefur líka jafnan blað og penna innan seilingar, því aldrei er að vita hvenær ný hugmynd að skemmtilegri sápu kviknar og því um að gera að hripa hana niður um leið og hún fæðist. Heilbrigðisvottað eldhús Hrefna er Hornfirðingur að ætt og uppruna en býr á Egilsstöðum og hefur aðsetur fyrir sápugerð sína að Þrándarstöðum í Eiðaþinghá, en þaðan er maður hennar, Benedikt Hlíðar Stefánsson. Hrefna hefur komið sér fyrir í húsi sem þar stendur, Grenisöldu, sem áður stóð á samnefndum stað við Kárahnjúka, en var flutt að Þrándarstöðum fyrir nokkrum árum. Þar hefur hún komið sér upp góðri aðstöðu, fullkomnu sápueldhúsi fyrir sig og aflaði sér þeirra leyfa sem til sápugerðar þarf, „heilbrigðisvottað eldhús til framleiðslunnar frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands, þannig að betra verður það ekki,“ segir Hrefna sem kann einkar vel við sig í Grenisöldu og er þar gjarnan um helgar að sýsla við sápugerð. Virka daga sinnir hún annarri vinnu á Egilsstöðum. Hrefna segist hafa óskaplega gaman af því að breyta inni á baðherberginu heima hjá sér. „Ég breyti reglulega um liti inni á baði og því fylgir að hafa allt í stíl, handklæði, mottu, kerti, skraut og að sjálfsögðu sápur. Í framhaldinu fór ég að kanna hvort ég gæti ekki gert þær sjálf og leitaði fyrir mér á netinu. Þar fann ég alveg heilan helling af flottum sápum og uppskriftum og ákvað þá að gera sjálf mínar eigin sápur,“ segir Hrefna. Hefur vaxið stig af stigi Í fyrstu fikraði hún sig áfram og bjó til sápur fyrir eigið heimili, en ekki leið á löngu þar til hún fór að gefa ættingjum og vinum eina og eina sápu og það vatt svo upp á sig, ættingjar og vinir fóru að falast eftir sápum til að gefa sínum vinum. „Þannig hefur þetta vaxið stig af stigi frá því ég byrjaði fyrir rúmlega þremur árum,“ segir hún. Baðtepokar frá Sápugamni sem settir eru út í baðvatnið njóta vinsælda. Grenisalda, hús sem stendur við bæinn Þrándarstaði í Eiðaþinghá, en var áður við Kárahnjúka. „Ég vil endilega að fólk noti sápurnar, til þess eru þær,“ segir Hrefna Waage á Egilsstöðum en hún býr til margs konar skrautlegar sápur. Myndir /MÞÞ Fátt er notalegra en að bregða sér í gott bað með ilmandi baðbombu.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.