Bændablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 50

Bændablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014 Vélabásinn liklegur@internet.is Hjörtur L. Jónsson BMW F800 GS mótorhjól árgerð 2014: Á 85 hestafla þýskum gæðingi í löngum prufuakstri Í ágúst síðastliðinn tók ég lengsta prufuakstur sem ég hef tekið á nýju ökutæki með það í huga að fjalla um tækið í Bændablaðinu. Mér var boðið í 10 daga mótorhjólatúr að prufa BMW F800 GS árgerð 2014 af umboðsaðila BMW mótorhjóla á Íslandi. Reykjavík Motor Center bauð mér að fara sem öryggis fylgdarmaður með nokkrum erlendum ferðamönnum 3.500 km hringferð um landið. Í boði var vel útbúið hjól Hjólið sem mér var boðið var með aukabúnaði sem er veltigrind, festingar fyrir farangurstöskur á hliðum og svokölluð topptöskufesting fyrir aftan farþegasætið. Hlífar fyrir framan hendurnar til varnar grjótkasti, virkar vel sem vind- og regnhlíf líka, einnig var hlífðarplata undir mótornum til varnar fyrir púst og vél á torfærum, grýttum vegslóðum. Mér bauðst að hafa töskur allan hringinn fyrir farangur, en kaus að fara bara með eina tösku fyrir aftan farþegasætið (topptösku). Öll BMW mótorhjól eru útbúin með ABS-bremsubúnaði, tveggja þrepa hita í handföngum, einnig er komið í sumar tegundir BMW-hjóla spólvarnarbúnaður sem er í F800 hjólunum. 10 dagar við misjöfn akstursskilyrði Fyrstu tveir dagarnir voru í ágætis veðri, en fóru að mestu í að kenna einum ferðafélaganum að keyra mótorhjól á malbiki. Ferðahraðinn byrjaði í 40 til 50 á Nesjavallavegi og var kominn í 90 kílómetra hraða á miðjum öðrum degi ferðarinnar. Á degi þrjú voru malarvegir, fyrst Hellisheiði eystri, brattur upp úr Berufirðinum og er hlykkjóttur malarvegur með tilheyrandi holum. Þarna passaði vel að finna réttu stillinguna fyrir mitt aksturslag á malarvegi. Eftir nokkurt fikt í fjöðruninni taldi ég mig vera kominn með þægilega stillingu. Mjúkleiki tölvustýrðrar fjöðrunar var á miðstillingu (norm) og spólvörnin stillt á „enduro“, sem leyfði aðeins meira átak og smá spól á afturdekkið áður en sjálfvirk spólvörnin tók kraftinn úr vélinni ef gefið var of mikið í. Áfram var ekið og á malbiki að Grímsstöðum, en þaðan og niður í Ásbyrgi hefur löngum verið með eindæmum vondur vegur. Þarna naut BMW F800 hjólið sín best af hjólum ferðarinnar hvað fjöðrun varðar. Oft hef ég ekið þennan veg, en aldrei eins mjúklega og á þessu hjóli. Kom á óvart í miklum hliðarvindi F800 hjólið hafði betri aksturs- eiginleikana fram yfir önnur hjól í ferðinni á slæmum malarvegum. Sérstaklega þar sem farið var upp brekkur með mikilli lausamöl og þvottabrettum. Þar naut spólvörnin sín vel og ef undirlag er einstaklega laust er hægt að taka spólvörnina af með því að ýta á takka í stýrinu á broti úr sekúndu. Eitt kvöld ferðarinnar á leggnum um Vestfirði, tókum við fjögur hjól og fórum slæman og grýttan slóða frá botni Tálknafjarðar að hvalstöðinni á Suðureyri. Við bárum saman hjólin á vegstubb við Lambeyri, handan fjarðarins þar sem þorpið í Tálknafirði stendur. Við vorum allir sammála um að BMW F800 hjólið hafi verið best við svona aðstæður. Hin hjólin voru BMW 700 og BMW 1200. Síðustu þrjá daga ferðarinnar, frá Patreksfirði til Reykjavíkur, var einstaklega mikið rok. Mesti vindur samkvæmt sjálfvirkum vindmælum Vegagerðarinnar á bilinu 18 til 25 metrar á sek. og meira í hviðum. Að keyra þetta hjól í miklum vindi kemur glettilega á óvart og hefði ég ekki viljað vera á öðru hjóli í svona miklum vindi. Á Snæfellsnesi fuku útlendingar á mótorhjóli út af veginum og slösuðust nokkuð. Samkvæmt vindmælum var minni vindur þann dag en þegar við fórum þarna um. Borgar sig að kaupa hjólið með megninu af aukaútbúnaðinum Vélin er tveggja strokka 800cc. og á að skila 85 hestöflum við 7.500 snúninga. Sætishæðin er 88 cm, þyngd hjólsins með fullan bensíntank (17 lítrar) er 214 kg. Bensíneyðsla er á bilinu 4,4–4,8 lítrar á hundraðið. Umboðsaðilinn Reykjavík Motor Center,Kleppsvegi hefur verið að bjóða hjólið með hlífðarpönnu undir vél, töskufestingum, handarhlífum og veltibogum á hliðar (krassvörn). Þessi búnaður kostar nálægt 150.000 aukalega og er góð fjárfesting sem borgar sig strax við fyrsta fall. Grunnverð á BMW F800 GS er 2.800.000. Eftir 3.300 km reynsluakstur þá hef ég aldrei keyrt hjól sem hentar betur til ferðalaga fyrir íslenskar aðstæður. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Reykjavík Motor Center Kleppsvegi á vefsíðunni www.rmc. Á Lambeyri við Tálknafjörð er vegslóðinn í grófu sjávargrjóti, þar bárum við aksturseiginleika hjólanna saman. Myndir / HLJ Ég er ekkert stór og átti stundum erf- itt með að ná niður þessa 88 cm frá hnakki niður í jörð. MW F800 GS. Mér hentaði best að stilla tölvufjöðrunina á NORM. Spólvörnina stillti ég á ENDURO í stað road. BMW-mótorhjól eru góð til að keyra mikið standandi sem er mikill kostur á malarvegum. Í miklu roki á Snæfellsnesi. Ég á BMW F800 til vinstri í miklum hliðarvindi, eins og sjá má hallar 700 hjólið fyrir framan mig mun meira.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.