Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 24

Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 24
Í búðinni Oddgeir Garðarsson stendur vaktina alla daga í Stapafelli. Íslend- ingar eru ekki síður góðir viðskiptavinir í versluninni en þeir erlendu. Fjölbreytt úrval Ferðamenn skoða sig um í sölugalleríinu í Svarta pakkhús- inu. Þar hefur handverksfólk í Reykjanesbæ rekið sölugallerí í tæp 20 ár. BAKSVIÐ Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbær Bæði ferðatengda gjafavöruversl- unin Stapafell og sölugalleríið í Svarta pakkhúsinu hafa merkt auk- inn ferðamannastraum til Reykja- nesbæjar. Oddgeir Garðarsson eig- andi Stapafells og Elsa Einarsdóttir sem stóð vaktina í Svarta pakkhús- inu myndu þó vilja sjá ferðamennina kaupa meira og stærri hluti en þeir gera. Stapafell er ein elsta verslunin í Keflavík. Hún var opnuð árið 1955 þegar Hákon Kristinsson og Matt- hías Helgason keyptu Bygginga- vöruverslun Suðurnesja og breyttu nafninu í Stapafell. Þeir eru fjöl- margir bæjarbúarnir og nærsveit- ungarnir sem eiga minningar tengd- ar Stapafelli, þar sem hægt var að kaupa leikföng, búsáhöld og gjafa- vöru í stórri verslun og einnig bíla- varahluti. Jólainnkaupin voru gjarn- an gerð í Stapafelli. Nú er Stapafell gjafavöruverslun með áherslu á ferðamenn, nokkurs konar minjagripaverslun og sú eina í bænum. Við búðarborðið stendur Oddgeir Garðarsson eigandi Stapa- fells vaktina alla daga frá kl. 9 til 22. „Það er engin spurning að aukn- ing hefur verið í komu ferðamanna hingað í Reykjanesbæ, eiginlega al- gjör sprenging. Þeir eru hins vegar mest að kaupa smáhluti og margir bara að rápa,“ sagði Oddgeir þegar blaðamaður fór á stúfana. Hann sagðist telja skýringuna þá að sú markaðsherferð sem farið var í til að fjölga erlendum ferðamönnum á Ís- landi hafi skilað sér í ferðamönnum sem skilja lítið fjármagn eftir í land- inu. „Hjá mér er að fara mest af litlum minjagripum og minni prjóna- vörum. Þá hafa púðaverin hennar Elínar Aradóttur verið að slá í gegn.“ Allt handprjónað á Suðurnesjum Oddgeir sagði Íslendinga ekki síð- ur góða viðskiptavini en þá erlendu. „Þeir kaupa hér gjarnan jólagjafir handa vinum og ættingjum erlendis, s.s. boli og gjafavörur í kössum sem auðvelt er að senda í pósti.“ Þar hafa jólavörur Brians Pilkington verið vinsælar. Þá hafa Íslendingar ekki síður verið að skreyta hýbýli sín með jólavörunum og áðurnefndum púð- um Elínar. „Hér er alltaf mikið af þýskumælandi ferðamönnum og Ameríkönum, en mér finnst vera meira af frönskumælandi ferða- mönnum en oft áður, sennilega bæði Frakkar og Svisslendingar.“ Hægt er að fá úrval handprjón- aðra lopapeysa í Stapafelli og ýmsar smærri vörur unnar úr lopa. Allar handunnu vörurnar eru gerðar af handverkskonum af Suðurnesjum sem hefur þann kost í för með sér að hægt er að fá peysum breytt ef þarf, s.s. styttingu á ermum, eða koma með séróskir ef ferðamaðurinn eða kaupandinn dvelur lengur en einn dag í bænum. Elín Einarsdóttir, sem stóð vakt- ina í sölugalleríinu í Svarta pakkhús- inu þegar blaðamaður leit við á mánudag, hafði svipaða sögu að segja og Oddgeir. Umferð ferða- manna hafi aukist, mikið væri skoð- að, en mest keypt af smærri ullar- vörum. Illa búnir undir vindinn „Ferðamennirnir eru oft ekki búnir undir vindinn og koma þá og kaupa húfur og vettlinga,“ sagði El- ín. Þetta var nákvæmlega reynsla blaðamanns sem fékk franskan ferðamann í heimsókn í nokkra daga, sú var fljót að kaupa sér hand- prjónaða lopahúfu fyrir köldustu dagana. Handverksfólk í Reykjanesbæ hefur rekið sölugallerí í Svarta pakkhúsinu, einu af elstu húsum bæjarins, í hartnær 20 ár. Þar geta listamenn og handverksfólk í Reykjanesbæ og nágrenni komið verkum sínum á framfæri og selt. Söluaðilar skiptast á að standa vakt- ina í galleríinu, sem er opið frá kl. 13 til 17 alla daga. Nú eru 20 aðilar með sölupláss í galleríinu og kennir þar ýmissa grasa. Það nýjasta eru upp- Fjölgun franskra ferðmanna  Starfsfólk hjá gjafavöruversluninni Stapafelli og sölugalleríinu í Svarta pakkhúsinu hefur merkt aukinn ferðamannastraum til Reykjanesbæjar  Kaupa húfur og vettlinga í sumarkuldanum Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Mikið úrval Elín Einarsdóttir prjónakona selur prjónavörur af ýmsum stærðum og gerðum í Svarta pakkhúsinu. Búðargluggi Púðaver Thelmu Þórð- ardóttur eru vinsæl meðal ferða- manna. Þá hefur lundinn alltaf sér- stakt aðdráttarafl fyrir ferðamenn. stoppaðir fuglar Thelmu Þórðar- dóttur og handmálaðir steinar og fígúrur úr smiðju Sigrúnar Sverr- isdóttur. Sjálf er Elín með prjónavörur, bæði úr lopa og garni á börn og full- orðna. Hún sagði barnavörurnar sérstaklega vinsælar. „Ég hef stund- um ekki undan að koma með barna- peysur, kjóla og peysusett í hús. Ég held að skýringin sé meðal annars sú að það er engin barnafataverslun í bænum,“ sagði Elín sem selur mest til Íslendinga af þessum vörum. 24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.