Sagnir - 01.06.1999, Side 15

Sagnir - 01.06.1999, Side 15
14 Byggastefna bndasamflagsins Sagnir 1999 Árið 1861 lýsti óþekktur höfundur því í Norðra hvernig samfélagið varð veikara fyrir hallæri ef of margir fengu leyfi til að hefja búskap í góðæri.11 Jarðir urðu fleiri og smærri og hjú tolldu verr í vinnumennsku þegar vel áraði. Bestu möguleikar smábónda á lífvænlegum búskap fólust þá í því að fjölga fé og treysta á vetrarbeit eða, ef hún brást, á hjálp annarra bænda. Vegna þessa urðu margir heylausir, „jafnvel í bestu vetrum, en talin óhæfa að hjálpa þeim ekki, hversu óverðugir sem þeir eru og fyrir lítið eða ekkert.“12 Meðan margir tefldu á tæpasta vað gátu fáir eignast fyrningar til að standast harða vetur. Því fleiri sem fjölskyldurnar voru sem bjuggu við sultarmörk í góðæri, því viðkvæmari varð byggðin fyrir næsta hallæri. Þegar búskapur smábænda brást komust þeir ekki aftur í vinnumennsku því að vinnuaflsþörf minnkaði í hörðum árum. Fólk sem áður hafði talist matvinnungar varð að ómögum og börnin niðursetningar á framfæri sveitarinnar. Athyglisvert er að þegar byggð er orðin of þétt og smábýlin of mörg telur höfundur að samhjálp bænda geri aðeins illt ástand verra. Hún elur upp í mönnum dirfsku og kæruleysi og magnar vítahring góðæra og hallæra. Með tilliti til takmarkaðrar framleiðslugetu gamla bændasamfélagsins virðast meginhugmyndir bænda fela í sér tilraun til aðlögunar að náttúrunni með því að viðhalda hagstæðustu dreifingu og þétt- leika byggðar. Koma varð í veg fyrir óæskilega fjölgun býla, ekki aðeins við sjó heldur einnig í sveitunum, og halda stöðugu og hagstæðu jafnvægi milli fjölda bænda og ógiftra vinnuhjúa. Þannig skyldi einnig komið í veg fyrir fólksfjölgun umfram það sem landið gat borið. Af framansögðu er ljóst að ekki er sanngjarnt að gera samanburð á frelsi og mannréttindum í nútíð og fortíð og benda á mismuninn til að fordæma íslenska bændastétt fyrir mannvonsku. Ef eingöngu er tekið mið af reynslu gamla samfélagsins sjáum við kúgun hinna ráðandi stétta á þeim lægra settu í nýju ljósi. Við hljótum að túlka hana, að minnsta kosti að hluta til, sem viðleitni til að afstýra þeim hörmungum sem hvað eftir annað fylgdu í kjölfar fólksfjölgunar. Því þótt fólksfjölgun hafi, er fram liðu tímar, orðið aflvaki jákvæðra þjóðfélagsbreytinga hér sem annars staðar, hefur hún miklu oftar í sögu mannkyns leitt til hörmunga, vaxandi fátæktar og síðan skyndilegrar mannfækkunar af völdum hungurs og sjúkdóma.13 Hugsunarháttur í skugga hallæra Fernand Braudel lýsir sams konar sveiflum (þó með lengra millibili) í fólksfjöldasögu Evrópu og heldur því fram að fólk hafi ekki gert sér grein fyrir því fyrr en um seinan að vel- megunin sem fylgdi í kjölfar fólksfækkunar tæki enda þegar fólki fjölgaði á ný.14 En íslensk alþýða gerði ráð fyrir hallæri með reglulegu millibili.15 Full ástæða er því til að ætla að margir hafi gert sér grein fyrir orsakasamhengi milli fólksfjölgunar og mannfalls af hallærum og að sumir hafi jafnvel, þegar þeim þótti í óefni komið, talið æskilegra að óhjákvæmilegt hungrið kæmi fyrr en seinna. Í hungursneyð dóu helst þeir sem töldust vera samfélaginu til byrði. Þessa tilgátu um grundvallarorsök frelsishafta í gamla samfélaginu ber ekki að skilja svo að hún hafi dags daglega verið flestu fólki efst í huga sem réttlæting á húsaga og stéttaskiptingu. Því verður heldur ekki haldið fram hér að mannúðarsjónarmið hafi mátt sín mikils þegar mest á reyndi í samskiptum milli bænda og vinnuhjúa né heldur innan bændastéttarinnar sjálfrar. Víða má sjá þess merki í heimildum að eðlilegt þótti að Brúðkaup árið 1872. Þegar efnt var til brúðkaupsveislna á fyrri hluta 19. aldar kom það í hlut hreppstjóra að raða fólki í sæti. Sætaskipanin fór eftir virðingarröð hver og eins, og tók oft nokkurn tíma að raða fólkinu í rétt sæti. „Ekki er sanngjarnt að gera samanburð á frelsi og mannréttindum í nútíð og fortíð og benda á mis- muninn til að fordæma ís- lenska bændastétt fyrir mannvonsku.“

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.