Morgunblaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 97
MENNING 97
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
20
afsláttur
/00
RayBan umboðið á Íslandi
fyrir helgina
Kjartan Már Ómarsson
kmo@mbl.is
Hljómsveitin Útidúr heldur tónleika í
Mengi í kvöld þar sem hún mun flytja
efni af komandi breiðskífu, sem hefur
enn ekki hlotið nafn. Kristinn Roach,
hljómborðs- og saxófónleikari sveit-
arinnar, sagði að titill plötunnar yrði
áreiðanlega ekki ávkeðinn fyrr en
umslagið færi í prentun, „og það væri
ekki vinsælt að opinbera vinnutitla“.
Kristinn gaf sig á spjall við Morgun-
blaðið meðan hann gekk af hljóm-
sveitaræfingu og í Hljóðheima þar
sem platan er í vinnslu.
„Þetta er plata sem er búin að vera
svolítið lengi í bígerð,“ segir Kristinn.
„Ég hugsa að elstu lögin á henni hafi
verið samin á síðustu þremur, fjórum
árum. En síðan er þetta í bland við
lög sem voru samin og kláruð núna í
ár. Þetta er kannski svolítið
„aggressívara“ heldur en fyrri plöt-
urnar. Aðeins meira fútt, held ég. Við
byrjuðum að spila árið 2009, þannig
að þetta eru að verða sex ár sem við
höfum verið starfandi. Við erum að
verða hundgömul. Á þessum tíma
höfum við sent frá okkur plötur með
nokkuð jöfnu millibili. Fyrsta kom út
2011, næsta 2013 og svo þessi nýja
núna 2015. Þetta er bara á tveggja
ára fresti, þannig að það lítur út fyrir
að það komi frá okkur plata 2017.“
Einhvers konar kammerpopp
Þú segir að platan sé „aggressív-
ari“ núna. Hvað þýðir það?
„Ég veit ekki hvernig ég get lýst
því betur, bara meira „attitúd“. Hún
er mjög fjölbreytt. Það er hins vegar
harðari og dekkri hljóðheimur núna í
bland við klassísku hljóðfærin, við er-
um aðeins að vinna með elektróník og
synta og þess konar. Stefnan hefur
alltaf verið rosalega óljós hjá okkur.
Það voru svolítil balkanáhrif í bland
við indí-popp og alls konar þjóðlaga
og klassísk áhrif til að byrja með, en
við höfum fjarlægst það að einhverju
leyti. Þetta þróast bara. Við komum
úr svo ólíkum áttum og hlustum á svo
ólíka tónlist að við ákváðum það að
setja okkur ekki neinn ramma hvað
varðar stefnur. Allt sem við fílum, lát-
um við flakka.“
Treystirðu þér til að skilgreina
þetta?
„Þegar maður neyðist til þess að
segja eitthvað, tölum við stundum um
kammerpopp af því að við erum með
klassísk hljóðfæri eins og fiðlu og
saxófón í bland við hefðbundnari
popp-hljóðfæri. En það er erfitt að
setja einhvern merkimiða á stefn-
una.“
Kristinn segir hljómsveitina hafa
tekið miklum breytingum. Í upphafi
voru þau oftast tólf talsins, fyrsta árið
eða tvö. „Núna erum við svona að
meðaltali 7.“ Hann segir jafnframt
hljómsveitina sprottna úr samstarfi
hans og Gunnars Arnar, gítarleikara
og söngvara. „Við vorum oft að dunda
okkur að semja saman, en hvorugur
okkar var í tónlistarnámi á þeim tíma.
Ég man ekki alveg hvernig það kom
til en við ákváðum bara að bjóða öll-
um sem okkur datt í hug í bandið.
Það var bara stemmning að fá sem
flesta. Okkur langaði í lúðra og fiðlur,
prófa eitthvað nýtt. Í rauninni vissum
við ekkert ofsalega mikið hvað við
vorum að gera í upphafi. Buðum bara
öllum að vera með.“
Tónleikahald í
Þýskalandi og Kanada
Hljómsveitin hefur verið iðin við
tónleikahald í Þýskalandi og Kanada
undanfarin ár. „Við höfum verið hjá
bókunarskrifstofu sem heitir Prime
Tours og er í Þýskalandi,“ segir
Kristinn. „Þeir tóku okkur að sér um
2011. Það byrjaði þannig að við sótt-
um um að spila á einhverri tónlistar-
hátíð og eftir það tók þessi bókunar-
skrifstofa okkur að sér. Síðan þá
hefur hún skipulagt túra í Þýskalandi
fyrir okkur einu sinni til tvisvar á ári.
Kanada var svo bara einn mjög
langur túr. Það er kanadísk hljóm-
sveit sem heitir Brasstronaut sem
spilaði á Airwaves 2010, eða um það
leyti. Við kynntumst henni þá. Þeir
voru að keyra útgáfutúr um Kanada
2012 og buðu okkur með sem upphit-
unarhljómsveit. Við hentumst sem
sagt út, keyptum okkur bíl, svona
sendibíl eins og boltamömmur eru á,
og ókum þvert yfir Kanada. Spiluðum
í 22 borgum á einum mánuði. Keyrsla
tíu tíma á dag í mánuð.“
Kristinn segir að í heildina hafi þau
áreiðanlega spilað meira úti en á Ís-
landi, en það hafi hins vegar verið lít-
ið um spilamennsku almennt hjá
þeim undanfarið. „Við spiluðum eina
tónleika á Húrra í byrjun júní en fyrir
utan það höfum við ekki spilað síðan á
Airwaves. Það var bara þannig vetur
að það voru ekki allir á staðnum og
við ákváðum bara að vinna að plöt-
unni í staðinn.“
Þið hafið ekki hugsað ykkur að
vera með tvær gerðir að hljómsveit-
inni. Eina viðhafnarútgáfu þar sem
allir mæta og svo eina gerð sem er
meira strípuð niður?
„Viðhafnarútgáfan er kannski 12
manna hljómsveit, sem kemur
kannski einstaka sinnum fram á
stærri tónleikum. En annars er oft
mjög erfitt að einfalda þetta eitthvað
frekar. Lögin eru bara þannig. Þau
bjóða ekki upp á einfaldar útgáfur.
Það er samt misjafnt eftir lögum. Ég
sé hins vegar ekki hvernig við færum
að því að halda tónleika bara þrír.“
Með hverjum eruð þið að vinna
plötuna?
„Við erum að blanda hana með
Kára Einarssyni, gítarleikara úr
Oyama. Hann tók einmitt upp plöt-
una þeirra. Við erum í stúdíóinu hans,
Hljóðheimum, sem er rétt fyrir ofan
Hlemm. Þetta er mjög fín aðstaða
sem þeir eru með. Svo gefum við
þetta líklega út sjálf. Við gerðum það
með fyrstu tvær plöturnar, nema Re-
cord Records sá um dreifingu fyrir
okkur.
Hvenær kemur svo platan út?
Það er ekki komið alveg á hreint.
Við erum að klára að hljóðblanda
hana núna. Ég var að lenda í hljóð-
verinu. Við erum að miða við miðjan
ágúst og erum eiginlega að vonast til
þess að koma henni út fyrir septem-
ber. Þetta er svolítið svona á seinustu
stundu hjá okkur, eins og vill oft
verða.
Allt sem við fílum, látum við flakka
Hljómsveitin Útidúr sendir frá sér nýja plötu í haust Platan mun verða heiftúðugri en fyrri plöt-
ur Halda tónleika í Mengi í kvöld þar sem nýtt efni verður kynnt Allt að 12 manna sveit
Hljómsveit „Okkur langaði í lúðra og fiðlur, prófa eitthvað nýtt. Í rauninni
vissum við ekkert ofsalega mikið hvað við vorum að gera,“ segir Kristinn.