Sagnir - 01.06.1999, Qupperneq 78
Umsgn um 19. rgang Sagna
í því sambandi. Svo þarf myndvinnsla líka að vera viðunandi.
Það er heildarsvipur á blaðinu en ég verð að segja að ég
vona að þar hafi ekki verið gerðar áætlanir til margra ára.
Blaðið er ofhlaðið og órólegt. Umbrotið er kannski djarft en
of mikið af stælum fyrir minn smekk og ég verð að segja að
umbrot árganganna á undan hefur vinninginn. Hverfið því aft-
ur til einfaldleikans, ekki þó þess sem var. Leitið ráða hjá
stúdentum í Listaháskólanum; gæti ekki komið spennandi
samstarf út úr slíkri málaleitan?
Fjölbreytt efni
Þá að efni Sagna í stuttu máli. Ég las margar greinanna í blað-
inu með ánægju. Grein Valdimars Stefánssonar um hugmynd-
ir Íslendinga um versnandi heim var athyglisverð; hann hefði
þó etv. mátt setja umfjöllun sína meira
í hugmyndasögulegt samhengi, enda
er þetta ekkert séríslenskt fyrirbæri.
Grein um Björn ríka er sömuleiðis
ágætt framlag en heldur fannst mér
umfjöllun um kaldastríðs-ráðstefnu
bragðdauf, kannski var ráðstefnan það
bara? Jón Ólafur Ísberg er hressilegur í framgöngu eins og
hann á vanda til í umfjöllun sinni um sambandslög og sjálf-
stæði. Björn Bjarnason tekur málið nokkuð alvarlegum tök-
um í Sögnum. Stundum er þó ekki hægt að komast hjá því að
birta slíkt efni en þarf að vera í hófi. Þess eru einnig dæmi að
góðar myndir fái ekki að njóta sín, til dæmis ágætar mannlífs-
myndir í grein um Höfðaborgina. Þær hefðu mátt fá meira
rými en röstuð mynd af þjóðstjórninni vel mátt missa sín. Og
hvað á mynd á bls. 78 af fornleifagreftri úr erlendri bók að
segja okkur og hvers eiga hrossin að gjalda neðar á sömu
síðu? Of margar myndir í grein um ´68 kynslóðina eru kunn-
uglegar; fleiri mótmæltu en Össur, Gísli og Gunnar. Myndir af
mótmælum alls konar eru til í bunkum í myndasafni Þjóðvilj-
ans á Ljósmyndasafninu. En vertu nú sanngjarn! Sums staðar
eru betri sprettir. Til dæmis er ég sæmilega sáttur við myndir
í viðtali við Jesse Byock.
Ég veit að þetta fer að verða nöldurkennt hjá mér en mér
finnst að myndanotkun í Sögnum, og reyndar víða annars
staðar megi vera markvissari, gera þarf kröfur um myndgæði,
nota helst ekki annað en orginala
nema í undantekingartilfellum, fá
leyfi fyrir myndbirtingum, skera ekki
myndir groddalega (dæmi um slíkan
skurð sést m.a. á bls. 26 þar sem sýnt
er fámenni við styttu Kristjáns IX, og
höfuðið tekið af gamla manninum!),
eins og dæmi eru um í blaðinu, leyfa myndum að njóta sín og
síðast en ekki síst að nýta myndirnar markvisst með textanum
þó að auðvitað þurfi ekki að binda sig við einhverjar kreddur
Sagnir 1999 77
Of margar myndir í grein um ´68
kynslóðina eru kunnuglegar; fleiri
mótmæltu en Össur, Gísli og
Gunnar.