Morgunblaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3 0. J Ú L Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 177. tölublað 103. árgangur
ÍSLENSKUR
LAXADANS Í
BÓKVERKI
MARKAÐS-
SETNING
RAFMAGNS
ÚTIVIST OG
HREYFING Í
BRENNIDEPLI
VIÐSKIPTAMOGGINN MÖGULEIKAR 66 - 80LJÓSMYNDIR 100
Heimsóknir á ylströndina í Nauthólsvík hafa verið talsvert
fleiri í sumar en í fyrrasumar, að sögn Hafdísar Gísladóttur,
rekstrarstjóra ylstrandarinnar. „Þetta er búið að vera alveg
frábært, við höfum séð mikla aukningu í aðsókn. Þó er það
þannig að fjöldinn dreifist á góðu dagana. Við áætlum að þeg-
ar mest er heimsæki ströndina um 5.000 manns á dag,“ segir
hún. Ýmis starfsemi fer fram á svæðinu en þar er t.a.m. þjón-
ustumiðstöð sem selur veitingar. Á ströndinni má til dæmis
oft sjá jógahópa, sjósundskappa og zumba-dansara. »16
Ylströndin í Nauthólsvík nýtur vinsælda sem aldrei fyrr
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjárfestirinn
Vincent
Tchenguiz hefur
frest fram að
helgi til að skjóta
ákvörðun undir-
réttar í Bretlandi
í máli sínu gegn
Kaupþingi og
fleiri aðilum til
áfrýjunardóm-
stóls. Verði dómstóllinn við kröfum
hans kann slitastjórn Kaupþings að
verða örðugt að ljúka nauðasamn-
ingi fyrir áramót en þá rennur út
frestur til þess. Náist það ekki mun
stöðugleikaskattur falla af fullum
þunga á búið. »Viðskiptamogginn
Nauðasamningur
Kaupþings gæti ver-
ið í uppnámi
Vincent Tchenguiz
Kríuvarp hefur aukist talsvert í
friðlandinu í Vatnsmýri. Jóhann Óli
Hilmarsson fuglafræðingur segir
kríuhreiðrin þar hafa verið 40 í
fyrra en nú séu þau fleiri en 100.
Tilkoma kríunnar er jákvæð fyrir
aðrar fuglategundir, þar sem krían
er aðgangsharður fugl sem hjálpar
t.d. til við að halda í burtu mávum
og hröfnum. Því hefur andavarp
aukist í friðlandinu og í sumar hef-
ur sést til a.m.k. fimm andategunda
verpa á svæðinu. Varpinu stendur
ógn af aðskotaplöntum sem eru að
breiða úr sér í friðlandinu. »4
Kríuvarp eykst hratt
í Vatnsmýrinni
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Farþegaþotur í langflugi milli Evr-
ópu og Ameríku fljúga enn beint
yfir Heklu, þrátt fyrir viðvaranir
Páls Einarssonar, prófessors í
jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands.
Hann skrifaði Samgöngustofu
fyrir um ári og varaði við því að
farþegaþotur legðu leið sína yfir
eldfjallið. „Ég reyndi að vekja at-
hygli á því að það væri óþarfa
áhætta tekin með því að flugvélar
flygju þarna beint yfir,“ segir Páll.
„Það fljúga þarna yfir 20-30 flug-
vélar á dag. Þær eru í hættu að
lenda í stróknum þegar hann kem-
ur. Hekla þarf ekki að eyða neinni
orku í að bræða sig upp í gegnum
jökul þannig að mökkurinn mun
rísa strax með fullri orku og fara
upp í tíu kílómetra hæð, upp að
veðrahvörfum.“ Páll segir að það
myndi nægja að færa flugleiðina
um fimm kílómetra frá Heklu til að
minnka áhættuna mikið.
„Það sárgrætilega er að það virð-
ast ekki vera nein viðbrögð hjá
flugyfirvöldum til þess að gera
þennan sjálfsagða hlut. Þá yrði
þessi hætta úr myndinni. Það væri
alveg hrapallegt ef við misstum allt
í einu flugvél þarna.“
Fljúga í 30 þúsund fetum
„Það getur verið að þeir séu með
einn flugpunkt yfir Heklu. Við vit-
um ekkert um það, en þeir fljúga
bara inn á íslenskt yfirráðasvæði
eftir ákveðnum hnitum. Það eru
litlar líkur á því að Hekla gjósi og
valdi slysi, af því að þetta tekur allt
sinn tíma og Hekla er vel vöktuð.
Þeir fljúga í 30.000 fetum þannig að
líkurnar á að þetta valdi slysi eru
engar, eða litlar,“ sagði Kolbrún
Guðný Þorsteinsdóttir, sérfræðing-
ur í fræðslumálum hjá Samgöngu-
stofu, þegar Morgunblaðið bar
undir hana ummæli Páls Einars-
sonar.
Að sögn Páls getur eldfjallið gos-
ið hvenær sem er. „Hekla á næsta
leik og aðdragandinn að honum
verður mjög stuttur. Aðdragandinn
að gosi verður varla meira en hálf-
tími eða klukkutími,“ segir Páll.
Varar við þotu-
flugi yfir Heklu
Samgöngustofa telur litlar líkur á að eldgos valdi slysi
MHekla skapar hættu »20
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Að sögn Gauta
Grétarssonar
sjúkraþjálfara er
nauðsynlegt að
fjölga hjólreiða-
stígum til að
koma í veg fyrir
alvarleg slys á
hjólreiðamönn-
um og gangandi
fólki sem verður
fyrir hjólum.
„Það verða árekstrar. Til að koma í
veg fyrir þá verður að bæta að-
stæður hjólreiðamanna,“ sagði
hann. Að mati Gauta fer umferð
gangandi vegfarenda og hjólandi
ekki saman. »14
Segir sprengingu í
hjólreiðum kalla á
fleiri hjólreiðastíga
Reiðhjól Vinsæll
ferðamáti.
Erlendum ferðamönnum hefur
fjölgað víðar en á Íslandi og misjafnt
er hvernig áfangastaðir eru undir það
búnir að taka á móti auknum fjölda.
Ýmsar hugmyndir eru um hvernig
taka eigi á málum, t.d. íhuga borgar-
yfirvöld í Feneyjum að krefjast gjalds
inn á Markúsartorgið og borgarstjór-
inn í Barselóna hefur bannað bygg-
ingar hótela næsta árið.
Skapti Örn Ólafsson, upplýsinga-
fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir að hugsanlega megi skoða að-
gangsstýringu á vinsælustu staðina
hér á landi. »22
Aðgangsstýring
kannski tímabær