Bændablaðið - 23.10.2014, Side 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014
Sameinuðu þjóðirnar spá því að
um miðja öldina muni íbúafjöldi
jarðar ná jafnvægi nærri 9
milljarða markinu, en landbúnaður
framleiðir nú næga fæðu fyrir
14 milljarða manna. Verkefni
landbúnaðar framtíðarinnar er
því ekki fyrst og fremst að auka
uppskeru, heldur að þróa aðferðir
sem viðhalda uppskeru á tímum
loftslagsbreytinga.
Nýjar vísindarannsóknir vísa
hér veginn. Rannsóknir sem ETC-
hópurinn (etcgroup.org) hefur gert
sýna að smábú framleiða um 70%
af heimsframleiðslu matvæla en
nota til þess einvörðungu 30% þeirra
aðfanga sem landbúnaður útheimtir.
Verksmiðjubú framleiða hins vegar
30% heimsframleiðslu með 70%
aðfanganna.
Prófessor Jack Heinemann
rannsakaði gögn um framleiðni
landbúnaðar í Norður-Ameríku og
Vestur-Evrópu sl. 50 ár. Hann komst
að því að evrópsk bú, sem eru minni,
dreifbærari og nota minna magn efna,
framleiða meira á hvern hektara lands
en þau bandarísku, sem eru stærri og
beita erfðatækni í ríkum mæli.
Þrátt fyrir þessar niðurstöður
halda talsmenn verksmiðjubúskapar
og líftæknifyrirtæki því fram að nota
verði þéttbærari ræktunaraðferðir
og auka verði notkun tilbúinna efna
og ræktun erfðabreyttra plantna.
Það stangast á við þeirra eigin ráð
um að fylgja vísindunum að máli,
og bendir til þess að fyrirtækin
hafi meiri áhuga á að fóðra eigin
bankabækur en að brauðfæða
heiminn. Gögn úr rannsóknum sýna
að verksmiðjubúskapur er hvorki svar
við loftslagsvá né hungri, heldur ríkur
þáttur í vandanum.
Áhrif verksmiðjubúskapar
• Loftslagsbreytingar: IPCC
telur verksmiðjubúskap
valda hvorki meira né minna
en 44–57% útstreymis
g r ó ð u r h ú s a l o f t t e g u n d a ,
einkum vegna notkunar á
jarðefnaeldsneyti til flutninga,
úrvinnslu og til framleiðslu á
áburði og varnarefnum. Með
síræktun og notkun eiturefna
og tilbúins áburðar er jarðvegur
rúinn lífrænum efnum og þar
með getu til að binda kolefni,
nokkuð sem annars myndi vinna
gegn loftslagsbreytingum.
• Eyðing skordýra, plantna
og jarðvegsflóru: Býflugur
frjóvga um þrjá-fjórðu hluta
allra fæðuplantna, en stofnum
þeirra hnignar nú ört, einkum
vegna eiturefnanotkunar.
Fjölbreytt plöntuflóra er
grundvöllur fæðuöryggis,
en að mati FAO hefur henni
hnignað um 75% vegna aðferða
verksmiðjubúskapar. Jarðvegur
og flóra hans ráða miklu um
magn og gæði matvæla, en
eyðing jarðvegs er enn margfalt
hraðari en endurmyndun hans,
með þeim afleiðingum að
framleiðni hefur minnkað á um
30% ræktarlands.
• Heilsutjón neytenda: Aðferðir
verksmiðjubúskapar hafa
rænt jarðveginn vítamínum
og steinefnum sem þarf til
framleiðslu á næringarríkri fæðu.
Með innleiðingu erfðabreyttra
plantna hafa eiturefnaleifar aukist
í matvælum. Í bandarískum
rannsóknum kemur fram að
glýfosat (varnarefni sem notað
er á 80% erfðabreyttra plantna)
hefur fundist í brjóstamjólk
mæðra, í þvagi, í andrúmslofti
og jarðvatni. Kanadísk rannsókn
sýndi að Bt-eitur (sem splæst er í
erfðabreyttar Bt-plöntur) fannst í
blóði þungaðra kvenna og í blóði
ófæddrra barna þeirra. Mengun
í matvælum kann að skýra
niðurstöður nýrrar rannsóknar
sem sýndi að jafnvel ríkir
Bandaríkjamenn sem tileinka
sér hollan lífsstíl eru óhraustari
og deyja fyrr en kollegar þeirra í
öðrum velmegandi löndum.
• Sóun: Allt að þriðjungur allrar
fæðuframleiðslu tapast eða er
sóað, að miklu leyti við uppskeru,
úrvinnslu og í dreifingu.
•
• Sýklalyfjaónæmi: Alþjóða
heilbrigðismálastofnunin
(WHO) varar við því að
ofnotkun fúkkalyfja valdi ónæmi
baktería við lyfjum sem beitt er
gegn sýkingum í mannfólki.
Helmingur allra fúkkalyfja er
notaður á prýðilega heilbrigt
búfé til að auka vöxt og hindra
bakteríusýkingar af völdum
þéttleika búfjár sem einkennir
verksmiðjubúskap. Þrátt fyrir
aðvaranir WHO eru flestar
erfðabreyttar plöntur með geni
sem tjáir sýklalyfjaónæmi
og veldur því að bakteríur í
umhverfinu verða ónæmar fyrir
sýklalyfjum.
Búnaðarvistfræði – Ný framtíð
FAO, IAASTD, Millennium
Institute, Worldwatch Institute
og margir heimskunnir og virtir
búnaðarhagfræðingar telja að beita
þurfi búnaðarvistfræði (agroecology)
í landbúnaði framtíðarinnar.
Búnaðarvistfræði er heildræn
langtíma sýn á landbúnað og stuðlar
að frjósemi jarðvegs og náttúrulegum
ræktunaraðferðum. Hún tengir
fæðuöryggi við félagslegt réttlæti
og hvetur til þess að samfélög og
bændur stjórni fæðuframleiðslu
en ekki fjölþjóðafyrirtæki og
ríkisstjórnir. Í tugum þróunarverkefna
í 20 Afríkulöndum þar sem
búnaðarvistfræðiaðferðum var beitt
tvöfaldaðist uppskera.
Lífrænn landbúnaður –
búnaðarvistfræði eins og hún
gerist best
• Loftslagsbreytingar: Lífrænar
aðferðir nota náttúrulegan áburð
og áburðarplöntur sem auka
lífræn efni í jarðvegi, sem aftur
eykur vatnsheldni, dregur úr
jarðvegsrofi og bindur kolefni.
Rodale stofnunin telur að ef
landbúnaður heimsins yrði
lífrænn mundi hann binda yfir
alla kolefnislosun og gott betur,
m.ö.o. snúa loftslagsbreytingum
við.
• Aðföng: Lífrænn landbúnaður
bannar notkun tilbúins áburðar
og eiturefna. Staðlar um lífræna
framleiðslu banna ennfremur
sýklalyf, vaxtarhormóna,
geislun, gervisætu- og
gervilitarefni.
• Erfðabreyttar lífverur: Erfða-
breyttar lífverur eru bannaðar
í lífrænni framleiðslu, þ.m.t.
erfðabreytt fræ og fóður.
• Sáðskipti: Lífrænar aðferðir
banna síræktun en gera ráð
fyrir sáðskiptum sem með
réttum vinnubrögðum geta aukið
uppskeru um 20-30%.
• Orka: Lífræn bú nota 30-50%
minna af jarðefnaeldsneyti en
verksmiðjubúin.
• Líffræðileg fjölbreytni: Ný
rannsókn sem birt er í tímaritinu
Journal of Applied Ecology
sýnir að líffræðileg fjölbreytni
er 34% meiri á lífrænum býlum
samanborið við hefðbundin býli.
• Næring: Nýleg ritrýnd
grein ing á 343 rannsóknum
sýnir að lífræn matvæli eru
næringarríkari en hefðbundin
matvæli, m.a. hvað varðar hærri
gildi andoxunarefna, og lægri
gildi þungmálma og minni leifar
eiturefna.
• Uppskera: Í skýrslum
Sameinuðu þjóðanna kemur
fram að í 114 þróunarverkefnum
í 24 Afríkulöndum hafi
lífræn býli og býli sem beita
sambærilegum aðferðum sýnt
yfir 100% uppskeruauka.
• Kostnaður: Lífræn matvæli
eru ekki dýr. Ef tjón á umhverfi
og heilsufari (dulinn kostnaður)
eru tekin með í reikninginn
við framleiðslu matvæla, eru
hefðbundin matvæli dýrari en
lífræn matvæli.
Sandra B. Jónsdóttir
sjálfstæður ráðgjafi
Lesendabás
Hvernig brauðfæða má heiminn – og snúa loftslagsbreytingum við
Sandra B. Jónsdóttir.
Ferskar lífrænar afurðir
úr íslenskum landbúnaði.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri 700 - Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Vinsælasta rúllusamstæðan á Íslandi
McHale er brautryðjandi í innleiðingu á nýrri tækni við innpökkun á rúllum með breiðri plastfilmu í stað nets.
Einföld í notkun
Einstök ending
Afkastamikil & áreiðanleg
Tvöfalt hnífaborð - 25 hnífar í einu
Niðurfellanlegt gólf
Frábær þjöppun
Fljótleg & þægileg
Hámarksgæði á plöstun
Þéttari rúllur með plasti í stað nets
Erum byrjuð að taka
við pöntunum á
jólahlaðborðin okkar
22. nóvember
29. nóvember
6. desember
13. desember
Góður matur og lifandi tónlist
Verðið er 7.900 kr. á mann
Upplýsingar og miðapantanir í 478-1074
Hótel Smyrlabjörg