Morgunblaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Reykjavíkurborg tekur brátt yfir húsnæði á
Hlemmi og leitar að rekstraraðila til að koma
þar á fót veitinga- og matarmarkaði sem verði
opinn alla daga. Borgin
birti auglýsingu hinn 12.
júní sl. þessa efnis og var
umsóknarfrestur gefinn til
6. júlí sl.
Hjálmar Sveinsson, for-
maður skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar, sagði í
samtali við Morgunblaðið í
gær, að borist hefðu nokkr-
ar umsóknir sem nú væru
til skoðunar hjá borgarráði.
„Það eru komnar inn til-
lögur frá nokkrum aðilum og það er verið að
skoða þær núna. Þar gera umsækjendur
grein fyrir því hvers konar rekstur þeir sjá
fyrir sér á Hlemmi og skila inn rekstrar-
áætlun. Ég hugsa að það sé frekar stutt í það
að rekstraraðili verði valinn og það verður þá
tilkynnt,“ sagði Hjálmar.
Á heimasíðu Reykjavíkurborgar segir m.a.:
„Viðskiptavinir eiga að geta notið veitinga á
staðnum og þar verður einnig í boði fjölbreytt
úrval matar svo sem kjöt, fiskur, grænmeti,
ávextir auk tengdrar sérvöru á borð við blóm
og kaffi.“
Þar kemur jafnframt fram að nýr rekstrar-
aðili muni taka þátt í að skipuleggja breyt-
ingar á hlutverki hússins í samvinnu við
Reykjavíkurborg. Hann velji verslanir og
veitingastaði til samstarfs, afli tilskilinna
leyfa, sjái um kynningar- og markaðsmál og
annist allan daglegan rekstur hússins, þar
með talið rekstur á salernum og örygg-
isvörslu. Reykjavíkurborg geri sérstaklega
ráð fyrir því að salerni verði opnuð aftur í
húsinu.
Strætó leigir áfram lítinn hluta Hlemms
Strætó B.S. muni áfram leigja lítinn hluta
húsnæðisins undir starfsmannaaðstöðu fyrir
vagnstjóra sína. Starfsemi Strætó mun færast
í Vatnsmýrina þegar ný umferðarmiðstöð
verður tekin þar í notkun.
Við val á rekstraraðila verði lagt til grund-
vallar nálgun við hugmyndina, hönnun og út-
lit, tenging við anda skipulags á svæðinu,
þekking, reynsla og fjárhagsgeta viðkomandi
ásamt viðskiptaáætlun. Þegar rekstraraðili
hafi verið valinn verði samið nánar um leigu
fyrir húsið á grundvelli markaðsleigu á nær-
liggjandi svæði og mögulegs kostnaðar við
breytingar á húsnæðinu.
„Nálægð við gamla miðbæinn er svæðinu til
framdráttar en hefur þó ekki tekist að vera
nægilega sterkt aðdráttarafl í borginni. Und-
anfarin ár hefur mikil uppbygging verið á
svæðinu og virðist ekkert vera því til fyr-
irstöðu að þar verði í framtíðinni sterkur og
iðandi miðpunktur sem tengir saman fjögur
svæði; Laugaveg/Hverfisgötu, Rauðarárstíg/
Klambratún, Höfðatorg/Borgartún og Skip-
holt/Holtin, segir m.a. í úttekt Trípólí arki-
tekta á Hlemmi.
Matarmarkaður verður á Hlemmi
Nokkrar umsóknir hafa borist um leigu og rekstur Styttist í að rekstraraðili verði valinn Veit-
ingar, fjölbreytt úrval matar svo sem kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir eiga að vera í boði á Hlemmi
Morgunblaðið/Eggert
Hlemmur Innan tíðar gegnir Hlemmur öðru og nýju hlutverki, þar sem áhersla verður á rekstur veitingastaða og matarmarkaðar.
Hjálmar
Sveinsson