Sagnir - 01.06.1999, Page 71

Sagnir - 01.06.1999, Page 71
70 Stjrnmlastefna Slobodan Milosevic Sagnir 1999 höfðu saman á Kosovosléttunni til að minnast þess að 600 ár voru liðin frá ósigri þeirra í orrustu gegn Tyrkjum. Sú ræða markar upphafið á braut Milosevic í átt að vopnuðum átökum við önnur sambandslýðveldi Júgóslavíu. Orrustan var háð þann 28. júní 1389 og leiddi af sér 500 ára yfirráð Tyrkjaveld- is yfir Serbum. Enginn annar atburður hefur haft eins mikla þýðingu fyrir serbneska þjóðarsál og eru Serbar einir fárra þjóða ef ekki þeir einu sem halda reglulega upp á ósigur sinn í orrustu. Í ræðu sinni skírskotaði Milosevic til goðsagna þjóð- arinnar um baráttuþrek og hreysti. Hún þyrfti einmitt á þess- um eiginleikum að halda í dag á tímum heiftúðlegra deilna við aðra þjóðernishópa Júgóslavíu og „...í þetta skipti eigum við ekki í vopnaðri baráttu, en þess háttar hluti er ekki hægt að útiloka.“9 Þarna gaf Milosevic fyrirheit um það sem koma skyldi á næstu árum. Beiting þjóðernishyggjunnar féll í góð- an jarðveg hjá Serbum, en öll þjóðernishyggja hafði verið bæld niður á tímum Títós. Þegar Milosevic var spurður síðar út í ræðuna, neitaði hann því kröftulega að hún hefði verið full kynþáttahroka og til þess fallin að æsa upp Serba. Hann sakaði í staðinn vestræna fjölmiðla um að afbaka hana.10 Í átt til sterkrar miðstýringar Sú staðreynd að Milosevic notaði sér mátt þjóðernishyggj- unnar til að sameina Serba að baki sér hræddi íbúa annarra sambandslýðvelda Júgóslavíu og þeim fannst sér ógnað. Á sama tíma og Milosevic var sameiningartákn fyrir Serba var hann einnig tákn sundrungar fyrir aðrar þjóðir Júgóslavíu. Í Slóveníu nutu íbúarnir mun betri lífsgæða en í hinum sambandslýðveldunum og atvinnuleysi var einnig minna þar. Samt sem áður dróst hagvöxtur í landinu saman frá því um miðjan níunda áratuginn. Slóvenar lögðu til fjórðung af heild- artekjum sambandsríkisins, en þeir töldust þó aðeins til 8% af júgóslavnesku þjóðinni. Áætlanir um að samtvinna fjármál sambandslýðveldanna enn meir til að komast út úr efnahag- skreppunni féll þar með ekki í góðan jarðveg hjá Slóvenum. Þeim fannst þegar fullmikið borgað til ríkiskassans og þótti fýsilegra að bæta sambandið við nágrannaríkin Austurríki, Ítalíu og Ungverja- land til að vinna sig út úr efnahagsvandanum.11 Í Slóveníu hafði ríkt nokkuð frelsi í pólitískri starfsemi í byrjun níunda áratugarins, a.m.k borið saman við ástandið í öðrum kommúnistaríkjum á þessum tíma. Milan Kucan, formaður Kommún- istaflokks Slóveníu síðan 1986, var þeirrar skoðun- ar að stjórnarfarslegra og efnahagslegra umbóta væri þörf ef tryggja ætti framtíð Slóveníu. Ljóst var að án róttækra breytinga ætti Slóvenía engan möguleika. Þar með hófust hinar endalausu deilur milli Kucan og Milosevic.12 „Bróðerni og samein- ing“ var eitt af slagorðum Títós og tákn fyrir hug- myndina að baki Júgóslavíu. Slóvenskir stjórn- málamenn voru orðnir afhuga arfleið hans og boð- uðu nýja tíma. En fleiri voru orðnir afhuga arfleið Títós. Ein af tillögum Milosevic var breyting á þingsætaskipan sambandsþings Júgóslavíu. Því var skipt í tvær mál- stofur og í báðum þeirra hafði hvert sambandslýð- veldi jafnmarga þingmenn. Hann vildi að hlutfall þingfulltrúa væri í hlutfalli við íbúafjölda landsmanna, þ.e.a.s. eitt atkvæði á einn borgara. Slóvenar mótmæltu tillögum Milosevic kröftulega og vildu halda gamla kerfinu. Hið nýja skipulag hefði í för með sér, vegna yfirgnæfandi meirihluta Serba í sambandsríkinu, að serbneskir þingmenn gætu haft forræði yfir hinum sambandslýðveldunum. En af 21,5 milljón íbúa Júgóslavíu bjuggu 9,8 milljónir í Serbíu.13 Á tímum þjóð- ernishyggju, þar sem allt stefndi í þá átt að sambandslýðveld- in tækju eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni heildarinnar, ótt- uðust hin sambandslýðveldin einmitt pólitískt forræði Serba. Áköf barátta Serba fyrir tillögunum virtist aðeins rökstyðja að óttinn væri ekki tilefnislaus.14 Milosevic heilsar þýska stjórnmálamanninum Gregor Gysi. Hershöfðinginn og sagnfræðingurinn Franjo heitinn Tudjman varð einn helsti andstæðingur Milosevic.

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.