Morgunblaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 72
72
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
Þ
ríþrautarfólk æfir nú af kappi fyrir
Járnmanninn sem haldinn verður í
Kjós laugardaginn 8. ágúst nk., en
þar verður í fyrsta sinn hérlendis í
hálfum járnkarli synt í stöðuvatni í stað
sundlaugar. Í Járnmanninum synda kepp-
endur 1,9 km í Meðalfellsvatni, hjóla 90 km í
Hvalfirðinum og hlaupa 21,1 km í Kjós-
arskarðinu. Mikil eftirvænting ríkir á meðal
keppenda vegna þátttöku Ástralans Chris
„Macca“ McCormack, en hann er einn þekkt-
asti þríþrautarmaður í heimi og hefur tvisvar
unnið heimsmeistaratitilinn í Ironman.
Járnmaðurinn er haldinn af Þríkó, Þrí-
þrautarfélagi Kópavogs, og búist er við
harðri keppni, að sögn Viðars B. Þorsteins-
sonar, eins skipuleggjenda, en hann er einn
besti þríþrautarmaður landsins og æfir sjálf-
ur stíft fyrir keppnina í Kjós. „Við erum
mjög spennt að fá Macca í Járnmanninn en
auk hans kemur erlendis frá Bretinn Nick
Saunders, fyrrum atvinnumaður í þríþraut og
nú þjálfari. Þeir tveir gefa Járnmanninum
ákveðna vigt og setja góða pressu á okkur
hin, keppendurna frá Íslandi.“
Kjöraðstæður í Kjós
Aðspurður segist Viðar hafa stundað
hjólreiðar og hlaup um árabil en byrjað að
æfa þríþraut fyrir um fimm árum. „Ég keppti
í fyrsta sinn 2010 í Kópavogsþríþraut og ári
seinna stofnuðum við nokkrir félagar Þríkó,
sem er orðið stærsta þríþrautarfélag landsins
með um 90 iðkendur. Ég hef tekið þátt í þrí-
þrautarkeppnum víða erlendis, meðal annars
í Þýskalandi, Svíþjóð, á Bretlandi og Hawaii.
Síðustu árin hef ég keppt minna á Íslandi í
þríþraut en aftur á móti hef ég keppt töluvert
hér heima í greinunum þremur, hverri fyrir
sig.“
Hugmyndin að Járnmanninum í Kjós
kviknaði hjá Viðari. „Ég hef mjög sterkar
taugar til Kjósarinnar því ég var þar mikið
sem barn í sumarbústaðnum hjá afa og
ömmu. Undanfarin tvö ár hefur Þríkó haldið
þarna styttri þríþrautarkeppnir til að prófa
svæðið og þykir það henta mjög vel fyrir þrí-
þraut. Meðalfellsvatn er tært og ekki of kalt
og Hvalfjörðurinn er heppilegur, þar er gott
slitlag á vegum og lítil bílaumferð.
Flestar þríþrautarkeppnir á Íslandi hafa
verið haldnar í nágrenni við sundlaugar, sem
takmarkar mjög hjólaleiðir. Það er heldur
ekki það sama að synda í sundlaug og stöðu-
vatni eða sjó; í öllum alvöru þríþrautum er-
lendis er synt í sjónum eða í vatni enda er
kuldinn ekki vandamál þar. Keppnissvæðið er
jafnframt fallegt og ekki of langt frá höf-
uðborginni og þar er gott kaffihús, Kaffi
Kjós. Það er því tilvalið fyrir áhugafólk um
íþróttir og útivist að skreppa í laugardags-
bíltúr 8. ágúst, fylgjast með keppninni og fá
sér kaffi og vöfflur.“
Ísland í sviðsljósinu
Fjöldi manns hefur þegar skráð sig til
keppni í Járnmanninum og enn bætist í hóp-
inn, að sögn Viðars. Hægt er að skrá sig í
liðakeppni og til viðbótar við þríþraut verður
boðið upp á tvíþraut; sund-hjól eða hjól-
hlaup. „Vegalengdir eru þær sömu nema
keppendur geta valið að sleppa annaðhvort
hlaupi eða sundi. Keppt er í ákveðnum ald-
ursflokkum og rétt er að undirstrika að leyfi-
legt verður að synda í neoprene-sokkum.“
Hann segir komu Chris McCormack
vera mikla lyftistöng fyrir Járnmanninn.
„Macca er einn besti þríþrautarmaður allra
tíma og þátttaka hans mun vekja athygli um
allan heim og beina kastljósinu að Íslandi. Í
nýlegu viðtali við hið víðlesna tímarit LAVA
Magazine segir Macca sig lengi hafa dreymt
um að heimsækja Ísland og Járnmaðurinn sé
frábært tækifæri til að slá tvær flugur í einu
höggi – keppa í þríþraut á framandi slóðum
og skoða landið með fjölskyldunni.“
Viðar bendir á að erlendu þríþrautarfólki
finnist spennandi að keppa á Íslandi. „Við
munum nýta okkur þessa miklu auglýsingu í
LAVA Magazine, í tengslum við komu Macca
hingað, til að byggja upp alþjóðlega keppni
sem mun vonandi laða að fjölda erlendra
keppenda næsta sumar og fleiri hundruð
þátttakendur innan fárra ára. Kjósarsprett-
urinn 2014 heppnaðist gríðarlega vel, enda
þótt vegalengdir væru styttri en í keppninni
nú, og draumurinn er að geta boðið upp á
heilan járnkarl á þessu fallega svæði þar sem
synt er í tæru stöðuvatni í fögru umhverfi og
hjólað og hlaupið í friðsælli sveit.“
Markviss undirbúningur
Spurður nánar út í keppnisgreinina í al-
þjóðlegu samhengi segir Viðar þríþraut hafa
vaxið hraðast allra íþróttagreina síðastliðin
ár, hún eigi auknum vinsældum að fagna um
allan heim. „Þríþraut er líka vinsæl á Íslandi
en hún hefur þó staðið í stað frá 2013 þar
sem iðkendum hefur ekki fjölgað að neinu
marki. Aftur á móti er ein keppnisgreinin,
hjólreiðar, í örum vexti hér heima.“
Hann segir alla geta æft þríþraut, hún
sé ekki bundin við afreksfólk á sviði íþrótta.
„Það þarf ekki þrotlausar æfingar en til að
ná árangri í styttri og lengri vegalengdum er
samt nauðsynlegt að æfa töluvert. Sjálfur æfi
ég 10 til 25 klukkustundir á viku, og syndi þá
bæði í sundlaug og í sjónum, en það er vel
hægt að komast af með 6 til 10 klukkustundir
í viku hverri. Ég er sterkari í sundi og á hjól-
inu og hef því einbeitt mér að því síðustu
mánuði að styrkja mig í hlaupunum með
ágætum árangri.
Ég byrjaði að æfa fyrir Járnmanninn í
maí og nú er undirbúningurinn að ná há-
marki. Síðustu daga fyrir keppni dreg ég
markvisst úr álaginu og lykilatriði er að fá
nægan svefn, það skiptir sköpum að mæta
vel hvíldur til leiks. Það er sömuleiðis mik-
ilvægt að passa upp á mataræðið, hafa það
fjölbreytt, og ég á auðvelt með að halda mig
við hollt fæði enda finnst mér það best. Auð-
vitað er það viss áskorun að flétta miklar æf-
ingar saman við fjölskyldulíf og vinnu en ef
maður skipuleggur sig, fer eldsnemma á fæt-
ur og notar morgnana vel, þá bitnar það ekki
á öðrum.“
Sjá nánar: www.jarnmadurinn.is
Etja kappi við heimsmeistarann
Járnmaðurinn, sem haldinn verður í Kjós 8. ágúst, er fyrsta keppnin hér á landi í hálfum járnkarli þar
sem synt er í stöðuvatni Meðal þátttakenda er ástralski íþróttakappinn Chris „Macca“ McCormack
Hann hefur tvívegis hampað heimsmeistaratitlinum í Ironman og er í hópi bestu þríþrautarmanna heims
Getty Images
Heimsmeistari Chris Macca McCormack frá
Ástralíu tekur þátt í Járnmanninum.
Ljósmynd/PE Productions.
Kastljósið „Þátttaka Macca, eins fremsta þríþrautarmanns heims, mun vekja athygli um allan
heim,“ segir Viðar B. Þorsteinsson, sem hér sést að lokinni keppni í Ironman á Hawaii í fyrra.
Ljósmynd/Páll Gestsson
Járnmaðurinn Keppendur synda 1,9 km í Meðalfellsvatni, hjóla 90 km í Hvalfirðinum og hlaupa 21,1 km í Kjósarskarðinu.
ÚTIVIST og hreyfing