Morgunblaðið - 30.07.2015, Side 7

Morgunblaðið - 30.07.2015, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Reykjavíkurborg tekur brátt yfir húsnæði á Hlemmi og leitar að rekstraraðila til að koma þar á fót veitinga- og matarmarkaði sem verði opinn alla daga. Borgin birti auglýsingu hinn 12. júní sl. þessa efnis og var umsóknarfrestur gefinn til 6. júlí sl. Hjálmar Sveinsson, for- maður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að borist hefðu nokkr- ar umsóknir sem nú væru til skoðunar hjá borgarráði. „Það eru komnar inn til- lögur frá nokkrum aðilum og það er verið að skoða þær núna. Þar gera umsækjendur grein fyrir því hvers konar rekstur þeir sjá fyrir sér á Hlemmi og skila inn rekstrar- áætlun. Ég hugsa að það sé frekar stutt í það að rekstraraðili verði valinn og það verður þá tilkynnt,“ sagði Hjálmar. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar segir m.a.: „Viðskiptavinir eiga að geta notið veitinga á staðnum og þar verður einnig í boði fjölbreytt úrval matar svo sem kjöt, fiskur, grænmeti, ávextir auk tengdrar sérvöru á borð við blóm og kaffi.“ Þar kemur jafnframt fram að nýr rekstrar- aðili muni taka þátt í að skipuleggja breyt- ingar á hlutverki hússins í samvinnu við Reykjavíkurborg. Hann velji verslanir og veitingastaði til samstarfs, afli tilskilinna leyfa, sjái um kynningar- og markaðsmál og annist allan daglegan rekstur hússins, þar með talið rekstur á salernum og örygg- isvörslu. Reykjavíkurborg geri sérstaklega ráð fyrir því að salerni verði opnuð aftur í húsinu. Strætó leigir áfram lítinn hluta Hlemms Strætó B.S. muni áfram leigja lítinn hluta húsnæðisins undir starfsmannaaðstöðu fyrir vagnstjóra sína. Starfsemi Strætó mun færast í Vatnsmýrina þegar ný umferðarmiðstöð verður tekin þar í notkun. Við val á rekstraraðila verði lagt til grund- vallar nálgun við hugmyndina, hönnun og út- lit, tenging við anda skipulags á svæðinu, þekking, reynsla og fjárhagsgeta viðkomandi ásamt viðskiptaáætlun. Þegar rekstraraðili hafi verið valinn verði samið nánar um leigu fyrir húsið á grundvelli markaðsleigu á nær- liggjandi svæði og mögulegs kostnaðar við breytingar á húsnæðinu. „Nálægð við gamla miðbæinn er svæðinu til framdráttar en hefur þó ekki tekist að vera nægilega sterkt aðdráttarafl í borginni. Und- anfarin ár hefur mikil uppbygging verið á svæðinu og virðist ekkert vera því til fyr- irstöðu að þar verði í framtíðinni sterkur og iðandi miðpunktur sem tengir saman fjögur svæði; Laugaveg/Hverfisgötu, Rauðarárstíg/ Klambratún, Höfðatorg/Borgartún og Skip- holt/Holtin, segir m.a. í úttekt Trípólí arki- tekta á Hlemmi. Matarmarkaður verður á Hlemmi  Nokkrar umsóknir hafa borist um leigu og rekstur  Styttist í að rekstraraðili verði valinn  Veit- ingar, fjölbreytt úrval matar svo sem kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir eiga að vera í boði á Hlemmi Morgunblaðið/Eggert Hlemmur Innan tíðar gegnir Hlemmur öðru og nýju hlutverki, þar sem áhersla verður á rekstur veitingastaða og matarmarkaðar. Hjálmar Sveinsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.