Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 12

Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég hafði verið með þessahugmynd í maganum ífjölda ára, að bjóða upp ásiglingar út á Skagafjörð- inn og margir hvöttu mig til dáða. Ég er lærður húsasmíðameistari og vann við það en ég lenti í vélsleðaslysi, fór fram af tíu metra hárri hengju og fékk sleðann ofan á mig og hef ekki getað starfað við smíðar síðan. Þá sá ég að siglingarnar væru eitthvað sem ég gæti snúið mér að. Ég skellti mér á námskeið og varð mér úti um réttindi sem þarf til að sigla og ég fór í fyrstu ferðina 19. júní í fyrra, á kvennafrí- daginn,“ segir Ingvar Daði Jóhanns- son, eigandi fyrirtækis sem hann kall- ar Haf og land og er í Hofsósi, en hann býður upp á siglingar frá höfn- inni við Vesturfarasetrið. „Þetta gengur mjög vel og ég er búinn að fara með 360 fleiri farþega í siglingar en á sama tíma í fyrra. Enn er ég einvörðungu að bjóða upp á siglingarnar yfir sumarið, ég vil ekki fara of geyst af stað. Ég er í skóla til að auka við mig réttindi svo ég geti siglt stærri báti í framtíðinni. Ég er með margar hugmyndir í kollinum um það hvernig ég ætla að þróa þetta hjá mér. Ég hef trú á þessu og það eru ofboðslega miklir möguleikar í ferðaþjónustu hér í Hofsósi,“ segir Daði, eins og hann er oftast kallaður, en hann er fæddur og uppalinn í Hofsósi. Einkatúrar eftir óskum fólks Daði segir þá sem panta sigling- ar hjá honum vera á öllum aldri og af báðum kynjum. Meirihluti þeirra eru Íslendingar enda á hann eftir að markaðssetja sig fyrir erlenda gesti. Hann getur að hámarki tekið nítján farþega í hverri ferð og ekki færri en fjóra fullorðna. „Ég er með fasta ferð á morgn- ana klukkan hálf tíu því þá er sjólag- ið oftast best. Þetta er tveggja tíma ferð og við rennum út í Þórðarhöfða, skoðum Bergrósina sem er einstakt náttúrufyrirbæri þar í stuðlabergs- klettunum. Síðan siglum við út í Málmey og skoðum hana frá sjó. Ef fólk vill þá getur það fengið að veiða á sjóstöng í þessum morgunsigling- um en ég býð líka upp á siglingar sem eru einvörðungu sjóstang- veiðiferðir. Það veiðist vel hér á þess- um miðum og það er mikið fjör, sér- staklega fyrir krakka. Hvalir synda líka stundum með okkur, sem vekur mikla lukku,“ segir Daði og bætir við að hann bjóði einnig upp á miðnæt- ursiglingar, sem eru mjög vinsælar. „Ég býð líka upp á einkatúra á þeim tímum sem fólk óskar eftir, þá skipt- ir engu hvort það er dagur eða nótt. Þetta hentar vel fyrir starfsmanna- ferðir, steggjun eða gæsun, vinaferð- ir eða annað.“ Sambýliskona Daða heitir Bar- bara Wenzl og er frá Austurríki. Hún er hestakona og hefur lokið námi frá hestafræðideild háskólans á Hólum og vinnur á hrossaræktar- búinu hjá Lilju Pálmadóttur á Hofi á Höfðaströnd. Örlög ráðin á páskaballi „Daði var að vinna sem smiður á nemendagörðunum á Hólum þegar ég kom þangað til náms fyrir tíu ár- um. Hann var fyrsti maðurinn sem ég hitti þar og var í blárri jogging- peysu, sem enn er til og ég er alltaf að reyna að fela eða henda, en hon- um tekst alltaf að koma í veg fyrir það,“ segir Barbara og hlær þegar hún rifjar upp þeirra fyrsta fund. „Við byrjuðum ekki saman fyrr en um vorið, á páskaballi í Miðgarði. En það skemmtilega var að við nenntum hvorugt á þetta ball, en vin- ir okkar drógu okkur hvort í sínu lagi þangað. Og þar með voru örlögin ráðin.“ Byrjaði hjá Magna í Árgerði Barbara kom fyrst til Íslands nokkrum árum áður en hún hitti Daða, eða fyrir 17 árum, þegar hún var aðeins 18 ára. „Frá því ég var lítil stelpa var ég ákveðin í því að eftir stúdentspróf færi ég til Íslands til að vinna með ís- lenska hesta. Ég hafði kynnst þeim heima í Austurríki hjá vinkonu minni þar sem ég fékk að fara á hestbak frá því ég var sjö ára. Ég var og er óð í hesta og ég réði mig í vinnu á bænum Árgerði í Eyjafirði hjá Magna og Dísu þegar ég kom hingað fyrst. Ég skildi ekki orð í íslensku og þau hjón- in töluðu hvorki ensku né þýsku, enda fullorðið fólk. Það fyrsta sem ég gat sagt á íslensku var: „Má ég fara á hestbak.“ Saltkjöt og siginn fiskur Barbara segir matinn í Árgerði hafa verið afar ólíkan því sem hún átti að venjast, allan veturinn var saltkjöt og siginn fiskur á borðum og mjólkin beint úr kúnum. „Þetta var mikil skírn fyrir mig og mér fannst ég algerlega ein- angruð. Við þurftum að vakna klukk- an fimm á morgnana til að fara í fjós- ið og klára mjaltir áður en mjólkur- bíllinn kæmi. Það var ekki einn einasti hestur á bænum þegar ég kom um haustið, þeir voru allir á af- réttinum, ég vann því við hefðbundin sveitastörf. En það var gaman þegar hestarnir komu heim af fjalli og ég lærði rosalega mikið af Magna sem er af gamla skólanum. Hann er mín helsta fyrirmynd, enda hestamaður af Guðs náð.“ Draumadjobb á Hofi Barbara á átta íslenska hesta, hryssu sem Daði gaf henni í útskrift- argjöf og afkvæmin hennar. „Þetta er Varmalækskynið, en ég var að vinna í þrjú ár hjá fólkinu á því ræktunarbúi,“ segir Barbara sem komst í úrslit á síðasta landsmóti þegar hún keppti á Dal frá Hálegg- stöðum. Nú hefur hún selt hann til Bandaríkjanna, og segir erfitt að þurfa að kveðja. „Þessi hestur hefur gert svo margt fyrir mig og kennt mér mikið, hann hefur sett mig á kortið í hestaheiminum hér á Íslandi. Mér þykir rosalega vænt um hann. Hann verður í dekri þarna úti, enda er hann orðinn 13 vetra.“ Barbara er afar ánægð í starfi sínu á Hofi, þar sem hún hefur verið í sex ár. Þar temur hún, þjálfar og sér um flest sem viðkemur hestunum. „Lilja er með um 80 hross, hún ræktar, keppir og selur. Þetta eru góð hross og aðstaðan á Hofi er frá- bær, svo þetta er draumadjobb fyrir mig.“ Skapandi par í Skagafirðinum Vinir Barbara og Dalur, sem hefur kennt henni mikið og hún saknar hans. Kapteinn Daði við stýrið á bát sínum sem hann siglir á um Skagafjörð. Miðnætursiglingar Daða Þær eru afar vinsælar enda fegurðin einstök. Flottur fótaburður Barbara í keppnisbrautinni á Dal frá Háleggstöðum. Þau starfa á ólíkum vett- vangi sambýlisfólkið Daði og Barbara sem búa í Hofs- ósi. Hann býður upp á sigl- ingar um Skagafjörð en hún temur og þjálfar hross á Hofi á Höfðaströnd. Hægt er að panta siglingar í gegn- um tölvupóst á vefsíðunni: www.hafogland.is en einnig í gegn- um skilaboð á Facebook: Siglingar um Skagafjörð, eða í síma: 849-2409 Gaman Sjóstangveiðin vekur lukku.Stolt siglir fleyið mitt Súla, bátur Daða, er stöðug og fær í flestan sjó. Firstrain regnkápa 2 litir/St. XS–XL Austurveri, Háaleitisbraut 68 • sími 568 4240 Nýtt frá Náttúrulegt gúmmí Stærðir 36–41 Miss Juliette Bot Nýr litur: Brun Miss Julie Litur: Noir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.