Bændablaðið - 23.10.2014, Qupperneq 23

Bændablaðið - 23.10.2014, Qupperneq 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014 lambsins í þriðja sæti úr hópi mislitu lambanna en móðurfaðir lambsins er Lóði 00-871. Efstur allra var lamb númer 75 frá Birni á Melum Efsta sætið fyrir sýninguna alla skipaði lamb 75 hjá Birni Torfasyni á Melum í Árneshreppi eins og flestir hafa líklega ráðið þegar af texta. Fyrir sýninguna í syðra varnarhólfinu kom toppsætið hins vegar í hlut lambs 51 hjá Guðmundi Eggertssyni í Skálholtsvík. Sýningin var fjölsótt og var á allan hátt sauðfjárræktinni á Ströndum til verulegs sóma. Hún staðfesti líkt og margt annað þann frábæra árangur sem þar hefur náðst með áratuga hnitmiðuðu og markvissu ræktunarstarfi í sauðfjárræktinni. Vonandi verður á komandi árum efnt til hliðstæðra sýninga á þessu svæði. Sérstök ástæða er til að hvetja alla áhugamenn um ræktun á kollóttu fé til að fylgjast vel með slíku sýningahaldi á næstu árum. Þarna skapast einstakt tækifæri til að sjá á einum stað blómann af kollótta fénu hér á landi á einum stað auk glæsi-einstaklinga með önnur útlitseinkenni. /Jón Viðar Jónmundsson Fjáreigendur í Bæjarhreppi halda í glæsigripi sína á sýningu í Bæ 2. Fremstir eru Þórarinn í Bæ 1 og Máni á Valdasteinsstöðum. Tvær gamalreyndar kempur úr hópi sauðfjárbænda á Ströndum, Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum og Georg Jón Jónsson á Kjörseyri, bera saman bækur sínar. Hannes á Kolbeinsá og Þorsteinn á Finnbogastöðum með áhyggjur heimsins á herðum sér en Björn á Melum sallarólegur og sigurviss. Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri 700 - Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Þarft þú að breyta eða byggja nýtt? Mikið úrval innréttinga, steinbita, flórskafa, básadýna og drykkjartroga á hagstæðu verði Beerepoot hágæða hollenskar milligerðir, átgrindur og dýnur. Fjölbreytt úrval flórskafa og sköfuróbotta frá GEA Úrval rafrdifinna hræra og dæla fyrir haughús, fortanka og mykju tanka frá ýmsum framleiðendum Steinbitar og forsteyptar einingar frá De Boer Betong

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.