Vestfirska fréttablaðið - 17.12.1985, Blaðsíða 42
vestflrska
42
rRETTAÐLAÐID
Útflutningstekjursjávarútvegsinsdrógustsamanum8,5milljarðakrónaáárunum 1981 til 1984.
farið mjög vel út úr þessum
kvótasölum. Hingað hefur verið
keyptur kvóti en nánast enginn
kvóti seldur út úr kjördæminu.
Þannig að við höfum fengið inn
í kjördæmið mikinn fisk vegna
þessa möguleika en látið nánast
engan.
Það eru engar takmarkanir á
tilfærslu kvóta milli skipa innan
sömu verstöðva eða innan sömu
útgerðar, það er aðeins spurn-
ing um aukið hagræði. Aftur á
móti ef menn hyggjast selja
kvóta milli byggðarlaga, þá þarf
að fá samþykki ýmissa aðila
innan sveitarfélagsins sem mál-
ið kann að varða, svo sem
verkalýðsfélag auk sveitar-
stjómar. Auk þess þarf að til-
kynna þetta til
sjávarútvegsráðuneytisins."
Verður þetta frumvarp sam-
þykkt?
„Já, ég held að það sé alveg
ljóst að þetta frumvarp verður
samþykkt, ég veit t.d. ekki nema
um einn framsóknarmann sem
kemur til með að greiða at-
kvæði á móti því og það er Ól-
afur Þórðarson. Þorvaldur
Garðar Kristjánsson hefur allt-
af greitt atkvæði gegn kvóta-
frumvarpi. Þá er Matthías
Bjarnason andstæðingur kvót-
ans. Mér heyrðist í umræðum á
þingi að fulltrúar Kvennalistans
væru fylgjandi frumvarpinu.
Alþýðubandalagsmenn eru trú-
lega eitthvað klofnir í afstöðu
sinni, þannig að þrátt fyrir allt
þá verður frumvarpið samþykkt
með miklum meirihluta. Nú á
ég von á því að sjávarútvegur og
fiskvinnsla sætti sig við þessa
skipan mála þrátt fyrir að vitað
sé um mikla óánægju með þetta
mál.
Kvótinn var samþykktur á
Fiskiþingi og LÍÚ þingi. Ég tel
að staðan hafi verið sú að menn
gátu ekki sameinast um aðra
leið, þó svo að óánægja með
kvótann hafi verið talsverð.
Farmanna- og fiskimannasam-
bandið greiddi hinsvegar at-
kvæði gegn kvótalögunum á
sínum tíma, en eins og ég sagði,
á meðan ekki er hægt að sam-
fylkja þessum öflum, þá er tómt
mál að tala um annað en að
sætta sig við orðinn hlut.“
Einhver orð um stöðu útgerð-
arinnar að lokum miðað við að
þessar breyttu aðstæður sem nú
eru í sjónmáli?
„Ég vil fyrst og fremst leggja
áherslu á það að ég tel að það sé
ekkert sem bendir til þess að
kvótinn hafi valdið neinum
sparnaði í útgerðarrekstri, það
er þvert á móti hægt að benda á
hið gagnkvæma og ég held að
reynsla liðins hausts sým
mönnum afdráttarlaust að
kvótinn hefur síður en svc
valdið spamaði í togaraútgerð.
Það hefur verið bent á að fisk-
mat hafi batnað, ég held að þæi
tölur sem þar eru nefndar séu
svo óáreiðanlegar að á þeim sé
ekkert að byggja, þannig að ég
held að kvótinn hafi ekki gert
neitt til þess að bæta stöðu út-
gerðarinnar. Á hinn bóginn má
segja að staða útgerðarinnar
hafi skánað lítillega á þessu
síðasta ári vegna aukins afla,
auk þess sem gámasölur hafa
fært útgerð og áhöfnum skipa
auknar tekjur, en engu að síður
er vandinn í sjávarútveginum
sem heild enn fyrir hendi og
ekki síður alvarlegur en áður.
En það er efni í aðra umfjöll-
un.“.
Sokkabands-
árin hennar
w
Asthildar
Hún Ásthildur hefur sent frá sér
plötuna Sokkabandsárin. Undirrit-
aður var ákveðinn í að kaupa plöt-
una þegar fréttin af þessu barst um
bæinn, þó ekki væri til annars en
styðja við bakið á bjartsýnu fram-
taki hennar, því það þarf kjark til
að ráðast í jafn mikið fyrirtæki og
slíkt er.
Eftir að hafa hlustað á plötuna
get ég fullvissað menn um, að það
þarf ekki á nokkurn hátt að réttlæta
kaupin, því hún er sinna peninga
virði og vel það.
Lögin eru fjölbreytt og lífleg og
flutningur allur með mestu ágæt-
um.
Þetta er plata, sem er höfundi
sínum til sóma.
Ásthildur, hafðu þökk fyrir
framtakið.
Pétur Bjamason.
I GLEÐILEGJOU1
Aðalfundur
Aðalfundur Vélsmiðjunnar Þór hf. fyrir árið
1984 verður haldinn á skrifstofu félagsins
laugardaginn 28. desember kl. 11.00.
Dagskrá samkvæmt félagssamþykktum.
Stjórnin
Ásthildur í sólskiiisskapi. Platan hefur fengið góða dóma.
kom út á seinasta ári og er
ennþá fáanlegt í bókabúðum.
Félagsmenn Sögufélags ís-
firðinga geta pantað það frá
afgreiðslu félagsins:
Pósthólf 43,
ísafirði.
Annað bindið frá 1867 — 1920
er væntanlegt á næsta ári
Gefið vinum ykkar Sögu ísafjarðar
og Eyrarhrepps hins forna
(.Þetta fyrsta bindi af Sögu ísafjarðar er vönduð bók að gerð og frágangi."
Halldór Kristjánsson, Tímanum.)