Vestfirska fréttablaðið - 17.12.1985, Side 28
vestíirska
28
vestíirska
TRETTABLAOIS
— Bækur —
ELDVÍGSLAN
Söguleg skáldsaga
eftir dr. Jónas Krístjánsson,
forstöðumann Stofnunar Áma
Magnússonar.
Bókaklúbbur Arnar og Ör-
lygs hefur sent á almennan
bókamarkað bókina Eldvígslan
eftir dr. Jónas Kristjánsson for-
stöðumann Stofnunar Árna
Magnússonar. Sagan cr frum-
raun Jónasar á sviði skáld-
sagnagerðar. Hinn kunni bók-
menntagagnrýnandi, Andrés
Kristjánsson, komst m.a. svo að
orði um söguna: „Þetta er
söguleg skáldsaga í bestu merk-
ingu þess gamla orðs. Hún er í
senn byggð á mikilli söguþekk-
ingu, fræðilegri trúmennsku og
mannlegum skilniungi. Hún
opnar almennum lesanda vík-
ingasöguna með nýjum hætti,
lýsir undir brynjuna."
Þór Magnússon þjóðminja-
vörður sagði um Eldvígsluna:
„Jónasi Kristjánssyni hefur
tekist snilldarlega að smíða úr
brotafrásögnum og skapa
skemmtilega og heilsteypta frá-
sögn í sögunni Eldvígslunni.
Ragnar konungur loðbrók og
fólk hans, einkum þó sonurinn
Ubbi, sem hér segir frá ævi
sinni, stígur sem ljóslifandi
fram úr hálfrökkri sögunnar.
Lýsingar á háttum fólks og um-
hverfi, athöfnum búskaparsýsli,
sæförum og hernaði, allt er hér
af miklum hagleik gert og held-
ur sá á penna, sem er bæði
margfróður um sögusvið sitt og
menningarsögu þess tíma. Frá-
sögninni er líkt og brugðið upp
á tjald, hrífandi og æsilegar
svipmyndir, og er þá ekki
minnst um vert, að sagan er rit-
uð á fáguðu máli og þeirri eitil-
hörðu íslensku, sem höfundur
er kunnur fyrir, þannig að unun
er að lesa.
Bókin Eldvígslan er sett og
prentuð í prentstofu G. Bene-
diktssonar en bundin í Arnar-
felli. Sigurþór Jakobsson gerði
☆
MINNINGAR HULDU Á.
STEFÁNSDÓTTUR
— Bernska
Bókaútgáfan örn og örlygur
hefur gefið út fyrsta bindi minn-
inga Huldu Á. Stefánsdóttur.
Hulda hefur skráð bók sína
sjálf, en Hjörtur Pálsson bjó
hana til prentunar.
Á bókarkápu segir m.a.: I
fyrsta bindi endurminninga
sinna segir Hulda Á. Stefáns-
dóttir frá ætt sinni og uppruna,
foreldrum sínum og bernsku-
dögum í Hörgárdal, en breiddin
í frásögn hennar tengir sögu og
samtíð og bregður ljósi yfir lið-
inn tíma, m.a. með gömlum
HULDU A.
STEFÁNSDÓTTUR
Bernska
bréfum og óbirtum kveðskap.
Fólk, atvik og staðir verða ljós-
lifandi í frásögn Huldu. Mann-
lýsingar hennar eru skýrar og
hispurslausar, yljaðar kímni og
næmum lífsskilningi. Þar er
dregin upp mynd af gömlum
búskaparháttum og daglegu lífi
í sveit og bæ fyrir áratugum.
Alþýða og höfðingjar, karlar og
konur, bændur og Hafnarstúd-
entar, hefðarkonur og heldri-
menn koma við sögu í ólíkum
verkahring og misjöfnu um-
hverfi sem vel er lýst. Þess
vegna verða minningar hennar
náma fyrir alla sem unna
mannfræði og menningarsögu
og þjóðlegum fróðleik í víðum
skilningi.
Öll frásögnin er eðlileg og
yfirlætislaus. Penninn leikur í
höndum Huldu sem kann þá
list að segja sögu, þannig að mál
og stíll hlýði höfundinum og
hrífi með sér lesandann.
Minningar Huldu Á. Stef-
ánsdóttur munu, ef að líkum
lætur, skipa henni á bekk með
nokkrum þeim löndum hennar
sem samið hafa merkastar
minningabækur á síðustu
áratugum.“
Bókin Minningar Huldu Á.
Stefánsdóttur er sett og prentuð
í Prentstofu G. Benediktssonar
en bundin í Arnarfelli hf.
Kápumynd er málverk sem
Kristín Jónsdóttir listmálari
málaði af Huldu þegar hún var
HÉRAÐSSKÓLINN AÐ
REYKJUM
1931—1981
eftir Ólaf H. Kristjánsson fyrr-
um skólastjóra.
Bókaútgáfan Öm og Örlygur
hefur gefið út bókina Héraðs-
skólinn að Reykjum 1931 —
1981 eftir Ólaf H. Kristjánsson
fyrrum skólastjóra. Á bókar-
kápu segir: „Þessi saga Héraðs-
skólans að Reykjum er skrifuð í
tilefni af því, að árið 1981 voru
fimmtíu ár liðin frá því að skól-
inn tók til starfa í janúar 1931.
Ólafur H. Kristjánsson, sem
ÖIAFUR H, KRISTJÁNSSON
HÉRAÐSSKÓLINN
AÐ REYKJUM
1931 - 1981
Saga skólans
kennara- og nemendatal
var nemandi í skólanum fyrstu
tvö starfsár hans og síðar skóla-
stjóri frá 1956— 1981, rekurhér
aðdragandann að stofnun skól-
ans, sögu hans og starfshætti í
fimmtíu ár.
Einnig eru æviskrár skóla-
stjóra og kennara og nemenda-
tal.
Auk höfundar skrifa tveir
aðrir nemendur minningar frá
námsárum sínum á Reykja-
skóla.
í bókinni eru um 190 myndir
og skipulagsuppdráttur af
skólastaðnum gerður á teikni-
stofu Reynis Vilhjálmssonar af
Sigríði Jóhannsdóttur tækni-
teiknara.
Bókin er sett og prentuð í
Prentstofu G. Benediktssonar,
en bundin hjá Arnarfelli. Á
kápu er mynd frá Reykjaskóla
eftir Björn Rúriksson en káp-
una hannaði Sigurþór Jakobs-
" ☆
Skíðabúnaður
Til jólagjafa
Skíði frá Atomic og Dynastar
Bamaskíði verð frá 2.900 til 3.850
Unglingaskíði verð frá 3.990 til 8.900
Fullorðinsskíði verð frá 6.100 til 10.600
KEPPNIS
3.800,-
MILLIGERÐ
2.990,-
KEPPNIS DÖMU, MILLIGERÐ
9.980,- 6.300,-
TÚRISTA
1.950,-
HERRA, MILLIGERÐ
7.875,-
FYRIR ALLA
820,-
BYRJENDA
4.990,-
HERRA OG DÖMU
5.300,-
KRAKKA
Verð frá 1.850,- tU 2.360,-
UNGLINGA OG DÖMU
3.390,-
R180
R 188
Kr. 880,-
Kr. 430,
1.100,-
SPORTHIAÐAN h.f.
SILFURTORGI 1
400 ÍSAFIRÐI
SÍMI 4123