Morgunblaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hafði verið með þessahugmynd í maganum ífjölda ára, að bjóða upp ásiglingar út á Skagafjörð-
inn og margir hvöttu mig til dáða. Ég
er lærður húsasmíðameistari og vann
við það en ég lenti í vélsleðaslysi, fór
fram af tíu metra hárri hengju og
fékk sleðann ofan á mig og hef ekki
getað starfað við smíðar síðan. Þá sá
ég að siglingarnar væru eitthvað sem
ég gæti snúið mér að. Ég skellti mér á
námskeið og varð mér úti um réttindi
sem þarf til að sigla og ég fór í fyrstu
ferðina 19. júní í fyrra, á kvennafrí-
daginn,“ segir Ingvar Daði Jóhanns-
son, eigandi fyrirtækis sem hann kall-
ar Haf og land og er í Hofsósi, en
hann býður upp á siglingar frá höfn-
inni við Vesturfarasetrið.
„Þetta gengur mjög vel og ég er
búinn að fara með 360 fleiri farþega í
siglingar en á sama tíma í fyrra. Enn
er ég einvörðungu að bjóða upp á
siglingarnar yfir sumarið, ég vil ekki
fara of geyst af stað. Ég er í skóla til
að auka við mig réttindi svo ég geti
siglt stærri báti í framtíðinni. Ég er
með margar hugmyndir í kollinum
um það hvernig ég ætla að þróa þetta
hjá mér. Ég hef trú á þessu og það
eru ofboðslega miklir möguleikar í
ferðaþjónustu hér í Hofsósi,“ segir
Daði, eins og hann er oftast kallaður,
en hann er fæddur og uppalinn í
Hofsósi.
Einkatúrar eftir óskum fólks
Daði segir þá sem panta sigling-
ar hjá honum vera á öllum aldri og af
báðum kynjum. Meirihluti þeirra eru
Íslendingar enda á hann eftir að
markaðssetja sig fyrir erlenda gesti.
Hann getur að hámarki tekið nítján
farþega í hverri ferð og ekki færri en
fjóra fullorðna.
„Ég er með fasta ferð á morgn-
ana klukkan hálf tíu því þá er sjólag-
ið oftast best. Þetta er tveggja tíma
ferð og við rennum út í Þórðarhöfða,
skoðum Bergrósina sem er einstakt
náttúrufyrirbæri þar í stuðlabergs-
klettunum. Síðan siglum við út í
Málmey og skoðum hana frá sjó. Ef
fólk vill þá getur það fengið að veiða
á sjóstöng í þessum morgunsigling-
um en ég býð líka upp á siglingar
sem eru einvörðungu sjóstang-
veiðiferðir. Það veiðist vel hér á þess-
um miðum og það er mikið fjör, sér-
staklega fyrir krakka. Hvalir synda
líka stundum með okkur, sem vekur
mikla lukku,“ segir Daði og bætir við
að hann bjóði einnig upp á miðnæt-
ursiglingar, sem eru mjög vinsælar.
„Ég býð líka upp á einkatúra á þeim
tímum sem fólk óskar eftir, þá skipt-
ir engu hvort það er dagur eða nótt.
Þetta hentar vel fyrir starfsmanna-
ferðir, steggjun eða gæsun, vinaferð-
ir eða annað.“
Sambýliskona Daða heitir Bar-
bara Wenzl og er frá Austurríki.
Hún er hestakona og hefur lokið
námi frá hestafræðideild háskólans á
Hólum og vinnur á hrossaræktar-
búinu hjá Lilju Pálmadóttur á Hofi á
Höfðaströnd.
Örlög ráðin á páskaballi
„Daði var að vinna sem smiður á
nemendagörðunum á Hólum þegar
ég kom þangað til náms fyrir tíu ár-
um. Hann var fyrsti maðurinn sem
ég hitti þar og var í blárri jogging-
peysu, sem enn er til og ég er alltaf
að reyna að fela eða henda, en hon-
um tekst alltaf að koma í veg fyrir
það,“ segir Barbara og hlær þegar
hún rifjar upp þeirra fyrsta fund.
„Við byrjuðum ekki saman fyrr
en um vorið, á páskaballi í Miðgarði.
En það skemmtilega var að við
nenntum hvorugt á þetta ball, en vin-
ir okkar drógu okkur hvort í sínu lagi
þangað. Og þar með voru örlögin
ráðin.“
Byrjaði hjá Magna í Árgerði
Barbara kom fyrst til Íslands
nokkrum árum áður en hún hitti
Daða, eða fyrir 17 árum, þegar hún
var aðeins 18 ára.
„Frá því ég var lítil stelpa var ég
ákveðin í því að eftir stúdentspróf
færi ég til Íslands til að vinna með ís-
lenska hesta. Ég hafði kynnst þeim
heima í Austurríki hjá vinkonu minni
þar sem ég fékk að fara á hestbak frá
því ég var sjö ára. Ég var og er óð í
hesta og ég réði mig í vinnu á bænum
Árgerði í Eyjafirði hjá Magna og
Dísu þegar ég kom hingað fyrst. Ég
skildi ekki orð í íslensku og þau hjón-
in töluðu hvorki ensku né þýsku,
enda fullorðið fólk. Það fyrsta sem ég
gat sagt á íslensku var: „Má ég fara á
hestbak.“
Saltkjöt og siginn fiskur
Barbara segir matinn í Árgerði
hafa verið afar ólíkan því sem hún
átti að venjast, allan veturinn var
saltkjöt og siginn fiskur á borðum og
mjólkin beint úr kúnum.
„Þetta var mikil skírn fyrir mig
og mér fannst ég algerlega ein-
angruð. Við þurftum að vakna klukk-
an fimm á morgnana til að fara í fjós-
ið og klára mjaltir áður en mjólkur-
bíllinn kæmi. Það var ekki einn
einasti hestur á bænum þegar ég
kom um haustið, þeir voru allir á af-
réttinum, ég vann því við hefðbundin
sveitastörf. En það var gaman þegar
hestarnir komu heim af fjalli og ég
lærði rosalega mikið af Magna sem
er af gamla skólanum. Hann er mín
helsta fyrirmynd, enda hestamaður
af Guðs náð.“
Draumadjobb á Hofi
Barbara á átta íslenska hesta,
hryssu sem Daði gaf henni í útskrift-
argjöf og afkvæmin hennar.
„Þetta er Varmalækskynið, en
ég var að vinna í þrjú ár hjá fólkinu á
því ræktunarbúi,“ segir Barbara sem
komst í úrslit á síðasta landsmóti
þegar hún keppti á Dal frá Hálegg-
stöðum. Nú hefur hún selt hann til
Bandaríkjanna, og segir erfitt að
þurfa að kveðja. „Þessi hestur hefur
gert svo margt fyrir mig og kennt
mér mikið, hann hefur sett mig á
kortið í hestaheiminum hér á Íslandi.
Mér þykir rosalega vænt um hann.
Hann verður í dekri þarna úti, enda
er hann orðinn 13 vetra.“
Barbara er afar ánægð í starfi
sínu á Hofi, þar sem hún hefur verið í
sex ár. Þar temur hún, þjálfar og sér
um flest sem viðkemur hestunum.
„Lilja er með um 80 hross, hún
ræktar, keppir og selur. Þetta eru
góð hross og aðstaðan á Hofi er frá-
bær, svo þetta er draumadjobb fyrir
mig.“
Skapandi par í Skagafirðinum
Vinir Barbara og Dalur, sem hefur kennt henni mikið og hún saknar hans.
Kapteinn Daði við stýrið á bát sínum sem hann siglir á um Skagafjörð.
Miðnætursiglingar Daða Þær eru afar vinsælar enda fegurðin einstök.
Flottur fótaburður Barbara í keppnisbrautinni á Dal frá Háleggstöðum.
Þau starfa á ólíkum vett-
vangi sambýlisfólkið Daði
og Barbara sem búa í Hofs-
ósi. Hann býður upp á sigl-
ingar um Skagafjörð en
hún temur og þjálfar hross
á Hofi á Höfðaströnd.
Hægt er að panta siglingar í gegn-
um tölvupóst á vefsíðunni:
www.hafogland.is en einnig í gegn-
um skilaboð á Facebook: Siglingar
um Skagafjörð, eða í síma:
849-2409
Gaman Sjóstangveiðin vekur lukku.Stolt siglir fleyið mitt Súla, bátur Daða, er stöðug og fær í flestan sjó.
Firstrain regnkápa
2 litir/St. XS–XL
Austurveri, Háaleitisbraut 68 • sími 568 4240
Nýtt frá
Náttúrulegt gúmmí
Stærðir
36–41
Miss Juliette Bot
Nýr litur:
Brun
Miss Julie
Litur: Noir