Sagnir - 01.06.1999, Page 78

Sagnir - 01.06.1999, Page 78
Umsgn um 19. rgang Sagna í því sambandi. Svo þarf myndvinnsla líka að vera viðunandi. Það er heildarsvipur á blaðinu en ég verð að segja að ég vona að þar hafi ekki verið gerðar áætlanir til margra ára. Blaðið er ofhlaðið og órólegt. Umbrotið er kannski djarft en of mikið af stælum fyrir minn smekk og ég verð að segja að umbrot árganganna á undan hefur vinninginn. Hverfið því aft- ur til einfaldleikans, ekki þó þess sem var. Leitið ráða hjá stúdentum í Listaháskólanum; gæti ekki komið spennandi samstarf út úr slíkri málaleitan? Fjölbreytt efni Þá að efni Sagna í stuttu máli. Ég las margar greinanna í blað- inu með ánægju. Grein Valdimars Stefánssonar um hugmynd- ir Íslendinga um versnandi heim var athyglisverð; hann hefði þó etv. mátt setja umfjöllun sína meira í hugmyndasögulegt samhengi, enda er þetta ekkert séríslenskt fyrirbæri. Grein um Björn ríka er sömuleiðis ágætt framlag en heldur fannst mér umfjöllun um kaldastríðs-ráðstefnu bragðdauf, kannski var ráðstefnan það bara? Jón Ólafur Ísberg er hressilegur í framgöngu eins og hann á vanda til í umfjöllun sinni um sambandslög og sjálf- stæði. Björn Bjarnason tekur málið nokkuð alvarlegum tök- um í Sögnum. Stundum er þó ekki hægt að komast hjá því að birta slíkt efni en þarf að vera í hófi. Þess eru einnig dæmi að góðar myndir fái ekki að njóta sín, til dæmis ágætar mannlífs- myndir í grein um Höfðaborgina. Þær hefðu mátt fá meira rými en röstuð mynd af þjóðstjórninni vel mátt missa sín. Og hvað á mynd á bls. 78 af fornleifagreftri úr erlendri bók að segja okkur og hvers eiga hrossin að gjalda neðar á sömu síðu? Of margar myndir í grein um ´68 kynslóðina eru kunn- uglegar; fleiri mótmæltu en Össur, Gísli og Gunnar. Myndir af mótmælum alls konar eru til í bunkum í myndasafni Þjóðvilj- ans á Ljósmyndasafninu. En vertu nú sanngjarn! Sums staðar eru betri sprettir. Til dæmis er ég sæmilega sáttur við myndir í viðtali við Jesse Byock. Ég veit að þetta fer að verða nöldurkennt hjá mér en mér finnst að myndanotkun í Sögnum, og reyndar víða annars staðar megi vera markvissari, gera þarf kröfur um myndgæði, nota helst ekki annað en orginala nema í undantekingartilfellum, fá leyfi fyrir myndbirtingum, skera ekki myndir groddalega (dæmi um slíkan skurð sést m.a. á bls. 26 þar sem sýnt er fámenni við styttu Kristjáns IX, og höfuðið tekið af gamla manninum!), eins og dæmi eru um í blaðinu, leyfa myndum að njóta sín og síðast en ekki síst að nýta myndirnar markvisst með textanum þó að auðvitað þurfi ekki að binda sig við einhverjar kreddur Sagnir 1999 77 Of margar myndir í grein um ´68 kynslóðina eru kunnuglegar; fleiri mótmæltu en Össur, Gísli og Gunnar.

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.