Morgunblaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 58
58 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Einn maður beið bana í fyrrinótt
þegar farandmenn gerðu um 1.500
tilraunir til að fara inn í Ermar-
sundsgöngin í frönsku hafnarborg-
inni Calais í von um að komast til
Bretlands. Frönsk yfirvöld sendu
120 lögreglumenn að göngunum eft-
ir að samgöngur um þau höfðu rask-
ast vegna málsins.
Maðurinn sem lét lífið er talinn
vera af súdönsku bergi brotinn og á
aldrinum 25 til 30 ára. Hann lést
þegar hann varð fyrir flutningabíl,
að sögn frönsku lögreglunnar. Alls
hafa níu farandmenn beðið bana við
göngin á síðustu tveimur mánuðum í
tilraunum til að komast til Bret-
lands.
Natacha Bouchart, borgarstjóri
Calais, sagði að um „150 til 200 far-
andmenn“ hefðu reynt að komast
inn í göngin, hver þeirra nokkrum
sinnum. Nóttina áður höfðu farand-
menn gert um 2.000 tilraunir til að
komast um göngin til Bretlands.
Theresa May, innanríkisráðherra
Bretlands, sagði í gær að „nokkur
fjöldi“ farandmanna hefði komist
með lestum um göngin til Bretlands
síðustu daga.
„Mikið áhyggjuefni“
Fyrr í mánuðinum var skýrt frá
því að um 3.000 farandmenn biðu í
Calais eftir tækifæri til að komast til
Bretlands. Flestir þeirra eru frá
Eþíópíu, Erítreu, Súdan og Afgan-
istan.
Eurotunnel, fyrirtækið sem rekur
göngin, sagði í yfirlýsingu í gær að
alls hefðu farandmenn gert um
37.000 tilraunir til að komast inn í
göngin það sem af er árinu.
Umferð flutningabíla og lestasam-
göngur röskuðust vegna málsins.
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að málið væri „mik-
ið áhyggjuefni“. bogi@mbl.is
Samgöngur um Ermarsundsgöngin röskuðust vegna tilrauna farandmanna til að komast til Bretlands
Níu menn hafa lát-
ið lífið við göngin
AFP
Vilja fara til Bretlands Farandmenn á brú yfir járnbrautarteina nálægt Ermarsundsgöngunum í Calais.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Árásum á byggingar sem hýsa
flóttamenn og hælisleitendur hefur
fjölgað mjög í Þýskalandi á síðustu
mánuðum og fram hafa komið vís-
bendingar um að nýnasistar séu að
sækja í sig veðrið.
Alls voru skráðar 173 árásir á
gistiheimili fyrir hælisleitendur í
Þýskalandi á fyrstu sex mánuðum
ársins og þær voru nær þrisvar sinn-
um fleiri en á sama tímabili í fyrra,
að sögn þýska innanríkisráðuneytis-
ins. Meðal annars hefur verið kveikt
í byggingum fyrir hælisleitendur.
Alls hafa 150 gistiheimili verið
skemmd eða eyðilögð í árásunum
það sem af er árinu, að sögn frétta-
veitunnar Reuters.
Þýska vikuritið Spiegel segir að
ráðist sé á gistiheimilin nánast dag-
lega og blaðið hefur eftir yfirmanni í
þýsku ríkislögreglunni að enn fleiri
árásir kunni að hafa verið gerðar
vegna þess að margir flóttamenn séu
tregir til að leita til lögreglunnar.
Joachim Gauck, forseti Þýska-
lands, fordæmdi árásirnar nýlega og
sagði að þær væru „viðbjóðslegar“.
Heiko Maas, dómsmálaráðherra og
einn forystumanna Jafnaðarmanna-
flokksins (SPD), hefur sagt að árás-
irnar séu „atlaga að þýska samfélag-
inu“.
„Hefur ljóti Þjóðverjinn
snúið aftur?“
Spiegel segir að þótt sumir stjórn-
málamenn hafi varað við þessari þró-
un hafi aðrir kynt undir ólgunni í
samfélaginu vegna fjölgunar hælis-
leitenda. Þeirra á meðal sé Horst
Seehofer, formaður Kristilega
sósíalsambandsins (CSU), systur-
flokks Kristilegra demókrata (CDU)
í Bæjaralandi, sem hafi haldið uppi
harðri gagnrýni á „stórfellda mis-
notkun á hælisleitendakerfinu“.
Blaðið segir að það sé gömul klisja
að flestar árásanna á útlendinga í
Þýskalandi eigi sér stað í sambands-
löndum sem tilheyrðu Austur-
Þýskalandi fyrir endursameiningu
landsins árið 1990. Að vísu sé rétt að
árásunum hafi fjölgað þar síðustu
misseri en það eigi einnig við um
sambandslönd í vesturhlutanum. Til
að mynda hafi verið kveikt í gisti-
heimilum fyrir hælisleitendur í Bæj-
aralandi og Rheinland-Pfalz.
„Þetta vekur óhjákvæmilega
spurninguna: Hefur „ljóti Þjóðverj-
inn“ snúið aftur?“ segir Spiegel.
Nýlega var skýrt frá því að skráð-
um árásum pólitískra öfgamanna á
flóttamenn og hælisleitendur hafi
fjölgað um 24% í Þýskalandi á síð-
asta ári, að sögn AFP. Alls voru þá
skráðar 990 árásir á hælisleitendur.
„Hatur og árásir á flóttafólk og
hælisleitendur eru skammarlegar,“
hefur fréttaveitan eftir Thomas de
Maizière, innanríkisráðherra og ein-
um forystumanna Kristilegra demó-
krata.
Árásum á
flóttafólk fjölg-
ar í Þýskalandi
Ráðist er á þýsk gistiheimili fyrir
hælisleitendur nánast daglega
AFP
Ólga Þjóðernissinnar mótmæla
fjölgun hælisleitenda í Dresden.
Hælisleitendum fjölgar
» Þjóðverjar tóku við 200.000
hælisleitendum á síðasta ári
og gert er ráð fyrir að allt að
450.000 manns sæki um hæli
í Þýskalandi í ár.
» Talið er að kostnaðurinn
vegna hælisumsóknanna tvö-
faldist í ár. Hann nam 2,2 millj-
örðum evra (325 milljörðum
króna) á síðasta ári og gert er
ráð fyrir að hann aukist í fimm
milljarða evra (740 ma. kr.).
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Cecil var 13 ára og í miklu uppáhaldi
í Hwange-þjóðgarðinum í Simbabve
enda þótt ekki væri auðvelt að
vingast við þetta
glæsilega karl-
ljón með dökka
makkann. Ferða-
menn voru mjög
hrifnir af dýrinu.
En nýlega svalaði
bandarískur
tannlæknir, Wal-
ter James Pal-
mer, frá Minne-
sota, veiðiþörf
sinni með því að
skjóta ör í Cecil. Tveir aðstoðar-
menn hans frá Simbabve fengu
greitt sem svarar um sjö milljónum
króna fyrir hjálpina en þeir lokkuðu
Cecil út fyrir þjóðgarðinn. Annar
þeirra skaut síðan ljónið til bana
með byssu eftir um 40 klukkustunda
eftirför.
Sjálfur segist Palmer iðrast þess
að hafa tekið þátt í drápinu.
„Ég hafði ekki hugmynd um það
fyrr en eftir ferðina að ljónið sem ég
skaut væri þekkt og mikið eftirlæti á
staðnum, væri með hálskraga vegna
rannsókna,“ segir hann. „Ég treysti
því að leiðsögumenn mínir væru fag-
menn og tryggðu að veiðin væri lög-
leg.“
Mennirnir fláðu dýrið og skáru af
því hausinn, einnig reyndu þeir að
eyðileggja GPS-hálskragann sem
var notaður í rannsókn er Oxford-
háskóli studdi.
Mál Cecils hefur valdið hneykslun
víða um heim, dýravinir og frægð-
arfólk af ýmsu tagi hafa fordæmt
tannlækninn. Fólk hefur hellt sér yf-
ir lækninn í athugasemdakerfum
netsins. „Skammastu þín fyrir að
drepa tígulegt dýr,“ sagði einn.
Sjónvarpskonan Sharon Osbourne
sagðist vilja að Palmer missti bæði
heimili sitt, starfið og alla pen-
ingana. Hann væri þegar búinn að
„glata sál sinni“. Annar sagðist vilja
vilja hefna Cecils með því að draga
allar tennurnar úr Palmer, án deyf-
ingar.
Segja að ungar Cecils muni líka
týna lífinu
Leiðsögumenn hans, veiðimað-
urinn Theo Bronchorst og bóndinn
Honest Trymore Ndlovu, verða báð-
ir dregnir fyrir dómara og mega bú-
ast við háum sektum. Og yfirvöld í
Simbabve segjast vilja yfirheyra
Palmer vegna rannsóknar málsins.
Annað sem hryggir menn er að
dýrafræðingar segja að nú muni
næsta karlljón í goggunarröðinni,
Jeríkó, drepa alla unga Cecils. Karl-
ljón vilji alltaf reyna að tryggja að
þeirra eigin ungar hafi forgang.
AFP
Hvíld Cecil með einni af unnustum sínum í Hwange-þjóðgarðinum í Simbabve. Cecil er ákaft syrgður og þeir sem
drápu hann fordæmdir enda villidýraveiðar varla jafn vinsælar og fyrr á öldum.
Tannlæknir fordæmd-
ur fyrir að drepa ljón
Cecil var víðfrægur íbúi þjóðgarðs í Simbabve
Palmer segist iðrast þess mjög
að „ástin á dýraveiðum sem ég
stunda af ábyrgð og með lög-
mætum hætti“ skuli hafa orðið
til þess að ljónið var drepið. En
fram kemur í frétt CNN að Palm-
er hafi áður lent í vanda vegna
ólöglegra veiða. Hann hafi fyrir
nokkrum árum verið dæmdur í
árs fangelsi, skilorðsbundið, fyr-
ir að drepa án leyfis svartbjörn
með boga í Wisconsin.
Drap björn
ÁÐUR VERIÐ Í VANDA
Walter
Palmer