Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 26
SVIÐSLJÓS
Anna Marsibil Clausen
annamarsy@mbl.is
Það mætti segja að breska skóla-
stúlkan Charlotte Burns væri ávallt
niðursokkin í sitt helsta áhugamál og
komi varla upp til að anda en raunin
er sú að hún er alls ekki sokkin.
Charlotte er nefnilega með sérlega
góða flothæfni og á ótal skírteini til
að sanna það.
Frá tíu ára aldri hefur þessi kraft-
mikla þrettán ára stúlka eytt öllum
sínum stundum á kafi og fyrir ári síð-
an varð hún yngst kafara til að hljóta
ungmeistaragráðu PADI, atvinnu-
samtaka köfunarkennara, aðeins
tveimur dögum eftir tólf ára afmælið
sitt. Nú hyggst Charlotte bæta öðr-
um titli í safnið og verða yngsta
manneskjan til að kafa í Silfru á
Þingvöllum.
„Mér finnst það ótrúlegt – að geta
snert tvo jarðskorpufleka, á sama
tíma vekur það með manni lotningu,“
segir Charlotte um ævintýrið fram-
undan.
Hún komst á snoðir um Silfru í
kafaratímariti og eftir að hafa kynnt
sér hana betur á netinu var ekki aft-
ur snúið.
„Pabbi minn talaði við dive.is sem
sér um kafanir í Silfru og þau sögðu
að ég þyrfti að vera minnst 18 ára til
að kafa þar. Við höfðum samband við
breska sendiráðið á Íslandi til að at-
huga hvort það gæti hjálpað og átta
mánuðum síðar lét dive.is okkur vita
að landverðirnir á Þingvöllum hefðu
veitt mér sérstaka undanþágu til að
kafa.“
Sprengjuleit og frostköfun
Meðal undirbúnings Charlotte fyrir
ævintýrið í Silfru má telja heimsókn
hennar til kafarasveitar hafnarlög-
reglu San Diego í Kaliforníu sem bauð
henni í sérfræðiköfunarþjálfun.
Þar æfði hún sig m.a. í að leita að
ósprungnum sprengjum í þröngum
rýmum undir flugvélarmóðurskipinu
USS Midway auk þess sem hún kaf-
aði í vatni við frostmark í Skotlandi.
Með æfingunum gat Charlotte
sýnt fram á flothæfni sína sem og að
hún geti staðist kuldann í Silfru sem
fer niður í -4°C.
Hún viðurkennir að hafa haft
áhyggjur af því að yfirvöld myndu
hafna beiðni hennar um undanþágu
og segir það hafa verið mikinn létti
þegar svarið barst.
„Mér líður eins og þetta verði
ótrúlegt afrek – það er næstum
óskiljanlegt. Ég veit að það er ekki
venjulegt að kafa í Silfru á mínum
aldri og ég vil sýna fólki að maður
getur kafað hvar sem er. Ef ég get
gert það sem þrettán ára stúlka frá
Englandi getur hver sem er gert
það.“
Vill vera öðrum innblástur
Charlotte mun kafa tvisvar sinn-
um í Silfru í 40 mínútur í senn, fyrst
25. september og svo aftur 26. sept-
ember. Henni til halds og trausts
verður breski landkönnuðurinn
Monty Halls og með þeim í för verð-
ur einnig teymi heimildargerð-
armanna frá Coventry-háskóla en til
stendur að gera fræðsluefni um
flekaskilin og ferð Charlotte fyrir
grunnskóla.
Charlotte nýtir köfunina reglu-
lega til að safna fé til góðgerðar-
mála. Hún hefur hlotið sérstaka
þjálfun í umönnun sjávarspendýra
og stefnir að því að læra sérstaklega
um köfun fyrir fólk með fatlanir.
Þar að auki er hún sérstakur tals-
maður PADI og tekur þátt í að
kynna heimsbyggðinni köfun.
„Ég vil klárlega hjálpa fólki að
kafa. Þetta snýst allt um vatnið fyrir
mér.“
Búnaður veitir öryggi
Þegar blaðamaður spyr hvort hún
verði aldrei hrædd segir Charlotte
það fara eftir aðstæðum. „Þegar ég
kafa í Silfru verð ég í blautbúningi
með andlitsgrímu og hettu svo mér
verður vonandi nokkuð hlýtt. Ég er
líka styrkt af fyrirtækjum sem
hjálpa mér að klæðast öllum bestu
græjunum og það veitir mér mikið
öryggi.“ Charlotte er reglulega
spurð út í ótta. Svarinu sem hún gef-
ur vatnshrædda blaðamanninum er
augljóslega ætlað að róa áhyggju-
fullt fullorðið fólk og því verður vart
komist hjá því að velta fyrir sér
hvort eitthvað hræði hana í raun.
„Ég sá könguló á baðherberginu í
morgun,“ svarar hún hlæjandi.
„Mér brá rosalega.“
„Þetta verður ótrúlegt afrek“
Hin þrettán ára Charlotte Burns fékk á dögunum sérstaka undanþágu frá íslenskum yfirvöldum til
að mega kafa í Silfru þrátt fyrir ungan aldur Þessi ótrúlega stúlka kemur til Íslands í september
Ljósmynd/Terry Scott
Haldið á djúpið Charlotte segist frekar líta á köfunina sem ástríðu en
áhugamál og vill að sem flestir fái að kynnast þeirri tilfinningu.
Ljósmynd/Peter Burns
Eftirsótt Charlotte hefur vart undan við að veita viðtöl. Hér er hún í þætt-
inum Weekend Break á BBC World Service ásamt móður sinni og systur.
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Notalegt í skammdeginu
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Sérpöntum glerkúpla og skerma
á olíulampa, verða frá 9.500
Fjósalukt 70 tíma,
verð 6.650
Gamaldags
14“‘ lampi,
verð frá 21.500
Fjósalukt, svört, grá
eða rauð, verð 5.250
Glóðarnet fyrir
Aladdin lampa,
verð 5.995
Kveikir í úrvali,
verð frá 1.105
Ofnsverta,
verð 2.540
Comet
11“‘ lampi,
verð frá 10.550
Lampaglös
í úrvali,
verð frá 4.110
Þegar hún er ekki í kafarabún-
ingnum er auðvelt að ímynda sér
að Charlotte sé afar venjulegur
breskur unglingur og það er að
einhverju leyti rétt. Hún fer í versl-
unarmiðstöðvar með vinum sínum
og leikur með dúkkur við litlu syst-
ur sína en fæstir breskir unglingar
eru með þúsundir fylgjenda á sam-
félagsmiðlum.
Eftir að Charlotte varð opinber
talsmaður PADI hefur stjarna
hennar hinsvegar vaxið. Í kjölfar
fjölda fjölmiðlaviðtala er fólk farið
að þekkja hana úti á götu og jafn-
vel biðja um að fá að taka myndir
með henni. Umstangið gleður
Charlotte þar sem hún vill gjarnan
hvetja fólk til að kynna sér köfun.
Sjálf minnist hún þess að hafa
séð mynd uppi á vegg hjá bróður
sínum sem sýndi hann, þá 14 ára
gamlan, fá skírteini í hendurnar
fyrir að vera yngsti kafarinn til að
hljóta ungmeistaragráðu PADI.
„Eftir því sem ég eltist fannst mér
hann verða mér innblástur til að
kafa. Ég vildi vera eins og bróðir
minn.“
Eins og áður kom fram skaut
hún bróður sínum ref fyrir rass og
fékk gráðuna sína aðeins 12 ára og
tveggja daga gömul en sem betur
fer erfir hann það ekki við hana.
„Ég held að hann sé mjög stoltur
af mér. Við erum mjög náin og
hann veit hvaða þýðingu köfun
hefur fyrir mig,“ segir Charlotte.
Fyrir Charlotte er köfunin miklu
meira en áhugamál. Hún lýsir æv-
intýrum sínum fyrir blaðamanni af
mikilli ástríðu og af meiri þroska
en nokkur myndi trúa.
„Mér finnst ég njóta forréttinda
þegar ég sé eitthvað neðansjávar
sem enginn í bátnum getur séð.
Köfun gerir mér kleift að sjá neð-
ansjávarheim sem ég myndi ekki
sjá annars.“
Ástríða og forréttindi
venjulegrar táningsstúlku
„ÉG VILDI VERA EINS OG BRÓÐIR MINN“
Reyndur kafari Charlotte Burns.