Sagnir - 01.06.1999, Blaðsíða 42

Sagnir - 01.06.1999, Blaðsíða 42
Sakamannalsingar  Alingi 41 þingi. Aftur á móti tíðkast sakamannalýsingar á það löngu tímabili að rétt er að álykta að lýsingarnar hljóti að hafa borið einhvern árangur. Vert er að velta því fyrir sér hvernig vitneskjan um eftirlýsta glæpamenn sem lýst var á Alþingi barst um landið. Á síðari hluta 17. aldar var farið að prenta Alþingisbækur en áður höfðu Al- þingisritarar tekið afrit „og sent sýslumönnum, klausturhöldurum og lénsjarðahöldurum sitt eintak hverjum, auk þess sem biskupar og sjálfsagt ýmsir fleiri hafa líka út- vegað sér eintak.“17 Á því tímabili sem hér um ræðir voru nítján Al- þingisbækur prentaðar, en þrátt fyrir það voru prentuðu eintökin varla fljótari að berast notendum en þau uppskrifuðu.18 Prentun bókanna hefur því vart greitt fyrir handtöku eftirlýstra glæpamanna. Hið mesta drykkjusvín Í Alþingisbókum má finna eina lýsingu á tímabilinu 1684- 1730 þar sem auðkennum embættismanns er lýst. Árið 1724 var lesið skjal í lögréttu, dagsett að Ögri 9. júlí sama ár. Bréf- ið var frá Markúsi Bergssyni, sýslumanni í Ísafjarðarsýslu, sem ekki kom til þings. Í bréfinu er lýst eftir Snæbirni Páls- syni lögréttumanni sem hættir setu í lögréttu þetta ár og er sagður burtstrokinn úr Ísafjarðarsýslu og ásakaður fyrir að hafa ekki greitt sektir sínar vegna illmæla sinna við kaupmanninn Pét- ur Arvidsson. Auk þess er Snæbjörn sagður „í stórri sekt við kóngdóm- inn.“ Lýsingin á Snæbirni er svohljóðandi: Kallmannlegur og hraðgengur í fram- göngu, hávaxinn og flatvaxinn, herða- breiður, mittismjór, fótagrannnur, þykkhentur, en þó ekki harðhentur, dökkvari á hárið samt brún og brá en jarpur, hefur mikið hár, sem hrökkur neðan, rakar sitt skeggstæði, grann- leitur og kinnbeinahár í andliti, með þunnt nef og hátt að framan, háleitur og langhálsaður, vel lesandi og skrif- andi, heldur sér til gildis sem meiri menn til klæða, hátalaður, hraðmælt- ur, hrokafullur, bítur á vörina og sýgur nefið, þá illu er að skipta, tekur ákaflega nef-tóbak og af því nefmæltur, og hið mesta drykkju svín.19 Varla getur lýsingin talist vilhöll Snæbirni og vart hafa þeir verið vinir Snæbjörn og bréfritari, Markús Bergsson. Lýsing- in er líka ótrúlega nákvæm miðað við að margir þeir sem staddir voru í lögréttu til að hlýða á hana hafa kannast við Snæbjörn frá fyrri þingum við Öxará, enda ekki að undra hve mikil áhersla er lögð á að lýsa neikvæðum hliðum hans.20 Forsaga þessarar lýsingar er um margt merkileg en árið 1723 hafði Snæbjörn stefnt Markúsi Bergsyni og Ormi Daða- syni sýslumanni í Barðastrandasýslu vegna þess að hann taldi á sig hallað í málsmeðferð þeirra í deilum sínum við Pétur kaupmann. Hóf hann því allmikinn málarekstur á hendur sýslumönnunum.21 Ekki gekk þó betur hjá Snæbirni en svo að hann var sjálfur dæmdur í sekt og áminntu lögmenn Snæbjörn á að haga sér skikkanlega í málssóknum sínum og eftir þeim reglum konungs sem um þær giltu og lauk þessum málum þannig það árið að Markúsi var falið að handtaka Snæbjörn. Það var síðan þrjóska Snæbjarnar til að greiða sektir sínar kaupmanni og kóngi sem leiddi til þess að Markús lýsti eftir honum árið 1724. Að vera lýst í sakamannalýsingu á Alþingi hefur verið mikil svívirða fyrir mann sem var í einhverjum metum í sam- félaginu, enda brást Snæbjörn hart við þegar lýsingin birtist árið 1724. Eftir að lýsingin var lesin segir í Alþingisbók að Snæbjörn Pálson hafi verið „persónulega hér í réttinum til staðar og beiddist copíu af lýsingunni, hverja hann fékk.“ Páll Vídalín lögmaður gekk síðan í ábyrgð fyrir Snæbjörn að hann myndi ekki skjóta sér undan kóngsins lögum og rétti, en Páll og Snæbjörn voru svilar. Snæbjörn er síðan látin fylgja sýslu- manni Sigurði Jónssyni úr Borgarfjarðarsýslu til heimilis hans að Hvítárvöllum.23 Ári síðar var Snæbjörn aftur á Alþingi og nú í hefndarhug. Þangað var einnig kominn sýslumaðurinn Markús Bergsson til að verja sig í máli Snæbjörns gegn honum. Deiluefnið var lýsing sú sem gefin var af Snæbirni og vildi hann vita hvort Markús hefði látið lýsinguna frá sér. Fyrir það þvertók Mark- ús og vann eið þess efnis: Egill var mikilleitur, ennibreiður, brúnamikill, nefið ekki langt en ákaflega digurt, granstæðið vítt og langt, hakan breið furðulega og svo allt um kjálkana, hálsdigur og herðamikill, svo að það bar frá því sem aðrir menn voru, harðleitur og grimmlegur þá er hann var reiður. Hann var vel í vexti og hverjum manni hærri, úlfgrátt hárið og þykkt og varð snemma sköllóttur. Egill Skallagrímsson í Egils sögu Sagnir 1999 „ ... rauðbirkinn á hár, sköllóttur, en kembir hárið frá hnakka og fram á ennið ... “ Lýsing á Steingrími Helgasyni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.