Morgunblaðið - 30.07.2015, Side 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
www.gilbert.is
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er í mjög góðu standi, sem
betur fer. Fyrirtækin nota góðan
búnað sem stenst stífustu kröfur,
bæði íslenskar og norskar. Þetta er
allt annað en var þegar ég var að
þjónusta fiskeldið fyrir tæpum þrjá-
tíu árum,“ segir Kjartan Jakob
Hauksson, kafari og eigandi Fisk-
eldisþjónustunnar, sem sérhæft hef-
ur sig í eftirliti, þvotti og viðgerðum
á sjókvíum og veitir öllum fiskeld-
isfyrirtækjunum á Vestfjörðum
þjónustu.
Mikilvægur liður í eldi laxfiska í
sjókvíum er að tryggja að kvíarnar
séu í lagi og að fiskur sleppi ekki út.
Slys hafa orðið hérlendis og erlend-
is. Það er mikilvægt fyrir fiskeldis-
fyrirtækin að koma í veg fyrir slysa-
sleppingar, þau geta ekki selt fisk
sem sleppur, og það er álitshnekkir
fyrir viðkomandi fyrirtæki þegar
fiskur sleppur og gengur í ár.
„Ég hef stundum sagt að flest fyr-
irtæki geyma peningana sína í pen-
ingaskápum eða bönkum. Fiskeldis-
fyrirtækin geyma sína fjármuni í sjó
og eiga því allt undir því að búnaður-
inn sé í lagi,“ segir Kjartan.
Fyrirtækin sáu sjálf um að halda
sjókvíunum í lagi þar til Kjartan
stofnaði fyrirtæki sitt og fór af krafti
inn í þennan rekstur á síðasta ári.
Fékk hann viðskipti hjá flestum eða
öllum fyrirtækjunum á Vestfjörðum
en þar eru flest stærstu eldisfyrir-
tækin.
Rippað í götin
Þjónustan felst í því að setja út
búnaðinn, hafa með honum eftirlit
og annast viðhald og viðgerðir. „Við
vökum alveg yfir nótunum til að
koma í veg fyrir að göt komi á þær,“
segir Kjartan. Farið er yfir kvíarnar
á þriggja vikna fresti og segir hann
það mun meira eftirlit en áður var.
Kjartan og samstarfsmenn hans
hafa sótt námskeið í Noregi og eru
með búnað þaðan til að tryggja að
þjónustan sé sú sama. Telur hann að
þjónustan á Íslandi sé komin í sama
horf og í Noregi.
Sjö starfsmenn eru hjá Fiskeldis-
þjónustunni. Þeir hafa til umráða
þjónustuskip, fjarstýrðan kafbát
með myndavél og fjarstýrða þvotta-
vél sem einnig er með neðansjávar-
myndavél. „Við erum alltaf á tánum
við eftirlitið og ég tel að ekkert fari
framhjá okkur. Ef við sjáum eitt-
hvað athugavert fer kafari strax nið-
ur til að laga það. Það gerist raunar
sjaldan. Það fara kannski einn eða
tveir möskvar en fiskar komast ekki
út um gatið. Það er samt rippað í til
öryggis, til að gatið stækki ekki.“
Kjartan er einnig í samvinnu við
Ísfell sem er að setja upp þvottastöð
fyrir nætur á Þingeyri. Þar eru næt-
urnar yfirfarnar þegar búið er að
slátra fiskinum upp úr þeim, þær
þvegnar og gert við það sem þörf er
á, áður en þær eru settar út í sjó á
nýjan leik.
„Öll fyrirtækin gera þetta af al-
vöru og ekkert er til sparað til að
hafa hlutina í lagi,“ segir Kjartan.
Hann segir ekki hægt að bera
vinnubrögðin saman við fyrri fisk-
eldisbylgjur. Fyrirtæki hafi þá iðu-
lega verið að vinna með lélegan bún-
að og haft takmörkuð fjárráð til að
halda honum í lagi.
Kraftmikil uppbygging
Kjartan segir áhugavert að koma
að kraftmikilli uppbyggingu fisk-
eldis á Vestfjörðum. „Fiskeldið er
mikil lyftistöng fyrir þessi byggð-
arlög enda hafa þau lítinn kvóta til
að sækja sjóinn,“ segir Kjartan.
Ekkert fer fram hjá okkur
Kjartan Jakob Hauksson kemur upp sérhæfðu fyrirtæki til að þjónusta fiskeldið Annast eftirlit
með sjókvíunum og þvær næturnar Ekkert til sparað til að koma í veg fyrir slysasleppingar
Laugardaginn 1. ágúst verður opnuð
biblíusýning í Auðunarstofu á Hól-
um í Hjaltadal. Sýndar verða m.a.
biblíur sem ríkisstjórnin gaf Hóla-
dómkirkju á 900 ára afmæli biskups-
stóls á Hólum árið 2006. Biblíurnar
voru úr safni sr. Ragnars Fjalars
Lárussonar. Mun þetta vera eitt
stærsta og merkilegasta biblíusafn
landsins, segir í frétt á heimasíðu
Biskupsstofu.
Meðal þeirra gersema sem sýndar
verða eru Gutenbergsbiblía, Biblía
Gustavs Vasa, Biblía Kristjáns III,
Þorláksbiblía, Steinsbiblía, Summ-
aria, Biblia laicorum, Nýja testa-
menti Guðbrands biskups og margar
fleiri fágætar biblíur. Sýningin er nú
í tilefni af 200 ára afmæli Hins ís-
lenska biblíufélags, en það var stofn-
að hinn 10. júlí árið 1815 og telst
elsta starfandi félags landsins. Á
Hólum var prentuð fyrsta íslenska
biblían, Guðbrandsbiblía, árið 1584
og er hún til sýnis í Hóladómkirkju.
Opnunarhátíð verður í Auðunar-
stofu laugardaginn 1. ágúst kl. 14.00.
Þar munu Hjalti Jónsson og Lára
Sóley Jóhannsdóttir syngja biblíu-
ljóð og boðið verður upp á veitingar.
Sýningin er opin alla daga í ágúst
kl. 10-18 og er aðgangur ókeypis.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hólastaður Sýningin verður opin alla daga í ágústmánuði.
Merkar biblíur
sýndar á Hólum
Kjartan Jóhann Hauksson er
betur þekktur sem ofurhugi og
ræðari en kafari og stjórnandi
fiskeldisþjónustu.
Hann lenti í miklum ævintýr-
um þegar hann reri einn á báti
hringinn í kringum landið á ár-
unum 2003 og 2005, fyrstur
manna. Hann varð að hætta
róðrinum í fyrri atrennu eftir að
bát hans rak upp í Rekavík á
Hornströndum og eyðilagðist.
Hann lauk hringferðinni á nýjum
bát sumarið 2005. Ferðin var
farin til styrktar Sjálfsbjörg.
Kjartan fór fyrir hópi róðrar-
kappa sem reru frá Kristian-
sand í Noregi yfir Atlantshafið
til Íslands á árunum 2013 og
2014. Róðurinn var óstuddur og
án fylgdarbáta. Þurftu þeir að
gera nokkur hlé á róðrinum. Af-
rekið er einstakt og var skráð í
Heimsmetabók Guinness.
Ræðari og
ofurhugi
RERI HRINGINN
Hlaðseyri Sjókvíar eru í öllum fjörðum Vestfjarða, frá Ísafjarðardjúpi í
Patreksfjörð. Í kringum það myndast blómlegur atvinnuvegur.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Til þjónustu Kjartan Jakob Hauksson veitir fiskeldisfyrirtækjunum sérhæfða þjónustu. Farið er reglulega með kaf-
bát með myndavél til að kanna ástand kvíanna og fjarstýrða þvottavél. Markmiðið er að enginn fiskur sleppi út.