Bændablaðið - 23.10.2014, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014
Íslenska geitin er eitt hinna gömlu
og verðmætu landnámskynja.
Þótt þeim hafi fjölgað verulega
síðustu áratugina, eða úr 300 í
900 á 30 árum, eru þær enn í
útrýmingarhættu samkvæmt
alþjóðlegum viðmiðum.
Íslenskar geitur hafa aðeins
einu sinni verið fluttar út á fæti, til
Skotlands 1986, en nú er verið að
byggja upp stofn íslensks geitfjár í
Bandaríkjunum með flutningi sæðis
úr íslenskum höfrum.
Skoska kasmírgeitin
Skömmu eftir að ég tók að
mér málefni geitfjárræktar
hjá Búnaðarfélagi Íslands
árið 1985, kom ég nokkuð að
undirbúningi útflutnings sex geita
úr hjörð Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins í Þormóðsdal.
Greindi ég frá þeim útflutningi í
starfsskýrslu minni í Búnaðarriti,
100. árg., bls. 74–75, 1987 og einnig
í greininni „Íslenskt sauðfé og geitfé
á erlendri grund“ í Frey, 86. árg.,
13.–14. tbl., bls. 528–531, 1990.
Rannsóknir í Edinborg staðfestu
þær niðurstöður dr. Stefáns
Aðalsteinssonar að íslenska geitin
hafi mjög fínt þel með „kasmír“-
eiginleika og þar ytra var ræktað
upp nýtt geitfjárkyn, the Scottish
Cashmere Goat, þar sem íslenska
kynið var eitt fjögurra kynja sem
komu við sögu.
Framlag íslensku geitarinnar
var fyrst og fremst fínleiki þelsins
og er þetta gott dæmi um nýtingu
tiltekins erfðaeiginleika á erlendri
grundu þótt hann hafi ekki öðlast
hagnýtt gildi í heimalandinu. Því
skiptir miklu máli að varðveita allar
erfðaauðlindir, ekki síst í kynjum
sem eru í útrýmingarhættu.
Nánari upplýsingar um
„kasmír“-ræktunina er að finna í
grein minni „The Iceland goat: past
and present“ í vísindaritinu Animal
Genetic Resources Information, 36.
hefti, bls. 53–59, 2005.
Listakonan Anna María Lind
Geirsdóttir hefur sýnt söfnun þels
og nýtingu þess mikinn áhuga um
árabil og hefur, það ég best veit,
kynnt sér öðrum betur stöðu skosku
kasmírgeitarinnar á Bretlandseyjum.
Nýr stofn byggður upp í
Bandaríkjunum
Þá er komið að öðru stigi útflutnings
erfðaefnis íslenska geitfjárkynsins;
til Maine í Bandaríkjunum sem
hófst haustið 2011 eftir töluverðan
aðdraganda. Hann var þannig að á
árinu 2008 höfðu samband við mig
hjónin JoAnn og Wayne Myers frá
Maine í Bandaríkjunum sem þá voru
farin að reka ræktunar- og sýnisbú
með sjaldgæfum búfjárkynjum af
ýmsu tagi. Áður höfðu þau starfað
við heilbrigðisþjónustu í Alaska
og víðar. Svo sem fram kemur í
starfsskýrslu minni í ritinu Til
Búnaðarþings 2010, bls. 65–66,
skipulagði ég fyrir þau ferð til
landsins í lok febrúar 2009, átti fyrst
fund með þeim í Bændahöllinni,
og kom þeim síðan í samband við
helstu aðila sem gætu komið við
sögu, yrði af útflutningi.
Tvennt virtist helst koma til
greina, annars vegar að flytja út
lífdýr líkt og gert var 1986, hins
vegar að flytja út hafrasæði og
sæða huðnur á búi þeirra hjóna.
Kostnaður við söfnun og flutning
fósturvísa var talinn allt of hár.
Þar sem ekki fékkst leyfi til
innflutnings geita á fæti lögðu þau
hjón áherslu á djúpfryst sæði. Eins
og meðfylgjandi myndir gefa til
kynna er ræktunin komin vel af stað
og eru huðnur með 75% íslenskt
blóð furðu líkar hreinræktuðum
íslenskum geitum.
Allt frá 2008 höfum við JoAnn
skipst á tölvupóstum og hér þýði ég
og endursegi það helsta sem hefur
verið að gerast og hvernig staðan
er um þessar mundir.
„Við viljum stuðla að verndun
hinnar fallegu, íslensku geitar“
Þannig kemst JoAnn að orði nú í
haust en fram kemur að þau hjón hafi
stofnað Beau Chemin Preservation
Farm í Maine árið1998 og nú séu
þau með gripi í ræktun og verndun
af 10 þekktum búfjárkynjum í
útrýmingarhættu. Þeirra á meðal er
hið sérstæða Soay stuttrófufé sem
er af sama stofni og íslenska féð
(með stuttan dindil) og er gjarnan
kennt við eyjuna St. Kilda við
Skotland. Auk þess að rækta þessi
búfjárkyn er gestum veitt fræðsla
um þau og verndun gamalla kynja
almennt sem mörg hver eru því
miður í útrýmingarhættu.
Hjónin hafa sérstakan áhuga
á „kasmír“-eiginleikum íslensku
geitarinnar en engar geitur í
útrýmingarhættu hafa verið til í
Bandaríkjunum með þá eiginleika.
JoAnn minnist með þakklæti þess
fólks sem með einum eða öðrum
hætti kom að útflutningsmálinu
á sínum tíma og ég hafði komið
henni í samband við. Ber þar
helst að nefna Þorstein Ólafsson
dýralækni og Halldór Runólfsson, fv.
yfirdýralækni, þá á Matvælastofnun,
Kristbjörgu Eyvindsdóttur
hrossaútflytjanda og Jóhönnu B.
Þorvaldsdóttur, geitfjárbónda á
Háafelli í Hvítársíðu. Síðar komu
við sögu Guðmundur Jóhannesson
hjá Sauðfjársæðingastöð Suðurlands
vegna útflutnings sæðisins haustið
2011 og Birna Baldursdóttir hjá
Erfðaauðlindasetrinu á Hvanneyri
varðandi skyldleika geitanna o.fl.
Samtals voru send 100 strá
með hafrasæði og voru nokkrar
huðnur af Oberhasli geitfjárkyninu
sæddar haustið 2011. Kyn þetta
er af svissneskum uppruna en dr.
Phillip Sponenberg, dýralæknir
og sérfræðingur um verndun
erfðaefnis í Bandaríkjunum, mælti
með notkun þessa kyns þar sem það
væri einna líkast íslenskum geitum
af þeim geitfjárkynjum sem til eru í
Bandaríkjunum.
Góðum áfanga náð
Nú eru þau komin með fimm 50%
og fjórar 75% blendingshuðnur
undan fimm íslenskum höfrum frá
2011-innflutningnum (sæðinu safnað
2010). Þau vonast til að geta heimsótt
Ísland aftur bráðlega til að þiggja
frekari ráð um framræktunina og
kaupa sæði úr nýjum höfrum því að
skyldleikarækt verður að forðast.
Enn er nokkuð í land því að það þarf
sjö kynslóðir til þess að ná fram 97%
íslenskum geitum, sem næst okkar
gamla, góða landnámskyni.
Nánari upplýsingar um
verndunarstarf Myer-hjónanna má
finna á heimasíðu þeirra, www.
beaucheminpreservationfarm.com.
Þess ber að geta að í Bandaríkjunum
og víðar færist í vöxt að fólk fylgi
sömu stefnu og Mayer-hjónin. Fólk
sem af hugsjón tekur virkan þátt í
alþjóðlegri baráttu gegn eyðingu
erfðaefnis og fræðir almenning um
gildi slíks verndunarstarfs.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson
Bændasamtökum Íslands
ord@bondi.is
Íslenskar geitur í útrás
75% blendingshuðnur fæddar í júlí 2014, með sterk íslensk einkenni. 50% blendingur með 75% blendingshuðnu fædda í júlí 2014.
Þessi kið eru öll 50% blendingar fædd í ágúst 2014. Litareinkenni aðallega
frá Obarhasli-kyninu.
50% huðna með greinileg einkenni frá báðum kynjum fædd 2013.
75% blendingshuðna fædd í maí 2014.
Profi 195 TST
Hámarksþrýstingur 195 bar
Vinnuþrýstingur 10-170 bar
Vatnsmagn 8 l/min
220 volt, 3,2 kw
Kr. 169.000.- án vsk. 1152 TST
Hámarksþrýstingur 150 bar
Vinnuþrýstingur 10-130 bar
Vatnsmagn 10 l/min
220 wolt, 2,8 kw
Kr. 99.900.- án vsk.
HD10/122
Hámarksþrýstingur 135 bar
Vinnuþrýstingur 10-120 bar
Vatnsmagn 10 l/min
220 volt, 2,5 kw
Kr. 69.950.- án vsk.
Quadro 1000
Hámarksþrýstingur 250 bar
Vinnuþrýstingur 30-220 bar
Vatnsmagn 15,5 l/min
Vatnstankur 16 l
400 wolt, 5,5 kw
Kr. 289.600,- án vsk.