Morgunblaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 34
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Keppnistíðin í formúlu-1 er nú hálfn-
uð og liðin komin í fjögurra vikna
sumarfrí sem lýkur með belgíska
kappakstrinum í Spa Francorc-
hamps 23. ágúst. Þar koma til fram-
kvæmda reglur sem taka fyrir að-
stoð sem veita má ökumönnum frá
stjórnborði við ræsingu kappakst-
urs. Misheppnuð ræsing beggja bíla
Mercedes-liðsins hefur sett svip sinn
á tvö síðustu mót og hleypt miklu
fjöri í keppnina. Nýju reglurnar
gætu átt eftir að valda enn frekari
sviptingum.
Um liðna helgi fór eitt tilþrifa-
mesta mót ársins fram í Hungaror-
ing við Búdapest. Hafi Mercedes-
liðið verið í skýjunum vegna drottn-
unar í flestum mótum fram að því
hrapaði það harkalega niður á jörð-
ina í Ungverjalandi. Sebastian Vet-
tel hjá Ferrari drottnaði í keppninni
og er allt í einu orðinn „heitur“ í
keppninni um heimsmeistaratitil
ökumanna.
Það hefur eflaust ekki hvarflað að
mörgum, að Vettel myndi leiða
kappaksturinn frá fyrstu beygju til
þeirrar síðustu. Ásamt liðsfélaga
sínum Kimi Räikkönen þaut hann
fram úr báðum bílum Mercedes á
fyrstu metrunum og leit aldrei aftur
eftir það. Hófu þeir keppni í þriðja
og fimmta sæti. Lewis Hamilton og
Nico Rosberg áttu ömurlegan dag
sem þeir vilja eflaust sem fyrst
gleyma. Þótti sannast með því að
silfurörvar Mercedes eigi á brattann
að sækja að skilvirkni og getu þegar
þær þurfa aka á eftir öðrum bílum í
upprótuðu lofti. Sérstaða þeirra felst
í mun meiri straumfræðilegri skil-
virkni þegar enginn er í veginum og
ótruflaður loftstraumur leikur um
bílana.
Ekki hrifinn af spagettí
Um síðir bilaði rafeindabúnaður í
vélbúnaði Räikkönen og kom í veg
fyrir tvöfaldan sigur Ferrari, þann
fyrsta frá 2010. Sigurinn var sá 41. á
ferli Vettels en þar með hefur hann
jafnoft staðið á efsta þrepi verð-
launapalls og brasilíska kappakst-
ursgoðið Ayrton Senna. Aðeins
Frakkinn Alain Prost (51) og Mich-
ael Schumacher (91) hafa sigrað oft-
ar. Vitaskuld fögnuðu liðsmenn
Ferrari ákaft og með sínu lagi. Liðs-
stjórinn Arrivabene lýsti hughrifum
sínum svo eftir kappaksturinn: „Ég
er ítalskur en finnst spagettí ekki
gott. Ég kýs frekar pizza all’arrabb-
iata. Það þýðir „reiðiþrungin pizza“
og hún er uppáhaldsrétturinn minn.“
Svo virtist sem yfirburðirnir
kæmu Vettel á óvart en hann og
Ferrari minntu þó alla rækilega á
sig með sigri í Malasíukappakstr-
inum, öðru móti ársins, í marslok. Í
millitíðinni drottnaði þó Mercedes
og bjuggust allir við áframhaldi á því
í Búdapest, ekki síst í ljósi þess að
Hamilton og Rosberg höfðu unnið
átta af fyrstu níu mótunum. Og með
tilliti til yfirburða Mercedes í fyrra
hefur verið talið að titilslagurinn
yrði milli þessara tveggja. En eftir
sigur Vettels á sunnudag verður
hann ekki afskrifaður. Er hann að-
eins 42 stigum á eftir Hamilton og 21
stigi á eftir Rosberg þegar níu mót
eru eftir.
Nú heitir Vettel því að reyna sitt
besta þótt hann segi liðið þurfa bæta
bílana enn fremur til að eiga mögu-
leika. „Það er langt í land með að
komast jafnfætis þeim, en maður
veit aldrei hvað getur gerst. Eitt er
víst; við munum gera gjörsamlega
allt sem við hugsanlega getum til að
gera það ómögulega mögulegt.
Besta leiðin til þess er að halda ró
sinni og reyna sitt besta og bíða svo
og sjá hvert leiðangurinn ber okk-
ur.“
Það er sama hvernig á það er litið,
ungverski kappaksturinn var ein-
staklega fjörlegur og skemmtilegur
fyrir augað. Hvað eftir annað skelltu
ökumenn saman hjólum í návígi og
stöðubaráttu á braut sem hingað til
hefur ekki þótt mikil til framúrakst-
urs. Á því varð breyting nú og form-
úlan sýndi hvers megnug hún er og
öflug íþrótt þegar vel tekst til. Nóg
var af dramatík, spennu, óstýrilæti,
glettni, gáska og hryggð keppnina út
í gegn, þar sem allir virtust ætla að
fá sinn skammt af óförum. Óvæntir
hlutir áttu sér stað upp alla bílaröð-
ina og meðal þess markverða var að
báðir McLaren-bílarnir luku keppni
í stigasæti og Fernando Alonso varð
fimmti í mark. Kallaði hann það „lít-
ið kraftaverk“.
„Eins og heimskingjar núna“
Allt þetta varð til þess að gamli
heimsmeistarinn Niki Lauda, núver-
andi stjórnarformaður Mercedes--
liðsins, lét gagnrýnendur form-
úlunnar hafa það óþvegið – rétt eins
og hann hafi lengi beðið eftir tæki-
færi til þess. „Þeir sem segja að
formúlan sé leiðinleg líta út eins og
heimskingjar núna,“ sagði Lauda
eftir kappaksturinn tilþrifamikla og
sviptingasama í Búdapest. Liðs-
stjórinn Toto Wolff tók undir með
Lauda og sagði: „Frábær kapp-
akstur fyrir formúlu-1 – bara ekki
fyrir okkur.“
Alráðurinn Bernie Ecclestone
gekk þar til sem Wolff ræddi við
blaðamenn og þakkaði honum fyrir
að gera kappaksturinn svo skemmti-
legan. „Þið þurftuð nú ekki að
stökkva í sjóinn til þess,“ sagði hann.
Mikinn meirihluta mótssigra í ár
hefur sá ökumaður unnið sem fyrst-
ur hefur orðið inn í fyrstu beygju eft-
ir ræsingu. Er það til marks um mik-
ilvægi þess – öllu heldur forskots
sem það gefur – að aka í óröskuðum
loftstraumi. Hin lamandi hönd kviku
fyrir aftan annan bíl er eitt af ein-
kennum formúlunnar sem seint
verður yfirstigið.
Kappaksturinn á sunnudag í
Búdapest markaði lok yfirburða – og
stundum leiðinlegrar drottnunar
Mercedes-liðsins sem hóf öll fyrstu
10 mótin á ráspól og vann átta
þeirra. Annað mótið í röð gekk allt
úrskeiðis hjá liðinu í ræsingunni.
Nýjar reglur um ræsingu koma til
framkvæmda í næsta móti svo
heimsmeistaraliðið hefur nóg um að
hugsa í sumarfríinu.
Fyrsta sinn í pallsæti frá 2013
Eins og í upphafi segir er keppnin
í formúlu-1 í ár hálfnuð. Þótt ung-
verski kappaksturinn hafi verið sá
slakasti af hálfu Mercedes í ár og
verið martröð fyrir ökumennina hef-
ur það að öðru leyti drottnað og er
með 383 stig gegn 236 stigum Ferr-
ari í keppninni um heimsmeistara-
titil bílsmiða. Í þriðja sæti er Willi-
ams með 151 og fjórða Red Bull með
96 stig. Nokkuð langur vegur er í
næstu lið en þeirra fremst er Force
India með 39 stig og síðan Lotus 35,
Toro Rosso 31, Sauber 22 og McLa-
ren 17. Í titilslag ökumanna eru þrír
í sérflokki; Hamilton með 202 stig,
Rosberg 181 og Vettel 160.
Hamilton segir að kappaksturinn í
Hungaroring hafi verið sá slakasti af
sinni hálfu frá því í Fuji í Japan 2008
og bað hann liðsmenn sína afsökunar
í talstöðinni undir lokin. Um tíma
var hann utan stiga í Búdapest en
þrátt fyrir útafakstur og refsingar
fyrir ákeyrslu voru heilladísir hon-
um ögn hliðhollar að lokum og jók
hann á endanum forskot sitt á liðs-
félaga sinn Nico Rosberg í titil-
keppni ökumanna. Hamilton hafði
verið 16 sinnum í röð á verðlauna-
palli fram að Búdapest. Mótið var og
hið fyrsta frá því í Brasilíu 2013 sem
hvorugur ökumanna Mercedes
kemst á verðlaunapall. Og ófarirnar
komu í veg fyrir að Mercedes setti
nýtt met með því að eiga báða öku-
menn samtímis á palli tíunda mótið í
röð.
Rosberg var í öðru sæti undir lok
kappakstursins og útlit var fyrir að
hann næði forystunni af Hamilton í
titilslagnum. Sem hefði verið afar
óvenjulegt í ljósi yfirburða Hamil-
tons í innbyrðis keppni liðsfélag-
anna. Sömuleiðis var Rosberg kom-
inn í návígi við Vettel og átti jafnvel
möguleika á sigri, eða þar til hann
Harkaleg lending hjá Mercedes
Keppnistíðin í formúlu-1 er nú hálfnuð og liðin komin í fjögurra vikna sumarfrí Mikil tilþrif í
ungverska kappakstrinum Lið Ferrari minnir á sig Nýjar reglur gætu valdið sviptingum
Nákvæmni Í næstu mótum reynir
meira á ökumanninn sjálfan við
stjórn bílsins í ræsingu en hingað til.
Óhapp Árekstrar og
samstuð í návígi settu
mikinn svip á ung-
verska kappakst-
urinn.
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015